Raunveruleikafirring
30/05/2010Íslendingar sendu að ég held einhver skýrustu skilaboð í gær sem að hægt er að senda sem kjósandi á Íslandi. Skilaboðin voru nokkurn veginn svona:
Kæri stjórnmálamaður.
Við, kjósendur á Íslandi, viljum breytingar. Okkur hugnast ekki sú pólitík sem að hefur verið stunduð frá því að fjármálakerfið fór á hliðina. Við viljum ekki innantóma frasa, eða þras um stefnur, strauma, fólk eða aðferðafræði. Við viljum breytta starfshætti og breytt skipulag. Við viljum sjá áþreifanlegan árangur af því að hafa þig á launaskrá hjá okkur næstu 4 árin ásamt því að fá inn nýtt fólk með ferskar hugmyndir sem að ekki er fast í hjólförum pólitísks rétttrúnaðar.
Virðingarfyllst,
Kjósendur á Íslandi.
Eitthvað virðast þau þó komast illa til skila til stjórnmálastéttarinnar. Þannig talar formaður Sjálfstæðisflokksins um kosninga sigur þrátt fyrir að missa tvo borgarfulltrúa og aldrei haft færri fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur í marga áratugi. Framsókn talar líka um sigur þrátt fyrir að eiga engan mann í borgarstjórn í fyrsta sinn í marga áratugi og raunar aðeins tvo á öllu höfuðborgarsvæðinu. VG tala sömuleiðis um sigur. Þannig tala Bjarni, Sigmundur og Steingrímur allir um að þeirra flokkur hafi unnið sigur í gær. Eini stjórnmála leiðtoginn sem að sker sig úr þessum hópi er Jóhanna Sigurðardóttir sem að talar um endalok fjórflokka kerfisins. Ekki svo lítil fullyrðing frá sjálfum forsætisráðherra Íslands.
Ég kaus Besta Flokkinn utan kjörstaða í íslenska sendiráðinu hérna í Kaupmannahöfn. Ég gerði það ekki til þess að refsa ríkisstjórnarflokkunum sérstaklega og ég gerði það ekki til þess að senda fjórflokkunum fingurinn eða einhver dulkóðuð skilaboð (sbr. orð Sóleyjar Tómasdóttur: “En það er óljóst eftir hverju fólk er að kalla”). Það er nefninlega ekki óljóst. Raunar finnst mér skilaboðin ekki hafa getað verið skýrari. Það sama á við um flest alla aðra sem að ég þekki – en einhverra hluta vegna þá virðast það ekki eiga við um stjórnmálamenn á Íslandi.
Sem að er dapurlegt. Really.