10/09/2009
Ég póstaði fyrir einhverjum mánuðum mynd af gengi íslensku krónunnar. Færslan er dagsett 10.06.2009 en myndin sjálf er tekin nokkrum mánuðum fyrr, eða þann 21 apríl á þessu ári.
Í gær vildi svo til að ég átti aftur erindi upp á Kastrup flugvöll svo að ég ákvað að smella af einni mynd í viðbót af gengiskráningartöflu Nordea.
Það eru liðinir meira en 11 mánuðir síðan að íslenska bankakerfið fór á hliðina og samt virðist ekki finnast ein einasta fjármálastofnun sem að treystir sér til þess að eiga viðskipti með íslensku krónuna eða skrá gengið á henni. Þrátt fyrir það finnast ennþá stjórnmálamenn og spekúlantar á Íslandi sem að halda því blákalt fram að þetta sé hinn eini sanni framtíðar gjaldmiðill Íslendinga og að þær þjóðir sem að nú hafa Evru séu í raun alveg jafn illa ef ekki verr staddar en Ísland.
Þá spyr ég á mót:
Hefur allt bankakerfið farið á hliðina á Evrusvæðinu ? Nei.
Þarf gjaldeyrishöft til þess að halda Evrunni gangandi ? Nei.
Hefur Evran verið án gengisskráningar í næstum því heilt ár ? Nei.
16/07/2009
Ég hef verið Evrópusinni í bráðum 3 ár núna. Aðallega vegna þess að ég er sannfærður um að íslenska krónan er búin að vera sem framtíðar gjaldmiðill. Ekki aðeins þarf höft til þess að halda henni gangandi, heldur hefur verðgildi hennar hrunið um meira en 80%. Því fyrr sem að við getum kvatt krónuna og viðurkennt að sá partur í sögu Íslands er búinn, því betra. Ég er þess utan 200% sammála punktum Andrésar Jónssonar sem að hann útlistar hérna.
Ég viðurkenni fúslega að ég var pínu uggandi um hvernig Alþingi myndi afgreiða þetta á tímabili. Tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu skil ég ekki vegna þess að með henni væru lýðræðislega kjörnir fulltrúar þjóðarinnar að kosta til peningum til þess að spyrja hvort að þeir mættu nú örugglega tala við fulltrúa Evrópusambandsins. Þess utan hefur engin af 27 aðildarþjóðum ESB farið þessa leið í inntökuferlinu hingað til (ekki það að það hefði samt ekki komið mér á óvart hefði slík tillaga verið samþykkt). Fullyrðingar um að Ísland glati sjálfstæði sínu standast ekki, þar eð þau fela jafnframt í sér að þau 27 lönd sem að eru aðilar að ESB fyrir séu ekki sjálfstæð. Hef ekki orðið var það to be honest að aðrar Evrópuþjóðir séu ósjálfstæðar, en játa þó að tæknilega séð geta 500 milljónir manns alveg hafa misskilið fullveldis- og sjálfstæðis hugtökin þó svo að mér finnist það ákaflega hæpið ef að ég á vera hreinskilinn.
Alþingi samþykkti hins vegar að fara aðildarviðræður og að bera samninginn undir dóm kjósenda til samþykktar eða synjunnar. I like that. Íslenska þjóðin er nefninlega alveg þokkalega upplýst og ef að henni hugnast samningurinn þá segir hún já við honum. Ef henni hugnast samningurinn ekki þá segir hún nei. Ekki flóknara en svo. Það sem að ég óttast kannski mest er að vissir stjórnmálamenn muni samt sem áður kjósa gegn samningnum á Alþingi þrátt fyrir að þjóðin hafi gefið annað til kynna. Ég óttast hins vegar ekki að þingið muni samþykkja samninginn ef að þjóðin hafnar honum.
Ég hlakka allavega til þess að fá að kjósa!
Hér fyrir neðan eru svo linkar á nokkrar erlendar fréttaveitur um aðildarumsókn Íslands:
Berlingske
La Stampa
BBC
The Vancouver Sun
Radio Nederland Wereldomroep
BusinessWeek
Aljazeera
Daily Press
Deutche Welle
The Washington Examiner
Aftenposten
Danmarks Radio
Yfirlýsing frá SNP – The Scottish National Party
