26/07/2010
Við settum í loftið okkar fyrsta verkefni fyrir íslenskan markað í dag; vefverslunina www.disir.is, sem að jafnframt er okkar fyrsta e-commerce verkefni.
Síðan keyrir á WordPress og notar wp-ecommerce viðbótina fyrir WP ásamt payment gateway frá Borgun til þess að processa allar greiðslur í gegnum síðuna.
Til að byrja með verður vöruúrvalið bundið við töskurnar sem að eru á boðstólum, en fleiri vörur munu síðan bætast við í náinni framtíð.
Það fóru á milli 100 og 130 tímar í þróa & byggja upp allt kerfið og síðan er optimizuð fyrir alla gerðir vafra utan Internet Explorer 6, þar eð Microsoft hefur gefið það út að fyrritækið muni hætta að styðja við þá útgáfu í náinni framtíð.
Mig langar einnig að þakka starfsfólkinu hjá 1984 sérstaklega, fyrir ómetanlega hjálp við að koma síðunni í loftið.
Heimasíða Dísir.is
Dísir.is á Facebook
27/03/2010
Ef að þú starfar við og/eða ert áhugamaður um grafíska hönnun, vefhönnun, forritun, myndvinnslu, hljóðvinnslu, ljósmyndun, markaðsmál eða útgáfu, þá eru góðar líkur að hugbúnaðurinn frá Adobe komi við sögu að einhverju leiti í þínu daglega lífi.
Ef að svo er, skaltu merkja við mánudaginn 12. apríl n.k., vegna þess að þá mun Adobe hugbúnaðarrisinn kynna til sögunnar Adobe Creative Suite 5, nýjustu útgáfuna af Adobe Creative Suite hugbúnaðarpakkanum.
Adobe hefur af þessu tilefni sett upp heimasíðu sem að telur niður til útgáfu dagsins og veitir auk þess sneak peaks myndbönd á valda þætti hugbúnaðarpakkans.
Hægt er að finna mun ýtarlegri umfjöllun um Adobe Photoshop CS5 hérna: http://designshack.co.uk/articles/software/photoshop-cs5-a-sneak-peek
Ég mun skrifa betur um Adobe Creative Suite 5 og birta kennsluefni þegar að ég hef fengið eintakið mitt upp í hendur. Eru einhverjir fleiri þarna úti sem að ætlar sér að skipta yfir CS5 ?
10/11/2009
Eric Schmidt, forstjóri Google, í viðtali á Fox Business:
Það er tvennt sem að hjó sérstaklega eftir í viðtalinu. Schmidt talar annars vegar um að endurtaka ekki mistökin sem að Microsoft gerðu fyrir 10 árum og hins vegar þá stefnu Google að setja sér ákveðin mörk þegar að kemur að söfnun og geymslu upplýsinga.
Hvað varðar fyrri punktinn, geri ég ráð fyrir að hann sé þarna að vísa í útgáfu Windows 98 og þá stefnu Microsoft að láta eigin hugbúnað fylgja sem órjúfanlegan part af stýrikerfunum sínum; stefnu sem að nú er að mestu leiti liðin undir lok með útgáfu Windows 7. Ég segi að mestu, vegna þess að það að setja inn möguleika á að fjarlægja eitthvað er ekki það sama og að gefa notendum val um hvað þeir vilja hafa í stýrikerfinu til þess að byrja með.
Seinna atriðið finnst mér ekki síður áhugavert, þar eð Schmidt kemur inn á umræðu sem að hefur verið að færast í aukana undanfarna áratugi, og þá kannski sérstaklega með tilkomu Google á markaðinn; þ.e. hversu miklum upplýsingum er löglegt (og siðlegt) að safna, hver á raunverulega þessar upplýsingar og upp að hvaða marki má nota þær ?
Það væri svo efni í sérpistil út af fyrir sig að brjóta viðfangsefnið frekar niður, en ég ætla að láta nægja í bili að vísa þennan fyrirlestur Schmidt sem að hann hélt á sameiginlegri ráðstefnu Google og Pittsburgh Technology Council þann 23 september sl. í Pittsburgh, PA.