Verkefni

22/03/2009

Hérna er að finna skjáborðsmyndir, auglýsingar, hönnun og önnur verk sem að ég hef unnið að í gegnum tíðina.  Ykkur er frjálst að sækja myndirnar til einkanota en aðra notkun þarf að bera undir höfund með því að senda póst á netfangið: jon@hnefill.com

Ef að einhverjir vilja sérsniðnar myndir þá er hægt að senda mér skilaboð á netfangið að ofan og ég mun hafa samband um leið og færi gefst.

Vona að þið njótið.

Skítug og gruggug skjáborðsmynd

Mér finnst fátt betra eftir langar og krefjandi vinnutarnir en að setjast niður með rjúkandi heitan Irish Coffee, opna Photoshop og bara leika mér með hvað svo sem flýgur í gegnum hausinn á mér í það og það skiptið. Angelina Jolie hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér, svo að mér fannst það rökrétt að heiðra hana með smá Photoshop leikfimi. Myndin er byggð á kennsluefni frá 2photoshop.com og leturgerðina sem að notaði er hægt að sækja ókeypis á fontspace.com.

Ég nennti ekki að skera myndina niður í mismunandi stærðir að þessu sinni en hægt er að sækja myndina í fullri stærð hérna: http://projects.hnefill.com/artwork/dirty_grunge_poster/Dirty_Grunge_Poster.jpg

Hægri smellið og veljið “save as” til þess að vista.

 

Facebook fíkn

Þessi er pínulítið sérstök.  Mig langaði að búa til skjáborðsmynd sem að gæti líka verið einskonar Facebook auglýsing.  Eftir smá leit rakst ég á kennsluefni sem að tók sérstaklega á vinnu með typography og visual effects.  Það sem að ég reiknaði hins vegar ekki með var hversu flókið það er vinna með þessa þætti ef að þú ert að gera það í fyrsta skipti, en verkið tókst eftir um mánuð í vinnslu og nokkuð hundruð lítra af kaffi.

Eftirfarandi upplausnir eru í boði (hægri smellið og veljið save as):

1920×1200

1680×1050

1440×900

1280×800

 

Snjóbretti

Myndin er byggð á Photoshop kennsluefni sem að hægt er að nálgast hérna.

Eftirfarandi upplausnir eru í boði (hægri smellið og veljið save as):

1920×1200

1680×1050

1440×900

1280×800

2 Comments
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes