IceSave er ekki lengur trendy

11/09/2009

Google býður upp á ógrynnin af tólum og tækjum fyrir notendur sína. Hluti af starfinu mínu er t.a.m. að fylgjast með 0g safna gögnum fyrir kúnnana mína þannig að þeir geti séð heimsóknir á síðurnar hjá sér yfir ákveðið tímabil, hvaða leitarorð skiluðu flestum heimsóknum til þeirra og hvaða síður eru að skila mestum fjölda heimsókna.

Í seinni tíð hafa þjónustur eins og Google Trends og Twitter Trends bæst við vopnabúr okkar sem að störfum í þessum bransa, þar eð þær gefa ákveðna mynd af því hvaða leitarorð eru líkleg til þess að skila sem flestum niðurstöðum og þær gefa líka vísbendingar um hvernig hegðun fólks á netinu er stöðugt að breytast eftir því sem netið stækkar og breytist.

Annað sem að er áhugavert í þessu samhengi er að skoða gögn yfir hvenær tiltekið orð kemur fyrst fram í leitarniðurstöðum og hvenær að það nær hámarki. Google Trends gefur líka upplýsingar um í hvaða borgum niðurstöðurnar koma oftast fram, tungumál þeirra sem að leita eftir þeim og í hvaða löndum þau eru vinsælust. Í stuttu máli eru þjónustur af þessu tagi gullnáma þeirra sem að starfa við auglýsingaherferðir, almannatengsl og markaðsherferðir, þar eð það er hægt að nýta þær við rannsóknar vinnu og greiningu. Niðurstöðurnar geta líka gefið ákveðna mynd hvernig umræðan þróast og breytist í samfélaginu.

Ef að þú slærð t.d. inn “Icesave” í Google Trends færðu upp ansi áhugavert safn af gögnum.

IceSave nær hámarki sínu í leitarniðurstöðum á seinni hluta árs 2008 um það leiti sem að bankakerfið fór á hliðina. Það byrjaði að koma fram á seinni hluta 2006 (um það leiti sem að reikningarnir eru stofnaðir í Bretlandi) en dalar svo árið eftir og tekur örlítin kipp í byrjun árs 2008 áður en það nær hámarki sínu í lok sama árs. Það sem að af er þessu ári hefur orðið birst ennþá minna í leitarniðurstöðum Google en árin á undan. Það er líka athyglisvert að orðið birtist oftar íi Hollandi og í hollenskum borgum en í Bretlandi og breskum borgum. Orðið birtist oftar á þessum stöðun en á Íslandi.

Séu niðurstöður skoðaðar fyrir einstaka lönd (drop down box efst til hægri) má sjá að á Íslandi hefur Icesave birst oftar í niðurstöðunum um mitt þetta ár (sem að má líklegast rekja undirritunnar ríkisábyrgðar og umræðunni í kjölfarið) en mánuðina á undan. Það má líka lesa út úr þeim niðurstöðum að Íslendingar vissu nánast ekki af tilvist þessara reikninga fyrir árið 2008.

Aviary google-com Picture 1

Það eru til nokkrar leiðir til þess að trakka og fylgjast með Twitter Trends. Dæmið sem að ég nota í þessari færslu er frá síðu sem að heitir Trendistic og býður upp á ágætis sjónræna niðurstöðu af leitarorðum. Sá er hins vegar galli á gjöf njarðar að sú þjónusta getur ekki rakið öll orð jafn langt aftur í tímaröð og t.d. Google Trends getur gert. En sé Icesave slegið inn sést að orðið sveiflast nokkuð á milli daga en virðist hafa náð ákveðnu hámarki þann 2. sept. sl., eða fáeinum dögum eftir að Alþingi samþykkti ríkisábyrgð á Icesave. Þar sést líka að orðið er vinsælla meðal Twitter notenda í Hollandi heldur en t.d. á Íslandi (það getur líka helgast af því að Ísland er ekki jafn framarlega í notkun á samfélagsmiðlum og hinar Evrópuþjóðirnar t.d. – Allavega ekki ennþá).

Þess ber reyndar að geta að Twitter trends fylgja æði oft frétta umfjöllun hverju sinni og geta sérstaklega nýst þeim sem að vilja rekja og fylgjast með þeirri þróun.

Aviary trendistic-com Picture 1

No Comments
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes