Posts Tagged ‘Marketing’

2nd November
2009
written by Jon Hnefill

Þann 30 október sl. hélt ég stuttan fyrirlestur á framtíðardögum í gamla skólanum mínum, Københavns Erhvervsakademi (KEA).

Fyrirlesturinn gekk í stuttu máli út á hvernig þú startar þínu eigin fyrirtæki og hvaða úrræði og tól þú getur nýtt þér í ferlinu til þes að ná sem mestum árangri og hámarka afköstin.

Ég kom einnig inn á þau verkefni sem að við höfum verið að vinna að sl. ár, hvað er í farvatninu hjá okkur sem stendur og þau störf sem að ég hef fengist við síðan að námi lauk.

Í lokin minntist ég á hvernig hægt er að nýta félagsleg tengslanet til þess að koma sjálfum þér á framfæri og hvað ber að hafa í huga þegar að þú byggir upp ferilskrána þína.

Ég tók fyrirlesturinn upp en hef því miður ekki haft tíma til þess að vinna með hljóðskrána á stafrænu formi ennþá. Vona að það standi til bóta fljótlega.

25th October
2009
written by Jon Hnefill
(Fyrsta greinin af þremur tileinkuð Windows 7 stýrikerfinu frá Microsoft og nýjum / væntanlegum hugbúnaðarlausnum fyrirtækisins og fjallar um ferlið sem að leiddi til þróunar Windows 7)

Frá Longhorn til Vista til Jerry Seinfeld

Hugbúnaðarrisinn Microsoft hefur í gegnum árin sætt mikilli gagnrýni fyrir að hlusta ekki á notendur sína, hunsa breyttar félags-  og efnahagslegar aðstæður og taka ekki mark á breyttri notendahegðun við þróun og útgáfu á hugbúnaði sínum og stýrikerfum. Þessi afstaða fyrirtækisins náði ákveðnu hámarki með útgáfu Windows Vista árið 2007.

Saga Vista var sorgarsaga frá upphafi til enda; mörkuð misgáfulegri ákvarðanatöku, slæmri markaðssetningu, ennþá verra upplýsingaflæði og, af því er virðist, hálf handahófskenndu þróunarferli. Vinnan við stýrikerfið hófst skömmu eftir útgáfu Windows XP árið 2001 og upphaflega stóð til að byggja grunninn að kerfinu á Windows 2000 Server tækninni, en í miðjum klíðum var horfið frá þeirri hugmynd og byrjað upp á nýtt á vinnu ferlinu með XP sem grunntæknina. Ástæðan var sögð ný tækni, Windows Foundation, sem átti að byggja inn í grunninn á Vista og hefði ekki verið möguleg annars. Vinnuheitið á nýja stýrikerfinu fékk nafnið Longhorn, í höfuðið á uppáhalds bar þeirra sem komu að vinnunni við það (sem að aftur segir kannski eitthvað um hvernig staðið var allri vinnunni). Útgáfudagur var upprunalega áætlður árið 2005, en var frestað aftur og aftur vegna tæknilegra örðugleika, og að lokum neyddust Microsoft til þess að strípa n0tkunarmöguleika stýrikerfisins meira og meira niður þegar að í ljós kom að tæknin og harðbúnaðurinn sem að það notaðist við, réðu ekki við allar stórkostlegu viðbæturnar sem að áttu að verða partur af því. Að lokum var meira að segja Windows Foundation, undirstaðan á bakvið allar helstu ákvarðanatökur við vinnuferlið á stýrikerfinu hingað til, strípað út. Við þetta bættust svo ruglingslegar yfirlýsingar um útgáfudaga, hvaða breytingar stæðu til og fjölmargir lekar á mismunandi þróunarstigum. Fyrstu prófanir á Vista hófust loks á vormánuðum 2006 og það kom í verslanir seinna í byrjun árs 2007 ¹.

Windows vista

Ég var einn þeirra sem að fékk beta invite á fyrstu útgáfuna af Vista frá Microsoft á sínum tíma og setti kerfið upp á eina af vélunum mínum. Ef að ykkur líkaði illa við Vista og UAC (User Access Control) valmöguleikan, þá getið þið rétt ímyndað ykkur martröðina sem að við fyrstu notendurnir þurftum að glíma við. Þú gast ekki slegið UAC af eða á (Microsoft ætluðu s.s. upprunalega að hafa það innbyggðan notkunarmöguleika sem að aðeins sjálfur admin accountinn gat tekið af), Windows sidebarinn tók allt að 20% af vinnsluminninu, sjálft notendaviðmótið (themes)  gat tekið 5 – 10% (eftir því hvað þú valdir að sérsníða það mikið), megnið af helstu forritunum á markaðinum, sem og eigin hugbúnaður Microsoft virkuðu ekki með stýrikerfinu, það studdi ekki stóran part af harðbúnaðinum á þeim tíma og svo mætti lengi telja. Microsoft hlustuðu þó á eitthvað af kvörtunum beta notenda sinna og betrumbættu Vista að hluta til áður en þeir gáfu það út.

Næstu mistök Microsoft í öllu ferlinu fólust í markaðssetningu og eftirfylgdinni á Vista. Windows XP kom t.d. í tveimur útgáfum; Home og Professional. Munurinn á þeim var nokkuð skýr: Home var ætlað meðal tölvunotendanum, sem að ekki þurfti á flóknari netkerfis stillingum Professional útgáfunnar að halda. Vista, aftur á móti, bauð upp á litlar 4 útgáfur;  Home Basic, Home Premium, Business og Ultimate. Munurinn á útgáfunum ? Jú innbyggð forrit frá Microsoft eins og Media Center ásamt backup og protection möguleikum…

Á haustmánuðum 2007 jukust vandræði Microsoft enn frekar þegar að fyrirtækið tapaði málarekstri gegn Evrópusambandinu sem að staðið hafði nánast óslitið síðan 2003 og snérist um markaðsmisnotkun þeirra á hugbúnaði sem að það dreifði sem hluta af Windows stýrikerfinu ².

Í ofanálag uppgvötuðust fljótlega öryggisgallar í Vista sem að gleymst hafði að gera ráð fyrir, stýrikerfið hlaut almennt slæma umfjöllun, Microsoft stóð í málferlum í Bandaríkjunum og sætti vaxandi gagnrýni bæði heima fyrir og erlendis. Sem svar við öllu þess neikvæða umtali ákváðu Microsoft að blása til sóknar með sennilega einni misheppnuðustu auglýsingaherferð fyrr og síðar, þar sem að engin annar en Jerry Seinfeld átti að lappa upp á laskað orðspor Microsoft með samræðulist sinni ásamt Bill Gates, stofnanda Microsoft ³. Botninn tók svo úr þegar að Intel, einn stærstu samstarfsaðili Microsoft, ákváðu að einungis hluti af tölvubúnaði þeirra yrði uppfærður á hið nýja stýrikerfi.

Þetta var á haustmánuðum 2008 og ofan á mikla gagnrýni, misheppnaða auglýsingaherferð og tapaðan málarekstur, stóð Microsoft frammi fyrir versnandi afkomu sökum efnhagsþrenginganna.

Næsta færsla (væntanleg): Windows 7 & breytt ímynd Microsoft.

¹: Windows Vista – Wikipedia
²: EU vs. Microsoft Competiton Case – Wikipedia
³: Jerry Seinfeld And Bill Gates’ Microsoft Ads Being Pulled – Huffingtonpost
20th October
2009
written by Jon Hnefill

Fyrir nokkrum vikum spurðist það út að Facebook væri á síðustu stigum með prófanir á nýju notendaviðmóti fyrir tengslanets síðuna vinsælu. Fyrstu myndir af nýja viðmótinu gáfu til kynna að stöðu uppfærslu boxið yrði minna og að nýjum filter yrði bætt við Fréttayfirlitð (e. news feed) efst í vinstra horninu og því breytt umtalsvert. Hins vegar fékkst ekkert upp gefið hvenær umræddar breytingar yrðu settar í framkvæmd, né heldur hvort, og þá hvaða, breytingar þessu til viðbótar stæðu til.

Nú hefur hins vegar lekið á netið 4 síðna skjal frá Facebook þar sem að breytingarnar á notendaviðmótinu eru útlistaðar á mun nákvæmari hátt. með áherslu á auglýsendur sem að hér eftir munu fá aukið vægi á sjálfri síðunni.

Facebook byrjar á að útlista markmið breytinganna: “að einfalda notkunarmöguleika notandans með því að kynna til sögunnar “helstu fréttir” (e. top news) og “nýlegar fréttir” (e. recent activity) strauma.

fb-homepage-1

Orðrétt segir Facebook:

“Facebook is simplifying the user experience on the home page by introducing Top News and Recent Activity streams. Now, when users log on to Facebook for the first time in a while, they will see the most important stories that they missed while they were away. From there, users can navigate to the real-time stream and toggle between both views throughout their sessions. In addition to making it easier for users to view content that is most relevant to them, this change also speeds up the time it takes for the home page to load and makes birthday reminders more prominent.

Ultimately, Facebook believes these changes will increase engagement on the home page by surfacing more relevant stories to users.”

Til þess að draga þetta aðeins saman: Nýja viðmótið mun leggja áherslu á að skipta á milli helstu frétta og yfirlits (e. view) svo að upplifunin megi verða persónulegri. Það mun minnka þann tíma sem að það tekur síðuna að hlaðast inn og mun sennilega minnka stórkostlega bandvíddar kostnað af hálfu Facebook.

Breytingar á fréttayfirlitinu

Facebook útskýrir síðan af meiri nákvæmni í hverju breytingarnar á fréttayfirlitinu eru fólgnar. Það er hægt að líta á það á tvennskonar hátt. Annars vegar stutt yfirferð (e. summary vies) sem að mun sýna helstu fréttirnar og hins vegar rauntíma yfirlit (e. real-time view) sem að sýnir nýlegar fréttir. Fyrri filterinn er nánast yfirfærður beint frá FriendFeed síðunni (sem að Facebook eignaðist fyrr á árinu) og það lítur út fyrir að Facebook muni breyta núverandi frétta yfirliti efst í vinstra horni síðunnar ansi mikið og leggja meiri áherslu á nýja filterinn eins og áður sagði.

fb-feed-new

Þess utan mun Facebook kynna til sögunnar aftur ógrynni af nýjum upplýsingum í fréttayfirlitnu.

Facebook aftur:

“Facebook has also put information back into the stream that people have asked for, including photo tags, friend acceptances, relationships, Event RSVPs and group memberships. In addition, birthdays are now viewable above the fold.”

Það hefur verið mikið kvartað af notendum síðunnar að þessum upplýsingum hafi verið ýtt til hliðar við síðustu endurhönnun á síðunni svo að þetta er greinilega til marks um að Facebook hlustar á kvartanir og athugasemdir notenda sinna og tekur mark á þeim. Það mættu fleiri vefsetur taka sér þessa strategíu til fyrirmyndar þegar að kemur að því að byggja upp og viðhalda notendahópi sínum.

Virkari auglýsingaþáttaka og aðdáenda síður

new-ads

Facebook vill meina að fyrirhugaðar breytingar séu rós í hnappgat vörumerkja auglýsenda (e. brand advertisers). Dæmi: Að gerast aðdáandi, svar  við viðburðum og sýndar gjafir (e. virtual gifts) munu birtast í fréttastraumum sem innbyggður notkunarmöguleiki kerfisins, sem að aftur gerir auglýsendum mun auðveldara fyrir að koma vörumerki sínu og hönnun á framfæri í gegnum Facebook notendakerfið. Hægri dálkur síðunnar mun einnig verða strípaður niður, með það að markmiðið að auglýsingar fái aukið vægi á síðunni.

Facebook minnist einnig á áhrif breytinganna á aðdáenda síður, sem að fyrirtækið segir að muni auki fjölda þeirra:

“The opportunity to acquire Fans increases with this new home page design. This is due to several reasons including the migration of Fan stories into the center stream, and the increase in “Suggestions” from one to two connections.”

Facebook hópar fá líka endurhönnun

Samhliða breytingunum sem að ég minntist á hér að ofan munu Facebook hópar líka taka umtalsverðum breytingum.

Hingað til hafa Facebook hópar verið eins konar bastarður af notkunarmöguleikum Facebook og meira litið á þá sem hluta af fortíð síðunnar frá sínum fyrstu árum. Núna stendur hins vegar til að gera þá að órjúfanlegum parti alls tengslanetsins og munu hóparnir t.a.m. fá nýrra og ferskara útlit og fleiri notkunarmöguleika sem að hvoru tveggja mun taka meira mið af aðdáendasíðunum og Facebook prófílum heldur en hingað til hefur þekkst. Hópar munu líka fá sinn eigin vegg og birtast í yfirlitinu ásamt athugasemda möguleika.

Hljómar eins og aðdáendasíður ? Hóparnir eru það þegar að kemur að nýju notkunarmöguleikunum, en Facebook útskýrir munin svona:

“Keep in mind that while Groups and Pages now look the same, they still serve different purposes. Groups are for fostering member-to-member collaboration, while Pages remain the best way to broadcast messages to your fans if you are a business, organization, public figure or other entity.”

Að auki muntu einungis sjá uppfærslur frá hópum í nýja yfirlitinu hjá þér þegar að einhver af vinum þínum hefur póstað einhverju á vegg viðkomandi hóps, sem mótvægi við hvern einasta meðlim sem að hefði aftur getað skapað umtalsverð vandræði, sérstaklega þar eð margir hópanna hlaupa á tugum ef ekki  hunduð þúsunda notenda í fjölda (ímyndaðu þér t.d. að fá hvern einasta vegg póst frá “Við neitum að borga skuldir sem við berum ekki ábyrgð á! (Icesave-málið)” hópnum sem að telur hátt í 40.000 meðlimi). Allt í allt virðist þetta vera breytingar sem að hópana hefur sárlega vantað, en gæti þó skyggt á alla þó möguleika sem að þú hefur á Facebook til þess að skapa umræður eða koma þér og/eða fyrirtækinu þínu á framfæri. Ég vil í þessu samhengi benda á greinina Facebook hópar vs. aðdáendasíður: hver er munurinn þar sem að viðfangsefnið er skýrt örlítið nánar.

Þess má svo til gamans geta að Facebook hefur þegar byrjað að henda út sumum af breytingunum fyrir hópana.

 facebookgroups-new

Facebook hefur samt enn sem komið er, ekkert viljað gefa upp um hvenær hinar fyrirhugaðar breytingar muni koma til framkvæmda að fullu, en þar sem að umrætt skjal hefur þegar verið sent til valdra auglýsenda sem að eiga í samstarfi við þá, er líklegt að það verði fljótlega.

Hér er svo skjalið frá Facebook þar sem að breytingarnar eru útlistaðar á mun nákvæmari hátt:

Facebook Document on Homepage Redesign

6th September
2009
written by Jon Hnefill

Fyrir rúmlega 11 árum eignaðist ég minn fyrsta farsíma; sá var af gerðinni Ericsson A1018 ef að ég man rétt (þetta var áður en að Sony og Ericsson sameinuðu farsíma framleiðslu línurnar hjá sér árið 2001). Meðal helstu eiginleika hans var loftnet sem að þú gast skrúfað af og á eftir hentugleikum auk 10 hringitóna sem að komu með símanum (þar sem að stefið úr Stjána Bláa gnæfði yfir hina í vinsældum).

ericsson_a1018 Þetta var jú fyrir tíma myndavélasíma, Facebook, Twitter, WAP, MMS, tölvupósts í farsímum og GPS.

Síminn minnti einna helst á talstöð og þyngdin var eftir því. Ég  fékk auk þess ófáar háðsglósurnar á þessum árum og var margoft spurður hvers vegna í ósköpunum ég þyrfti á svona apparati að halda; Hver ætti svo sem að vilja ná í mann hvenær sem væri og hvað í ósköpunum svona farsíma apparat hefði framyfir gömlu góðu heimasímanna. Needless to say þá er ég ekki spurður að þessu í dag.

Á þessum 11 árum sem að síðan eru liðin, hefur mikið vatn runnið til sjávar í framleiðslu, hönnun og notkunarmöguleikum. Sem betur fer kannski. Farsímar í dag eru ekki aðeins fyrirferðarminni, öruggari og þægilegri í notkun heldur hafa þeir þróast í margmiðlunartæki (e. multimedia device) sem að gera þér kleift að halda utan um öll þín daglegu samskipti, upplýsingar og afþreygingarefni¹. Og þróunin stoppar ekki þar. 3G, qwerty lyklaborð, snertiskjáir, myndvarpar og gps staðsetningartæki eru aðeins örfá dæmi um tækninýjungar sem að eru að slíta barnskónum eða handan við sjóndeildar hringinn.

Sjálfur hef ég átt ógrynnin öll af farsímum í gegnum tíðina; svo marga reyndar að ég hef ekki tölu á þeim lengur. Sá nýjasti í röðinni er Sony Ericsson w995 sem að leysir þar með af Nokia E66 símann minn.

w995

Ég ákvað af þessu tilefni að taka saman lista yfir 10 forrit og vefþjónustur fyrir farsíma sem að eru vel þess virði að skoða nánar. Nánari upplýsingar er að finna á síðunum sjálfum.

  1. ZYB. ZYB er vefþjónusta og farsíma forrit sem að gerir þér klefit að vista alla tengiliði úr símaskránni þinni á netinu og þar með að hafa aðgang að upplýsingunum hvar og hvenær sem er. Þú getur líka séð allar nýjustu Facebook stöðu uppfærslurnar og hvar aðrir ZYB notendur eru staðsettir á korti.
  2. Tiny Twitter. Fyrir ykkur sem að notið Twitter mikið er hér komið lítið forrit sem að keyrir á flestum tegundum farsíma og gerir ykkur kleift að uppfæra Twitter stöðuna hjá ykkur fljótt og örugglega.
  3. YouTube Mobile Application. Forrit til þess að sækja og horfa á myndbönd frá YouTube myndbands hýsingar síðunni.
  4. Google Mail. Forrit til þess auðvelda aðgengi að Google tölvupóst þjónustunni. Býður upp á samtals yfirsýn til þess að lesa tölvupósta betur á minni skjám, spam filterar sjá einungis mikilvæg skilaboð on the go, yfirsýn yfir vistaða tölvupósta (drafts) og viðhengi.
  5. Goosync.com. Forrit til þess að synca Google Calendar við farsímann þinn. Auðveldar til muna daglega skipulagningu ef að þú notar Google Calendar til þess að halda utan um fundi, mannamót, verkefnavinnu o.s.fr.
  6. Zannel.com. Síða sem að býður notendum upp á að uploada ljósmyndum, myndböndum og tónlist og senda á Twitter, Facebook, MySpace, Flickr eða á Wordpress og Blogger blogg þjónusturnar.
  7. Facebook Mobile. Forrit sem að auðveldar þér til muna að uppfæra Facebook stöðu uppfærslur í gegnum farsímann. Forritið býður m.a. upp á að svara skilaboðum, öðrum stöðu uppfærslum og skrifa á veggi hjá fólki á vinalistanum þínum. Að auki geturðu tekið ljósmyndir á símann þinn og uploadað á Facebook síðuna þína.
  8. Free Conference Calls. Þetta forrit gerir nákvæmlega það sem að nafnið gefur til kynna; það gefur notendum möguleika á að hringja ókeypis ráðstefnu símtöl í gegnum Facebook síðuna. Þessi símtöl er hægt að hringja hvar svo sem að þú hefur aðgang að internetinu í gegnum farsímann þinn. Auðvelfar til muna verkefnavinnu í hópnum hjá þér t.a.m. í fjarnámi eða ef að þú ert að leitast eftir ódýrari leiðum til þess að skipuleggja fjarfundi.
  9. LiteFeeds.com. Forrit fyrir farsímann þinn sem að syncar og les RSS feedin þín við sambærilegar netþjónustusíður.
  10. Mobiseer.com. Síða sem að heldur yfirlit yfir vefsíður sem að keyra vel á farsímum, merktu þær fyrir seinni tíma notkun og byggðu upp þína eigin vefsíðu með öllum uppáhalds linkunum þínum fyrir auðveldara aðgengi. Með bestu bookmark þjónustum fyrir farsíma sem að finnast á markaðinum í dag.

¹· Með afþreygingarefni á ég við ljósmyndir, kvikmyndir, tónlist og flest allt það efni sem að hægt er að vista á stafrænu formi.

4th September
2009
written by Jon Hnefill

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra hugtakið “flashmob”. Samkvæmt Wikipedia alfræðiritinu er um að ræða hóp af fólki sem að kemur saman með litlum sem engum fyrirvara á fjölförnum stað til þess að fremja gjörning / viðburð af einhverju tagi í mjög skamman tíma og hverfur jafn snögglega og hann kom. Hugtakið er yfirleitt notað um hópa sem að eru skipulagðir eftir “óhefðbundnari” samskiptaleiðum, líkt á sms skilaboðum, félagslegum tengslanetum eða viral tölvupóstum, en ekki um viðburði sem að eru skipulagðir af almannatenglum, fyrirtækjum eða sem PR stönt. Ég hugsa að “skyndimúgur” eða “skyndihópur” væri ágætis þýðing á hugtakinu (þar eð mob vísar í þessu tilviki til múgs eða múgæsingar).

Með tilkomu miðla eins og YouTube, Facebook og Twitter hefur að auki reynst mun auðveldara að koma efninu á framfæri og að sama skapi að skipuleggja slíka viðburði.

Persónulega þá dýrka ég hugmyndina. Það að brjóta upp hið félagslega norm í margmenni á þennan hátt ber ekki aðeins vott um öðruvísi nálgun á félagslega hegðun, heldur  sannar að það er hægt að framkvæma gjörninga af þessu tagi með lítilli fyrirhöfn og á tiltölulega skömmum tíma. Plús þetta er frábær leið til þess að kynnast nýju fólki og lífgar upp hversdagsleikann ef ekkert annað.

Ég hef einu sinni tekið þátt í “skyndimúg” af þessu tagi, en það var “Copenhagen Freeze” á aðal járnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn þann fyrsta apríl 2008. Þess má geta að sá viðburður var eingöngu skipulagður í gegnum Facebook og hópurinn hittist ca. 15 min. áður til þess að synca úrin svo að allir myndu nú “frjósa” á sama tíma.

Ef vel er að gáð má sjá glitta í mig ca. á min. 3:36 (ef að þið eruð að velta því fyrir ykkur hvað verið er að segja í hátalakerfinu þá er einfaldlega verið að tilkynna að það sé stór hópur af fólki frosið í tíma en að viðskiptavinir þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur).

Nokkrum vikum síðar var leikurinn endurtekinn á Strikinu í Kaupmannahöfn. Ég komst því miður ekki  með í það skiptið.

Freeze conceptið hefur þó verið útfært á mun betri hátt. T.a.m. á Grand Central Station í New York:

og í París:

Hugmyndin um “skyndimúg” (og ég óska hér með eftir betra orði yfir hugtakið flash mob) hefur líka verið tekin skrefinu lengra og heilu dansrútínurnar, kóríugrafaðar, skipulagðar og framkvæmdar á nokkrum min. og síðan hverfur hópurinn jafn snögglega og hann kom saman. Ég sting upp á að þetta verði hér með kallað “dansmúgur” á ástkæra ylhýra.

Nýlega voru t.a.m. 40 ár síðan að hljómsveitin The Who spiluðu lög úr söngleiknum Tommy á Woodstock tónlistarhátíðinni 1969. Af því tilefni tók þessi “dansmúgur” lagið “Pinball Wizard” á torgi í San Fransisco:

Þann 8. júlí sl. kom saman “dansmúgur” í Stokkhólmi til þess að heiðra minningu Michael Jackson. Leikurinn var svo endurtekinn seinna um kvöldið:

Ég veit ekki með ykkur en mér finnst tilhugsunin um stóran hóp af fólki sem að snögglega brýst út í dansi við dúndrandi rokk/dans tónlist alveg einstaklega heillandi. Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert á Íslandi en það væri awesome að sjá þetta gert t.d. á lækjartorgi eða á Austurvelli. Það myndi svo auka enn frekar á áhrifamáttinn ef að þetta væri t.d. gert á sama tíma og ríkisstjórnin og/eða alþingismenn væru að koma út af fundi.

29th June
2009
written by Jon Hnefill

Mozilla hafa nýlokið við útgáfu 3.5 af Firefox vafranum og verður hún aðgengileg til niðurhals á morgun, þann 30. júní.

Hvet sem flesta til þess að sækja nýjustu útgáfuna af vafranum, sem að Mozilla segja bæði þá öruggustu og hraðvirkustu síðan að verkefnið fór af stað fyrir meira en hálfum áratug. Firefox verður hægt að sækja hérna frá og með klukkan 15:50 þann 30. júní.

firefoxWordMarkVertical

Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes