Dísir.is vefverslunin opnar

26/07/2010

Við settum í loftið okkar fyrsta verkefni fyrir íslenskan markað í dag; vefverslunina www.disir.is, sem að jafnframt er okkar fyrsta e-commerce verkefni.

Dísir.is | Forsíða

Síðan keyrir á WordPress og notar wp-ecommerce viðbótina fyrir WP ásamt payment gateway frá Borgun til þess að processa allar greiðslur í gegnum síðuna.

Til að byrja með verður vöruúrvalið bundið við töskurnar sem að eru á boðstólum, en fleiri vörur munu síðan bætast við í náinni framtíð.

Það fóru á milli 100 og 130 tímar í þróa & byggja upp allt kerfið og síðan er optimizuð fyrir alla gerðir vafra utan Internet Explorer 6, þar eð Microsoft hefur gefið það út að fyrritækið muni hætta að styðja við þá útgáfu í náinni framtíð.

Mig langar einnig að þakka starfsfólkinu hjá 1984 sérstaklega, fyrir ómetanlega hjálp við að koma síðunni í loftið.

Dísir | Vefverslun

Heimasíða Dísir.is

Dísir.is á Facebook

No Comments

JAM Digital og heimasíðugerðin endalausa

13/06/2010

Vorið 2007 útskrifaðist ég með diploma í multimedia design & communication við Københavns Tekniske Skole (nú Københavns Erhvervsakademi). Útskriftarverkefnið vann ég ásamt tveimur öðrum samstúdentum mínum sem að ég hafði unnið með önnina áður og eftir þó nokkra leit varð niðurstaðan sú að vinna með Avenue Hotel í Kaupmannahöfn að því að endurhanna heimsíðu hótelsins. Við fengum 11, eða næst hæstu einkun fyrir verkefnið (þá var ennþá gefið samkvæmt gamla einkunnarkerfinu víðs vegar í Danmörku, þar sem að 13 var hæsta mögulega einkun) og vorum að vonum hæst ánægðir með árangurinn.

Hótelið vildi hins vegar halda áfram samstarfi við okkur, þannig að úr varð að ég setti á fót fyrirtæki í kringum freelance vinnu af þessu tagi, Fyrirtækið fékk nafnið JAM Digital og fæddist opinberlega þann 19 september 2007. JAM nafnið var fengið með því að taka fyrsta stafinn í nöfnum okkar þriggja, Jón, Alessandro og Mihai.

Fyrirtækið er ennþá starfandi í dag, en með öðrum formerkjum þó. Alessandro og Mihai fluttu erlendis og í staðinn ég fékk nokkra vaska Íslendinga með mér í lið við reksturinn, ásamt því að hafa stórt og gott network af fólki sem að við getum fengið í einstaka verkefni með okkur þegar að við þurfum auka mannskap.

Stærsta vandamálið við fyrirtækjareksturinn hefur þó ekki verið verkefnastaðan. Öðru nær. Nei, stærsta vandamálið hefur verið að koma upp almennilegri heimasíðu fyrir fyrritækið. Lénið sjálft var skráð og keypt sumarið 2007, nokkrum vikum áður en fyrirtækið var formlega stofnað. Það var þó ekki fyrr en í maí 2010, þremur árum á eftir áætlun, sem að það er komin upp alvöru heimasíða og kerfi til þess að skipuleggja verkefni og bókhald í kringum fyrirtækið.

Case in point: svona leit heimasíðan út í september 2007.

JAM Digital heimsíðan í september 2007

Eins og sjá má, var metnaðurinn fyrir því að hafa sterka veru á internetinu alveg gríðarlega mikill. Ég meina, það er ekki eins og að við værum að gera grín að heimasíðum annarra fyrirtækja og tala um hversu mikið betur við gætum auðvitað gert þetta… (svo að ég komi því á framfæri þá hefur viðhorfið hjá okkur breyst mikið síðan þá).

Heimasíðan hélst með nokkurn veginn svipuðu útliti næstu 3 árin. Það var þó ekki vegna metnaðarleysis eða leti (ok kannski smá leti) heldur aðallega vegna þess að við gátum ómögulega komið okkur saman um hvernig að síðan ætti að líta út og hvað ætti að vera á henni. Málið er nefninlega að þegar kemur að hönnun, útliti eða virkni heimasíðu (og reyndar flest allri margmiðlunar vinnu) þá hafa allir og ég meina ALLIR í kringum þig skoðun á því hvernig hún á að líta út, hvað á að vera á henni og hvernig notendur eiga að finna þær upplýsingar sem að eru á henni. Rökstuðningurinn sem að þú kemur með fyrir vinnunni þinni og ákvarðanatökunni í kringum hana, verður einhverra hluta vegna að aukaatriði gagnvart “tilfinningu” annarra fyrir því sem að þú skapar.

Það, og að við höfum haft meira en nóg að gera við að búa til heimasíður fyrir aðra. Eins þversagnarkennt og það nú annars hljómar.

Í öllu falli endurspeglar síðan sem að við erum með uppi í dag það sem að við stöndum fyrir og hverjir styrkleikar okkar og hæfileikar eru. Heimasíða JAM Digital lítur svona út í dag:

JAM Digital | Home 

Það er Carlos Alomar sem að á heiðurinn að útlitshönnunni á bakvið nýju síðuna, Kristín Guðmundsdóttir hannaði öll icons og ég sá um alla kóðunina og notendaviðmótið. Síðan tók um hálft ár í vinnslu, þ.e. þangað til fyrsta hugmyndin leit dagsins ljós og þangað til hún fór live í lok maí sl.

Ferlið þessi þrjú ár frá því að ég stofnaði fyrirtækið hefur verið alveg ofboðslega lærdómsríkt, þó kannski sérstaklega sl. hálft ár, eða frá því að nýja hönnunin leit dagsins ljós og þangað til að hún varð að veruleika á vefnum. Þetta er í fyrsta skipti sem að ég reyni fyrir mér í fyrirtækjarekstri og ýmsir veggir sem að ég hef þurft að reka mig á og lexíur sem að hafa fylgt í kjölfarið. T.a.m. að háir draumar um velgengni á því sviði sem að þú starfar við eiga ósköp lítið skylt við raunveruleikann sem að fylgir því að reka fyrirtæki og lifa af dagdaglega. Ég játa fúslega að það virðist kannski ofboðslega rómantískt að vera þinn egin yfirmaður og lifa á núðlum einstaka mánuði á ári á meðan að þú ert að tryggja þér verkefnastöðu og byggja upp reksturinn, en þegar að þetta er orðið regla frekar en undantekningar þá verðuru að taka því sem vísbendingu um að þú þurfir að endurskoða vinnuaðferðirnar hjá þér og það viðskiptamódel sem að þú hefur tileinkað þér. Ég lít svo að það sé ekkert “ef” eða “kannski” partur af jöfnunni í því sambandi. Annaðhvort virka aðferðirnar hjá þér eða ekki. Ef að þær virka ekki þá verður einfaldlega að prófa aðrar nálganir þangað til að þú finnur þá sem að virkar best fyrir þig og þann rekstur og/eða verkefni sem að þú ert að reyna að skipuleggja (þú getur að sjálfsögðu farið í “blame games” og reynt að fría þig ábyrgð á því sem að þú segir og gerir og það sem að þú kýst að standa fyrir, en þá ertu líka að fresta því að takast á við raunverulega vandamálið. En það er jú valkostur líka).

Í dag er fyrirtækjareksturinn á bakvið JAM Digital aukavinna hjá öllum sem að honum koma með einum eða öðrum hætti; einskonar virtual organization sem að samanstendur af freelancers. Þetta er vissulega krefjandi áhugamál að hafa sem aukavinnu, og tekur oftar en ekki frá okkur ómanneskjulega mikið af bæði tíma og orku (að ég tali nú ekki um þann tímafjölda sem að við höfum lagt í að koma sjálfu fyrirtækinu á fót).

En á meðan að við njótum þess öll að vinna að þessu, og höfum öll ástríðu fyrir því sem að við gerum, þá er það 150% þess virði að halda þessu áfram

Mér finnst eftirfarandi tilvitnun alltaf eiga jafn vel við og vera lýsandi fyrir ferlið sem að á sér stað þegar að kemur að freelance vinnu og/eða fyrirtækjarekstri: “I don’t suffer from insanity. I enjoy every minute of it”. – Höf. ókunnur.

JAM Digital | Portfolio 

Slóðin á heimasíðu JAM Digital er: www.jamdigital.dk

1 Comment

Café Blasen heimasíðan fær nýtt útlit

21/03/2010

Café Blasen er rokkbar staðsettur við Nørregade 6 í miðbæ Kaupmannahafnar, sem að við höfum verið að vinna að vefmálum og markaðssetningu fyrir síðan í apríl á síðasta ári.

Við höfðum hins vegar verið að gæla við þá hugmynd í allnokkurn tíma hvernig væri hægt að gera eitthvað meira og skemmtilegra við útlitið á síðunni. Eitthvað sem að okkur fannst að myndi virkilega endurspegla rokkþemað sem að er einkennismerki staðarins.

Eftir miklar vangaveltur, bollaleggingar og kaffidrykkju komum við upp með nýtt og endurbætt útlit á síðuna sem að fór í loftið fyrir um tveim vikum:

Heimasíða Café Blasen í Kaupmannahöfn

Útlisthönnunnin er unnin af Kristínu Guðmundsdóttur.

No Comments

Avenue heimasíðan komin í loftið

18/03/2010

Fyrir rétt um 6 vikum lauk okkar stærsta og viðmesta freelance verkefni til þessa:
Avenue hótelið í Kaupmannahöfn.

Avenue Hótelið í Kaupmannahöfn

Verkefnið sjálft byrjaði í apríl á síðasta ári og var upprunalega sett á 4 mánaða þróunartíma.  Það síðan stækkaði, breyttist og óx að umfangi en í byrjun febrúar sl. fór nýja síðan í loftið; 10 mánuðum eftir að við byrjuðum á því og 6 mánuðum seinna en upprunalega stóð til.

Síðan styður allar helstu gerðir vafra (fyrir utan Internet Explorer 6) og flestar gerðir farsíma.

Það er svo gaman að segja frá því að í kjölfar þessa verkefnis var ákveðið að búa til fast hlutastarf umsjónamanns vefmála og online marketing ráðgjafa við hótelið.

Heimasíða Avenue Hotel í Kaupmannahöfn

Heimasíða Avenue Hotel í Kaupmannahöfn

No Comments

Lífið í Köben

19/01/2010

Ættingjar og vinir hafa verið að kvarta undan því að ég sé ekki nógu duglegur við segja fréttir af sjálfum mér hérna svo að ég ætla að reyna að bæta aðeins úr því.

Ég var að vinna mestan part síðasta árs sem forritari fyrir lítið hugbúnaðar fyrirtæki, þar sem að ég bjó til kerfi til þess að hjálpa öðrum að fylla inboxið ykkar af rusli. Enn þann dag í dag hef ég ekki minnsta vott af samviskubiti yfir því. En ég hætti þar í lok september, eftir 7 mánaða vinnu, þar sem að yfirmenn mínir sviku ítrekað loforð um launahækkanir.

Tveim mánuðum seinna, eða í lok nóvember var ég headhunted til þess að fara að vinna sem viðmótshönnuður hjá annari stærstu atvinnumiðlun Danmerkur. Ég gjörsamlega elska nýju vinnuna og það skemmir heldur ekki fyrir að útborguð laun þar eru hærri en heildarlaunin sem að ég hafði hjá hugbúnaðarfyrirtækinu.

Í frítíma mínum rek ég eigið fyrirtæki ásamt tveim félögum mínum hérna úti þar sem að við bjóðum upp á alhliða vef þjónustu fyrir einstaklinga og lítil- og meðalstór fyrirtæki. Á síðasta ári settum við 4 síður í loftið og stærsta verkefnið okkar til þessa er að fara í loftið í lok þessarar viku ef að líkum lætur. Á næstu vikum mun svo ný útgáfa af okkar eigin síðu líta dagsins ljós. Sem dæmi um síður sem að við kláruðum má nefna: http://www.cafe-blasen.dk (Rokk bar í Kaupmannahöfn. Ný útgáfa af síðunni væntanleg í byrjun febrúar), http://stopvolden.wordpress.com (pólitískt blogg), http://www.zoekofod.dk (danskur gluggaskreytingar hönnuður) og http://www.hotelchristianiv.dk (lítið fjölskyldu hótel nálægt Rósenborgar kastala í Kaupmannahöfn).

Það er ekkert brúðkaup í farvatninu. Sorry.

Danir kippa sér ekki upp við fréttum af Icesave og koma almennt af fjöllum þegar að ég bendi þeim á að danska ríkið sé meðal lánveitenda í endurreisnaráætlun Íslands, og ég á að koma því á framfæri að það sé lágmark að flugförin til Íslands séu ódýrari fyrir vikið. Good gesture, frændsemi og allt það.

Ég komst inn í tvo háskóla hérna sl. haust, CBS og ITU, en þar sem að ég var bundinn ráðningarsamningi hjá gamla vinnuveitandanum mínum varð ekkert úr því. Ég er þó að gæla við að byrja í mastersnámi í haust í interaction design og multimedia við ITU. Það sem að gerir þennan kost ennþá fýsilegri, er að bæði er ég kominn með vinnu sem að mér líkar stórkostlega vel við og námið er hugsað fyrir fólk á vinnumarkaðinum, þ.e. nám meðfram vinnu.

Ég og meðleigjendur mínir (tveir íslenskir félagar mínir sem að jafnframt eru í fyrirtækja rekstrinum með mér) fluttum í nýja og stærri (og ódýrari!) íbúð í maí sl. Við fluttum s.s alveg heila 200m frá gömlu íbúðinni okkar, eða hinum megin við garðinn. Ég held að það megi færa ágætis rök fyrir því að við kunnum ágætlega við okkur í yuppie suburbia Kaupmannahafnar, öðru nafni Ørestad.

Þar sem að ég komst ekki til Íslands um hátíðarnar (eða öllu heldur tímdi ekki / hafði ekki efni á að kaupa flugmiða á 4700 DKK) er stefnan sett á að koma til Íslands um páskana í staðinn. Ef að allt fer samkvæmt áætlun verð ég á Íslandi frá 26. mars og verð til 6. apríl.

En ég læt þetta gott heita í bili og lofa hér með að vera duglegari við að skrifa.

2 Comments
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes