Windows 7: kostir og gallar – Partur I

25/10/2009
(Fyrsta greinin af þremur tileinkuð Windows 7 stýrikerfinu frá Microsoft og nýjum / væntanlegum hugbúnaðarlausnum fyrirtækisins og fjallar um ferlið sem að leiddi til þróunar Windows 7)

Frá Longhorn til Vista til Jerry Seinfeld

Hugbúnaðarrisinn Microsoft hefur í gegnum árin sætt mikilli gagnrýni fyrir að hlusta ekki á notendur sína, hunsa breyttar félags-  og efnahagslegar aðstæður og taka ekki mark á breyttri notendahegðun við þróun og útgáfu á hugbúnaði sínum og stýrikerfum. Þessi afstaða fyrirtækisins náði ákveðnu hámarki með útgáfu Windows Vista árið 2007.

Saga Vista var sorgarsaga frá upphafi til enda; mörkuð misgáfulegri ákvarðanatöku, slæmri markaðssetningu, ennþá verra upplýsingaflæði og, af því er virðist, hálf handahófskenndu þróunarferli. Vinnan við stýrikerfið hófst skömmu eftir útgáfu Windows XP árið 2001 og upphaflega stóð til að byggja grunninn að kerfinu á Windows 2000 Server tækninni, en í miðjum klíðum var horfið frá þeirri hugmynd og byrjað upp á nýtt á vinnu ferlinu með XP sem grunntæknina. Ástæðan var sögð ný tækni, Windows Foundation, sem átti að byggja inn í grunninn á Vista og hefði ekki verið möguleg annars. Vinnuheitið á nýja stýrikerfinu fékk nafnið Longhorn, í höfuðið á uppáhalds bar þeirra sem komu að vinnunni við það (sem að aftur segir kannski eitthvað um hvernig staðið var allri vinnunni). Útgáfudagur var upprunalega áætlður árið 2005, en var frestað aftur og aftur vegna tæknilegra örðugleika, og að lokum neyddust Microsoft til þess að strípa n0tkunarmöguleika stýrikerfisins meira og meira niður þegar að í ljós kom að tæknin og harðbúnaðurinn sem að það notaðist við, réðu ekki við allar stórkostlegu viðbæturnar sem að áttu að verða partur af því. Að lokum var meira að segja Windows Foundation, undirstaðan á bakvið allar helstu ákvarðanatökur við vinnuferlið á stýrikerfinu hingað til, strípað út. Við þetta bættust svo ruglingslegar yfirlýsingar um útgáfudaga, hvaða breytingar stæðu til og fjölmargir lekar á mismunandi þróunarstigum. Fyrstu prófanir á Vista hófust loks á vormánuðum 2006 og það kom í verslanir seinna í byrjun árs 2007 ¹.

Windows vista

Ég var einn þeirra sem að fékk beta invite á fyrstu útgáfuna af Vista frá Microsoft á sínum tíma og setti kerfið upp á eina af vélunum mínum. Ef að ykkur líkaði illa við Vista og UAC (User Access Control) valmöguleikan, þá getið þið rétt ímyndað ykkur martröðina sem að við fyrstu notendurnir þurftum að glíma við. Þú gast ekki slegið UAC af eða á (Microsoft ætluðu s.s. upprunalega að hafa það innbyggðan notkunarmöguleika sem að aðeins sjálfur admin accountinn gat tekið af), Windows sidebarinn tók allt að 20% af vinnsluminninu, sjálft notendaviðmótið (themes)  gat tekið 5 – 10% (eftir því hvað þú valdir að sérsníða það mikið), megnið af helstu forritunum á markaðinum, sem og eigin hugbúnaður Microsoft virkuðu ekki með stýrikerfinu, það studdi ekki stóran part af harðbúnaðinum á þeim tíma og svo mætti lengi telja. Microsoft hlustuðu þó á eitthvað af kvörtunum beta notenda sinna og betrumbættu Vista að hluta til áður en þeir gáfu það út.

Næstu mistök Microsoft í öllu ferlinu fólust í markaðssetningu og eftirfylgdinni á Vista. Windows XP kom t.d. í tveimur útgáfum; Home og Professional. Munurinn á þeim var nokkuð skýr: Home var ætlað meðal tölvunotendanum, sem að ekki þurfti á flóknari netkerfis stillingum Professional útgáfunnar að halda. Vista, aftur á móti, bauð upp á litlar 4 útgáfur;  Home Basic, Home Premium, Business og Ultimate. Munurinn á útgáfunum ? Jú innbyggð forrit frá Microsoft eins og Media Center ásamt backup og protection möguleikum…

Á haustmánuðum 2007 jukust vandræði Microsoft enn frekar þegar að fyrirtækið tapaði málarekstri gegn Evrópusambandinu sem að staðið hafði nánast óslitið síðan 2003 og snérist um markaðsmisnotkun þeirra á hugbúnaði sem að það dreifði sem hluta af Windows stýrikerfinu ².

Í ofanálag uppgvötuðust fljótlega öryggisgallar í Vista sem að gleymst hafði að gera ráð fyrir, stýrikerfið hlaut almennt slæma umfjöllun, Microsoft stóð í málferlum í Bandaríkjunum og sætti vaxandi gagnrýni bæði heima fyrir og erlendis. Sem svar við öllu þess neikvæða umtali ákváðu Microsoft að blása til sóknar með sennilega einni misheppnuðustu auglýsingaherferð fyrr og síðar, þar sem að engin annar en Jerry Seinfeld átti að lappa upp á laskað orðspor Microsoft með samræðulist sinni ásamt Bill Gates, stofnanda Microsoft ³. Botninn tók svo úr þegar að Intel, einn stærstu samstarfsaðili Microsoft, ákváðu að einungis hluti af tölvubúnaði þeirra yrði uppfærður á hið nýja stýrikerfi.

Þetta var á haustmánuðum 2008 og ofan á mikla gagnrýni, misheppnaða auglýsingaherferð og tapaðan málarekstur, stóð Microsoft frammi fyrir versnandi afkomu sökum efnhagsþrenginganna.

Næsta færsla (væntanleg): Windows 7 & breytt ímynd Microsoft.

¹: Windows Vista – Wikipedia
²: EU vs. Microsoft Competiton Case – Wikipedia
³: Jerry Seinfeld And Bill Gates’ Microsoft Ads Being Pulled – Huffingtonpost
No Comments
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes