Uppfærðu bloggið með Windows Live Writer

1/11/2009

Ég hef haldið úti bloggsíðu með einum eða öðrum hætti í að verða 4 ár. Með hléum þó. Þannig var ég fyrst á bloggcentral.is, síðan flutti ég mig á Blogger, stoppaði stutt við á moggablogginu, fór svo aftur yfir á Blogger og setti loks upp eigin WordPress bloggsíðu í byrjun þessa árs.

Ástæðurnar fyrir hléunum eru helst þær, að í fyrsta lagi á ég það til að vera alveg einstaklega latur bloggari (sem að útskýrir einstaka viku / mánaðar millibil á milli færslna) og það getur verið tímafrekt að vinna við hverju færslu og setja inn. Fyrra vandamálið er ennþá óleyst að megninu til, en seinna vandamálið hvarf eins og dögg fyrir sólu fyrir um ári síðan.

Þ.e. þegar að ég uppgvötaði Windows Live Writer.

Windows Live Writer er ókeypis hugbúnaður frá Microsoft sem að virkar með öllum helstu bloggkerfum á markaðinum í dag (Blogger, Windows Live Spaces, Sharepoint, WordPress, TypePad etc). Það er tiltölulega einfalt í notkun og býður þess utan upp á viðbótir til þess auka möguleika þess. Mér vitanlega virkar það ekki með neinu af íslenku bloggkerfunum eins og t.d. blog.is, blogcentral.is og blogger.is. Hægt er að tengja fleiri en einn blogg aðgang við forritið sem að gerir það mun auðveldara að halda utan um allt efni ef að þú heldur úti nokkrum síðum samtímis t.d.

wlw_setup

Eftir að búið er að sækja forritið og setja það upp, kemur upp skjá valmynd þegar að það er ræst í fyrsta skipti sem að býður þér að tengja blogg aðganginn þinn við forritið.

Veljið þá bloggþjónustu sem að ykkur hugnast (í flestum tilvikum Other blog service) og smellið því næst á “Next” til þess að halda áfram uppsetningu.

wlw_setup_2 Sláðu inn notendanafn og aðgangsorð og hakaðu við Remember my password ef að þú vilt ekki þurfa að staðfesta hverja birtingu með aðgangsorði. 

Ýttu á Next til þess að klára uppsetningarferlið. Windows Live Writer tengist að því loknu blogg aðganginum þínum og vistar um leið útlit og helstu stillingar.

Eftir að uppsetningunni er lokið fáið þið upp notendaviðmót sem að lítur nokkurn veginn svona út:

wlw_full_screen

Athugið að forritið tekur mið af því hvernig þemastílsniðið er á blogginu ykkar. 

En við skulum byrja á að brjóta niður einstaka þætti í notendaviðmótinu.

Aðal valmynd:

wlw_toolbar

Efst í vinstra horninu er aðal valmyndina og þar fyrir neðan koma flýtimöguleikar fyrir færslur og síður. Einn af sterkustu kostunum við forritið er að þú getur búið til og unnið að nýjum færslum til birtingar á blogginu þínu, en þú getur líka búið til nýjar síður (e. pages) og unnið með þær á alveg sama hátt.

Flýtivalmyndin hefur 4 valkosti; Publish, New, Open og Save draft.

Publish birtir viðkomandi færslu / síðu beint á bloggið þitt. New býr til nýja færslu í forritinu, en með því að ýta á örina við hliðina á geturðu valið að búa til nýja síðu. Open gefur upp möguleika á opna annaðhvort færslu frá blogginu sem að þú hefur þegar samþykkt til birtingar, eða uppkast (sem að getur verið vistað á tölvunni eða á blogg síðunni. Save draft gefur þér kost á að vista uppkast að færslunni í tölvunni þinni, á sjálfum blogg aðganginum eða að vista á blogg aðganginum og vinna áfram með færsluna í blogg stjórnborðinu í vafranum (t.d. TypePad, Blogger, WordPress, Sharepoint etc).

Athugið einnig að flýtileiðirnar (e. keyboard shortcuts), sem að flestar eru listaðar í aðal valmyndinni, eru frábær aðferð til þess að gera alla vinnu með bloggfærslur og/eða síður mun skilvirkari en ella.

 

Útlitsstjórnun efnis:

Fyrir neðan flýti valmyndina eru valmöguleikar fyrir útlitsstjórnun á færslum og síðum.

Fyrir þau ykkar sem að hafið unnið mikið með Microsoft Office eða Open Office ætti valmyndin að líta nokkuð kunnulega út:

wlw_menu

  1. Innsetning  (e.paste) efnis ef að þið afritið (e. copy) texta t.d. úr word skjali, frá vefsíðu eða úr pdf fæl (e. clipboard).
  2. Ógylding (e. undo).
  3. Stjórnun málsgreina og fyrirsagna í texta (e. paragraphs and headings).
  4. Feitletrun texta (e. bold).
  5. Skáletrun texta (e. italic).
  6. Undirstrikun texta (e. underline).
  7. Yfirstrikun texta (e. strikethrough).
  8. Leturgerð og stjórnun (e. font).
  9. Lista stjórnun með númerum (e. numbering).
  10. Lista stjórnun með punktum (e. bullets).
  11. Tilvitnun (e. block quote).
  12. Skipting texta (t.a.m. ef að þið viljið aðeins birta hluta færslunnar með “lesið meira” (e. read more) hlekk neðst (e. split post).
  13. Jafnið texta til vinstri (e. align left).
  14. Jafnið texta fyrir miðju (e. align center).
  15. Jafnið texta til hægri (e. align right).
  16. Jafnið texta til hægri og vinstri (e. justified).
  17. Stjórnun hlekkja (e. insert hyperlink).
  18. Stjórnun mynda (e. insert picture).
  19. Stjórnun taflna og einstakra þátt í töflu (e. table).
  20. Setja inn einstaka viðbætur (e. insert). [innsk. höf. Þetta er flýtileið fyrir viðbæturnar í hægri dálknum í forritinu. Sjá kaflann “Uppköst, birtar færslur og viðbætur” neðar í þessari færslu fyrir frekari útskýringar].

 

Fyrirsögn og textasvæði:

Sjálft texta svæðið er nokkuð auðskiljanlegt. Efst seturðu tiltil færslunnar / síðunnar og þar fyrir neðan sjálfan textann.

wlw_work_area 

Eftir því sem að textinn er lengri, hverfur auða svæðið fyrir neðan (gráa svæðið á þessari mynd).

Þetta hjálpar ekki aðeins til við að stjórna betur efnistökum, heldur gefur líka ákveðna mynd af því hversu mikinn texta þú ert að vinna með hverju sinni.

 

Stjórnun færsluslóða og efnisflokka:

Fyrir neðan textasvæðið eru svo möguleikar til þess að skilgreina betur hvaða slóð (e. slug) þú vilt gefa færslunni (t.d. til þess að auðvelda leitarvélum að finna síðuna þína) og hvaða efnis- og orð flokka (e. categories and tags) þú vilt gefa hverri færslu. Windows Live Writer sækir þá flokka sem að þú hefur þegar sett upp og bætir við stillingarnar.

Þú getur falið svæðið og kallað fram aftur með örini efst í hægra horninu á svæðinu.

wlw_control_tools

Það er hægt að bæta við efnis- og orð flokkum og forritið vistar þá sjálfkrafa á blogg aðganginum þínum.

Þú hefur einnig möguleika á að velja höfund færslu (séu þeir fleiri en einn á viðkomandi blogg síðu) og varið einstaka færslur / síður með notendanafni og aðgansorði ef að þú vilt t.d. takmarka aðgang að þeim.

Forritið býður líka upp á möguleika að setja tíma á færslu birtingu, sem að þýðir að færslan / síðan mun einungis verða sýnileg eftir þann tíma.

Efst til vinstri hefurðu svo Edit, Preview og Source þar sem að þú getur valið á milli þess að vinna með texta og útlit beint í notendaviðmótinu (Edit), skoða hvernig færslan / síðan kemur út á síðunni þinni (Preview) og fyrir lengra komna er hægt að vinna og bæta við HTML og CSS kóðann (Source).

 

Uppköst, birtar færslur og viðbætur:

Í hægri dálkinum í forritinu hefurðu flýtileiðir á sjálfa bloggsíðuna og stjórnborðið (opnar nýjan glugga / flipa í vafranum þínum), yfirlit yfir uppköst (e. Drafts) og nýlega birtar færslur (e. Recently posted) og lista yfir þær viðbætur (e. Insert) sem að koma með forritinu og verið sóttar sér.
 
Þú sérð alltaf þrjú nýjustu uppköstin eða þrjár nýlegustu færslurnar í yfirlitinu.

Viðbæturnar sem að fylgja með forritinu eru: Hyperlink, Picture, Photo album, Table, Map, Tags og Video.

Hægt er að sækja fjöldann allan af viðbótum fyrir forritið, sem að spanna allt frá biblíu tilvitnunum til kóðunarvinnu úr Visual Studio.  Þær sem að ég hef sett upp hérna eru: Silverlight Streaming (hægt að setja inn Silverligt kóða sem að er keyrður annarsstaðar frá), Flickr Image (sækir myndir frá Flickr til þess að setja inn í einstaka færslur), SkyDrive Embed (til þess að setja inn skjöl sem að geymd eru á SkyDrive hýsingar þjónustunni frá Microsoft), File(s) (tengir skjöl við færsluna og hleður inn á bloggþjónustuna), SnagIt Screen Capture (tekur skjáborðsmyndir með SnagIt og setur beint inn í hverja færslu) og WikiPedia Link (tengir orð og/eða setningu beint við samsvarandi WikiPedia grein).

Þessar og fleiri viðbætur fyrir Windows Live Writer má sækja hér.

wlw_sidebar

Það er ein viðbót sem að mig langar að fara aðeins nánar út í. Picture.

Picture viðbótin í forritinu gerir alla vinnu með myndir fyrir færslur / síður mikið einfaldari og skilvirkari. T.d. er hægt að bæta við einföldum effectum, vinna með contrast, setja inn watermark, hreyfa þær til (e. tilt), breyta stærðar hlutföllum og skera (e. crop) beint inni í viðbótinni án þess að þurfa að opna annað myndvinnslu forrit til þess.

 

Í hnotskurn:

  • Forritið þykir frekar létt og einfalt í notkun.
  • Það er ókeypis en virkar enn sem komið er einungis á Windows XP, Windows Vista og Windows 7.
  • Hægt er að tengja fleiri en einn bloggaðgang við forritið og vinna með efni hverja síðu fyrir sig, eða birta sömu færsluna á fleiri en einni síðu.
  • Það virkar ekki með neinum íslenskum bloggþjónustum eftir því sem að ég kemst næst.
  • Ef að færslur / síður eru vistaðar sem uppkast á sjálfu blogginu, getur hver sem að líka hefur Windows Live Writer og aðgang að sama bloggi, sótt uppkastið og unnið með hjá sér.
  • Það gerir samvinnu fyrir t.d. verkefna vinnu mun auðveldari, þar eð t.d. blogg síða fyrir hópinn ykkar gæti auðveldað samvinnu og rannsóknar vinnu sem og leyft kennaranum ykkar að fylgjast með.
  • Á þessari síðu eru ágætis leiðbeiningar fyrir Windows Live Writer fyrir þá sem að vilja vita meira.
  • Windows Live Writer forritið er hægt að sækja hérna.
  • Allar viðbætur er hægt að sækja hérna og þarf að setja upp sérstaklega. Windows Live Writer getur ekki sett þær upp sjálfkrafa.
No Comments

Biðtíminn á enda! (or is it?)

24/02/2009

Ég er hættur að telja þau skipti sem að ég hef reynt að halda úti bloggsíðu.  Það byrjaði fyrst árið 2005 (og þá meira í tengslum við námið frekar en hitt), fljótlega eftir það færði ég mig yfir á blogcentral í smá tíma, því næst yfir á blogspot, svo stoppaði ég stutt við á Bloggþjónustu Morgunblaðsins og loks fór ég aftur á blogspot en nennti því svo ekki lengur og hef verið “heimilislaus” í netheimum síðan 2007.

Á þessu ári uppgvötaði ég hins vegar undirlén, marghátta gagnagrunnstengingar, Windows Live Writer, WordPress 2.7.1 og plugins.  Á mannamáli myndi það þýða einfaldari aðferð til að uppfæra bæði bloggið og heimasíðuna og halda utan um alla “vinnu utan vinnu” verkefna. Kaldhæðnin í seinustu setningu er sú að ég er að leita að vinnu þessa dagana og sé mér farborða sem freelancer í millitíðinni.

Verandi trúr faginu, þá er heimasíðan ennþá í vinnslu og, af fenginni reynslu, kemst hún í loftið “fljótlega.” Það er jafnframt vinsælasta dagsetning margmiðlunarhönnuða við skil á verkefnum næst á eftir “seinna” og “von bráðar.”

Ég náði allavega að setja upp þessa síðu.  Njótið á meðan að það varir.

No Comments
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes