Posts Tagged ‘Blogg’
Síðan að ég byrjaði að vinna sem viðmótshönnuður hjá atvinnumiðluninni hérna úti hef ég vanið mig á ákveðna ferða rútínu til þess að komast í vinnuna, sem að er í stuttu máli: heiman frá mér – Bella Center station – Kongens Nytorv station – skrifstofa atvinnumiðlunarinnar í miðbæ Kaupmannahafnar. Allt í allt er þetta u.þ.b. klst. ferðalag til og frá vinnu á hverjum degi – sem að verður að teljast nokkuð gott miðað við að þetta er Kaupmannahöfn og ekki óalgegnt að fólk eyði allt að 3 til 4 tímum á dag að komast til og frá vinnu og/eða skóla (sem dæmi má t.d. nefna að skólinn sem að kennir masternámið sem að ég stefni á í haust er í 35 min göngufjarlægð þaðan sem að ég bý).
En á þessum tveim mánuðum sem að ég hef unnið þarna hef ég orðið var við ansi skondnar hliðar á lífinu og tilverunni á ferðum mínum til og frá vinnu, og ef að tækifæri gefst munda ég símann á loft og smelli af eins og einni mynd.
| Mómælendur fyrir utan Bella Center á síðustu dögum loftlagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna (COP15) sem að haldin var í Kaupmannahöfn dagana 7 – 18. desember sl. Ég sakna þess stundum að fá ekki kaffi frá Greenpeace á morgnana og ræða umhverfisverndarsjónarmið við starfsfólkið. |
|
Það hefur bókstaflega kyngt niður snjó hérna í Danmörku sl. daga og vikur og janúar mánuður hefur ekki mælst kaldari í Danmörku í 23 ár. Bæjarstarfsmaðurinn á myndinni er með snjóruðningstæki á einni af tjörnunum undir metro stöðvunum í Ørestad, en þær hafa allar botnfrosið í vetrarhörkunum. |
Ættingjar og vinir hafa verið að kvarta undan því að ég sé ekki nógu duglegur við segja fréttir af sjálfum mér hérna svo að ég ætla að reyna að bæta aðeins úr því.
Ég var að vinna mestan part síðasta árs sem forritari fyrir lítið hugbúnaðar fyrirtæki, þar sem að ég bjó til kerfi til þess að hjálpa öðrum að fylla inboxið ykkar af rusli. Enn þann dag í dag hef ég ekki minnsta vott af samviskubiti yfir því. En ég hætti þar í lok september, eftir 7 mánaða vinnu, þar sem að yfirmenn mínir sviku ítrekað loforð um launahækkanir.
Tveim mánuðum seinna, eða í lok nóvember var ég headhunted til þess að fara að vinna sem viðmótshönnuður hjá annari stærstu atvinnumiðlun Danmerkur. Ég gjörsamlega elska nýju vinnuna og það skemmir heldur ekki fyrir að útborguð laun þar eru hærri en heildarlaunin sem að ég hafði hjá hugbúnaðarfyrirtækinu.
Í frítíma mínum rek ég eigið fyrirtæki ásamt tveim félögum mínum hérna úti þar sem að við bjóðum upp á alhliða vef þjónustu fyrir einstaklinga og lítil- og meðalstór fyrirtæki. Á síðasta ári settum við 4 síður í loftið og stærsta verkefnið okkar til þessa er að fara í loftið í lok þessarar viku ef að líkum lætur. Á næstu vikum mun svo ný útgáfa af okkar eigin síðu líta dagsins ljós. Sem dæmi um síður sem að við kláruðum má nefna: http://www.cafe-blasen.dk (Rokk bar í Kaupmannahöfn. Ný útgáfa af síðunni væntanleg í byrjun febrúar), http://stopvolden.wordpress.com (pólitískt blogg), http://www.zoekofod.dk (danskur gluggaskreytingar hönnuður) og http://www.hotelchristianiv.dk (lítið fjölskyldu hótel nálægt Rósenborgar kastala í Kaupmannahöfn).
Það er ekkert brúðkaup í farvatninu. Sorry.
Danir kippa sér ekki upp við fréttum af Icesave og koma almennt af fjöllum þegar að ég bendi þeim á að danska ríkið sé meðal lánveitenda í endurreisnaráætlun Íslands, og ég á að koma því á framfæri að það sé lágmark að flugförin til Íslands séu ódýrari fyrir vikið. Good gesture, frændsemi og allt það.
Ég komst inn í tvo háskóla hérna sl. haust, CBS og ITU, en þar sem að ég var bundinn ráðningarsamningi hjá gamla vinnuveitandanum mínum varð ekkert úr því. Ég er þó að gæla við að byrja í mastersnámi í haust í interaction design og multimedia við ITU. Það sem að gerir þennan kost ennþá fýsilegri, er að bæði er ég kominn með vinnu sem að mér líkar stórkostlega vel við og námið er hugsað fyrir fólk á vinnumarkaðinum, þ.e. nám meðfram vinnu.
Ég og meðleigjendur mínir (tveir íslenskir félagar mínir sem að jafnframt eru í fyrirtækja rekstrinum með mér) fluttum í nýja og stærri (og ódýrari!) íbúð í maí sl. Við fluttum s.s alveg heila 200m frá gömlu íbúðinni okkar, eða hinum megin við garðinn. Ég held að það megi færa ágætis rök fyrir því að við kunnum ágætlega við okkur í yuppie suburbia Kaupmannahafnar, öðru nafni Ørestad.
Þar sem að ég komst ekki til Íslands um hátíðarnar (eða öllu heldur tímdi ekki / hafði ekki efni á að kaupa flugmiða á 4700 DKK) er stefnan sett á að koma til Íslands um páskana í staðinn. Ef að allt fer samkvæmt áætlun verð ég á Íslandi frá 26. mars og verð til 6. apríl.
En ég læt þetta gott heita í bili og lofa hér með að vera duglegari við að skrifa.
Ég hef haldið úti bloggsíðu með einum eða öðrum hætti í að verða 4 ár. Með hléum þó. Þannig var ég fyrst á bloggcentral.is, síðan flutti ég mig á Blogger, stoppaði stutt við á moggablogginu, fór svo aftur yfir á Blogger og setti loks upp eigin Wordpress bloggsíðu í byrjun þessa árs.
Ástæðurnar fyrir hléunum eru helst þær, að í fyrsta lagi á ég það til að vera alveg einstaklega latur bloggari (sem að útskýrir einstaka viku / mánaðar millibil á milli færslna) og það getur verið tímafrekt að vinna við hverju færslu og setja inn. Fyrra vandamálið er ennþá óleyst að megninu til, en seinna vandamálið hvarf eins og dögg fyrir sólu fyrir um ári síðan.
Þ.e. þegar að ég uppgvötaði Windows Live Writer.
Windows Live Writer er ókeypis hugbúnaður frá Microsoft sem að virkar með öllum helstu bloggkerfum á markaðinum í dag (Blogger, Windows Live Spaces, Sharepoint, Wordpress, TypePad etc). Það er tiltölulega einfalt í notkun og býður þess utan upp á viðbótir til þess auka möguleika þess. Mér vitanlega virkar það ekki með neinu af íslenku bloggkerfunum eins og t.d. blog.is, blogcentral.is og blogger.is. Hægt er að tengja fleiri en einn blogg aðgang við forritið sem að gerir það mun auðveldara að halda utan um allt efni ef að þú heldur úti nokkrum síðum samtímis t.d.
Eftir að uppsetningunni er lokið fáið þið upp notendaviðmót sem að lítur nokkurn veginn svona út:
Athugið að forritið tekur mið af því hvernig þemastílsniðið er á blogginu ykkar.
En við skulum byrja á að brjóta niður einstaka þætti í notendaviðmótinu.
Aðal valmynd:
Efst í vinstra horninu er aðal valmyndina og þar fyrir neðan koma flýtimöguleikar fyrir færslur og síður. Einn af sterkustu kostunum við forritið er að þú getur búið til og unnið að nýjum færslum til birtingar á blogginu þínu, en þú getur líka búið til nýjar síður (e. pages) og unnið með þær á alveg sama hátt.
Flýtivalmyndin hefur 4 valkosti; Publish, New, Open og Save draft.
Publish birtir viðkomandi færslu / síðu beint á bloggið þitt. New býr til nýja færslu í forritinu, en með því að ýta á örina við hliðina á geturðu valið að búa til nýja síðu. Open gefur upp möguleika á opna annaðhvort færslu frá blogginu sem að þú hefur þegar samþykkt til birtingar, eða uppkast (sem að getur verið vistað á tölvunni eða á blogg síðunni. Save draft gefur þér kost á að vista uppkast að færslunni í tölvunni þinni, á sjálfum blogg aðganginum eða að vista á blogg aðganginum og vinna áfram með færsluna í blogg stjórnborðinu í vafranum (t.d. TypePad, Blogger, Wordpress, Sharepoint etc).
Athugið einnig að flýtileiðirnar (e. keyboard shortcuts), sem að flestar eru listaðar í aðal valmyndinni, eru frábær aðferð til þess að gera alla vinnu með bloggfærslur og/eða síður mun skilvirkari en ella.
Útlitsstjórnun efnis:
Fyrir neðan flýti valmyndina eru valmöguleikar fyrir útlitsstjórnun á færslum og síðum.
Fyrir þau ykkar sem að hafið unnið mikið með Microsoft Office eða Open Office ætti valmyndin að líta nokkuð kunnulega út:
- Innsetning (e.paste) efnis ef að þið afritið (e. copy) texta t.d. úr word skjali, frá vefsíðu eða úr pdf fæl (e. clipboard).
- Ógylding (e. undo).
- Stjórnun málsgreina og fyrirsagna í texta (e. paragraphs and headings).
- Feitletrun texta (e. bold).
- Skáletrun texta (e. italic).
- Undirstrikun texta (e. underline).
- Yfirstrikun texta (e. strikethrough).
- Leturgerð og stjórnun (e. font).
- Lista stjórnun með númerum (e. numbering).
- Lista stjórnun með punktum (e. bullets).
- Tilvitnun (e. block quote).
- Skipting texta (t.a.m. ef að þið viljið aðeins birta hluta færslunnar með “lesið meira” (e. read more) hlekk neðst (e. split post).
- Jafnið texta til vinstri (e. align left).
- Jafnið texta fyrir miðju (e. align center).
- Jafnið texta til hægri (e. align right).
- Jafnið texta til hægri og vinstri (e. justified).
- Stjórnun hlekkja (e. insert hyperlink).
- Stjórnun mynda (e. insert picture).
- Stjórnun taflna og einstakra þátt í töflu (e. table).
- Setja inn einstaka viðbætur (e. insert). [innsk. höf. Þetta er flýtileið fyrir viðbæturnar í hægri dálknum í forritinu. Sjá kaflann “Uppköst, birtar færslur og viðbætur” neðar í þessari færslu fyrir frekari útskýringar].
Fyrirsögn og textasvæði:
Sjálft texta svæðið er nokkuð auðskiljanlegt. Efst seturðu tiltil færslunnar / síðunnar og þar fyrir neðan sjálfan textann.
Eftir því sem að textinn er lengri, hverfur auða svæðið fyrir neðan (gráa svæðið á þessari mynd).
Þetta hjálpar ekki aðeins til við að stjórna betur efnistökum, heldur gefur líka ákveðna mynd af því hversu mikinn texta þú ert að vinna með hverju sinni.
Stjórnun færsluslóða og efnisflokka:
Fyrir neðan textasvæðið eru svo möguleikar til þess að skilgreina betur hvaða slóð (e. slug) þú vilt gefa færslunni (t.d. til þess að auðvelda leitarvélum að finna síðuna þína) og hvaða efnis- og orð flokka (e. categories and tags) þú vilt gefa hverri færslu. Windows Live Writer sækir þá flokka sem að þú hefur þegar sett upp og bætir við stillingarnar.
Þú getur falið svæðið og kallað fram aftur með örini efst í hægra horninu á svæðinu.
Það er hægt að bæta við efnis- og orð flokkum og forritið vistar þá sjálfkrafa á blogg aðganginum þínum.
Þú hefur einnig möguleika á að velja höfund færslu (séu þeir fleiri en einn á viðkomandi blogg síðu) og varið einstaka færslur / síður með notendanafni og aðgansorði ef að þú vilt t.d. takmarka aðgang að þeim.
Forritið býður líka upp á möguleika að setja tíma á færslu birtingu, sem að þýðir að færslan / síðan mun einungis verða sýnileg eftir þann tíma.
Efst til vinstri hefurðu svo Edit, Preview og Source þar sem að þú getur valið á milli þess að vinna með texta og útlit beint í notendaviðmótinu (Edit), skoða hvernig færslan / síðan kemur út á síðunni þinni (Preview) og fyrir lengra komna er hægt að vinna og bæta við HTML og CSS kóðann (Source).
Uppköst, birtar færslur og viðbætur:
| Í hægri dálkinum í forritinu hefurðu flýtileiðir á sjálfa bloggsíðuna og stjórnborðið (opnar nýjan glugga / flipa í vafranum þínum), yfirlit yfir uppköst (e. Drafts) og nýlega birtar færslur (e. Recently posted) og lista yfir þær viðbætur (e. Insert) sem að koma með forritinu og verið sóttar sér. Þú sérð alltaf þrjú nýjustu uppköstin eða þrjár nýlegustu færslurnar í yfirlitinu. Viðbæturnar sem að fylgja með forritinu eru: Hyperlink, Picture, Photo album, Table, Map, Tags og Video. Hægt er að sækja fjöldann allan af viðbótum fyrir forritið, sem að spanna allt frá biblíu tilvitnunum til kóðunarvinnu úr Visual Studio. Þær sem að ég hef sett upp hérna eru: Silverlight Streaming (hægt að setja inn Silverligt kóða sem að er keyrður annarsstaðar frá), Flickr Image (sækir myndir frá Flickr til þess að setja inn í einstaka færslur), SkyDrive Embed (til þess að setja inn skjöl sem að geymd eru á SkyDrive hýsingar þjónustunni frá Microsoft), File(s) (tengir skjöl við færsluna og hleður inn á bloggþjónustuna), SnagIt Screen Capture (tekur skjáborðsmyndir með SnagIt og setur beint inn í hverja færslu) og WikiPedia Link (tengir orð og/eða setningu beint við samsvarandi WikiPedia grein). Þessar og fleiri viðbætur fyrir Windows Live Writer má sækja hér. |
Það er ein viðbót sem að mig langar að fara aðeins nánar út í. Picture.
Picture viðbótin í forritinu gerir alla vinnu með myndir fyrir færslur / síður mikið einfaldari og skilvirkari. T.d. er hægt að bæta við einföldum effectum, vinna með contrast, setja inn watermark, hreyfa þær til (e. tilt), breyta stærðar hlutföllum og skera (e. crop) beint inni í viðbótinni án þess að þurfa að opna annað myndvinnslu forrit til þess.
Í hnotskurn:
- Forritið þykir frekar létt og einfalt í notkun.
- Það er ókeypis en virkar enn sem komið er einungis á Windows XP, Windows Vista og Windows 7.
- Hægt er að tengja fleiri en einn bloggaðgang við forritið og vinna með efni hverja síðu fyrir sig, eða birta sömu færsluna á fleiri en einni síðu.
- Það virkar ekki með neinum íslenskum bloggþjónustum eftir því sem að ég kemst næst.
- Ef að færslur / síður eru vistaðar sem uppkast á sjálfu blogginu, getur hver sem að líka hefur Windows Live Writer og aðgang að sama bloggi, sótt uppkastið og unnið með hjá sér.
- Það gerir samvinnu fyrir t.d. verkefna vinnu mun auðveldari, þar eð t.d. blogg síða fyrir hópinn ykkar gæti auðveldað samvinnu og rannsóknar vinnu sem og leyft kennaranum ykkar að fylgjast með.
- Á þessari síðu eru ágætis leiðbeiningar fyrir Windows Live Writer fyrir þá sem að vilja vita meira.
- Windows Live Writer forritið er hægt að sækja hérna.
- Allar viðbætur er hægt að sækja hérna og þarf að setja upp sérstaklega. Windows Live Writer getur ekki sett þær upp sjálfkrafa.
Fyrir nokkrum vikum spurðist það út að Facebook væri á síðustu stigum með prófanir á nýju notendaviðmóti fyrir tengslanets síðuna vinsælu. Fyrstu myndir af nýja viðmótinu gáfu til kynna að stöðu uppfærslu boxið yrði minna og að nýjum filter yrði bætt við Fréttayfirlitð (e. news feed) efst í vinstra horninu og því breytt umtalsvert. Hins vegar fékkst ekkert upp gefið hvenær umræddar breytingar yrðu settar í framkvæmd, né heldur hvort, og þá hvaða, breytingar þessu til viðbótar stæðu til.
Nú hefur hins vegar lekið á netið 4 síðna skjal frá Facebook þar sem að breytingarnar á notendaviðmótinu eru útlistaðar á mun nákvæmari hátt. með áherslu á auglýsendur sem að hér eftir munu fá aukið vægi á sjálfri síðunni.
Facebook byrjar á að útlista markmið breytinganna: “að einfalda notkunarmöguleika notandans með því að kynna til sögunnar “helstu fréttir” (e. top news) og “nýlegar fréttir” (e. recent activity) strauma.
Orðrétt segir Facebook:
“Facebook is simplifying the user experience on the home page by introducing Top News and Recent Activity streams. Now, when users log on to Facebook for the first time in a while, they will see the most important stories that they missed while they were away. From there, users can navigate to the real-time stream and toggle between both views throughout their sessions. In addition to making it easier for users to view content that is most relevant to them, this change also speeds up the time it takes for the home page to load and makes birthday reminders more prominent.
Ultimately, Facebook believes these changes will increase engagement on the home page by surfacing more relevant stories to users.”
Til þess að draga þetta aðeins saman: Nýja viðmótið mun leggja áherslu á að skipta á milli helstu frétta og yfirlits (e. view) svo að upplifunin megi verða persónulegri. Það mun minnka þann tíma sem að það tekur síðuna að hlaðast inn og mun sennilega minnka stórkostlega bandvíddar kostnað af hálfu Facebook.
Breytingar á fréttayfirlitinu
Facebook útskýrir síðan af meiri nákvæmni í hverju breytingarnar á fréttayfirlitinu eru fólgnar. Það er hægt að líta á það á tvennskonar hátt. Annars vegar stutt yfirferð (e. summary vies) sem að mun sýna helstu fréttirnar og hins vegar rauntíma yfirlit (e. real-time view) sem að sýnir nýlegar fréttir. Fyrri filterinn er nánast yfirfærður beint frá FriendFeed síðunni (sem að Facebook eignaðist fyrr á árinu) og það lítur út fyrir að Facebook muni breyta núverandi frétta yfirliti efst í vinstra horni síðunnar ansi mikið og leggja meiri áherslu á nýja filterinn eins og áður sagði.
Þess utan mun Facebook kynna til sögunnar aftur ógrynni af nýjum upplýsingum í fréttayfirlitnu.
Facebook aftur:
“Facebook has also put information back into the stream that people have asked for, including photo tags, friend acceptances, relationships, Event RSVPs and group memberships. In addition, birthdays are now viewable above the fold.”
Það hefur verið mikið kvartað af notendum síðunnar að þessum upplýsingum hafi verið ýtt til hliðar við síðustu endurhönnun á síðunni svo að þetta er greinilega til marks um að Facebook hlustar á kvartanir og athugasemdir notenda sinna og tekur mark á þeim. Það mættu fleiri vefsetur taka sér þessa strategíu til fyrirmyndar þegar að kemur að því að byggja upp og viðhalda notendahópi sínum.
Virkari auglýsingaþáttaka og aðdáenda síður
Facebook vill meina að fyrirhugaðar breytingar séu rós í hnappgat vörumerkja auglýsenda (e. brand advertisers). Dæmi: Að gerast aðdáandi, svar við viðburðum og sýndar gjafir (e. virtual gifts) munu birtast í fréttastraumum sem innbyggður notkunarmöguleiki kerfisins, sem að aftur gerir auglýsendum mun auðveldara fyrir að koma vörumerki sínu og hönnun á framfæri í gegnum Facebook notendakerfið. Hægri dálkur síðunnar mun einnig verða strípaður niður, með það að markmiðið að auglýsingar fái aukið vægi á síðunni.
Facebook minnist einnig á áhrif breytinganna á aðdáenda síður, sem að fyrirtækið segir að muni auki fjölda þeirra:
“The opportunity to acquire Fans increases with this new home page design. This is due to several reasons including the migration of Fan stories into the center stream, and the increase in “Suggestions” from one to two connections.”
Facebook hópar fá líka endurhönnun
Samhliða breytingunum sem að ég minntist á hér að ofan munu Facebook hópar líka taka umtalsverðum breytingum.
Hingað til hafa Facebook hópar verið eins konar bastarður af notkunarmöguleikum Facebook og meira litið á þá sem hluta af fortíð síðunnar frá sínum fyrstu árum. Núna stendur hins vegar til að gera þá að órjúfanlegum parti alls tengslanetsins og munu hóparnir t.a.m. fá nýrra og ferskara útlit og fleiri notkunarmöguleika sem að hvoru tveggja mun taka meira mið af aðdáendasíðunum og Facebook prófílum heldur en hingað til hefur þekkst. Hópar munu líka fá sinn eigin vegg og birtast í yfirlitinu ásamt athugasemda möguleika.
Hljómar eins og aðdáendasíður ? Hóparnir eru það þegar að kemur að nýju notkunarmöguleikunum, en Facebook útskýrir munin svona:
“Keep in mind that while Groups and Pages now look the same, they still serve different purposes. Groups are for fostering member-to-member collaboration, while Pages remain the best way to broadcast messages to your fans if you are a business, organization, public figure or other entity.”
Að auki muntu einungis sjá uppfærslur frá hópum í nýja yfirlitinu hjá þér þegar að einhver af vinum þínum hefur póstað einhverju á vegg viðkomandi hóps, sem mótvægi við hvern einasta meðlim sem að hefði aftur getað skapað umtalsverð vandræði, sérstaklega þar eð margir hópanna hlaupa á tugum ef ekki hunduð þúsunda notenda í fjölda (ímyndaðu þér t.d. að fá hvern einasta vegg póst frá “Við neitum að borga skuldir sem við berum ekki ábyrgð á! (Icesave-málið)” hópnum sem að telur hátt í 40.000 meðlimi). Allt í allt virðist þetta vera breytingar sem að hópana hefur sárlega vantað, en gæti þó skyggt á alla þó möguleika sem að þú hefur á Facebook til þess að skapa umræður eða koma þér og/eða fyrirtækinu þínu á framfæri. Ég vil í þessu samhengi benda á greinina Facebook hópar vs. aðdáendasíður: hver er munurinn þar sem að viðfangsefnið er skýrt örlítið nánar.
Þess má svo til gamans geta að Facebook hefur þegar byrjað að henda út sumum af breytingunum fyrir hópana.
Facebook hefur samt enn sem komið er, ekkert viljað gefa upp um hvenær hinar fyrirhugaðar breytingar muni koma til framkvæmda að fullu, en þar sem að umrætt skjal hefur þegar verið sent til valdra auglýsenda sem að eiga í samstarfi við þá, er líklegt að það verði fljótlega.
Hér er svo skjalið frá Facebook þar sem að breytingarnar eru útlistaðar á mun nákvæmari hátt:
Ef að Egyptar til forna hefðu haft aðgang að ADSL tengingu hefðu plágurnar í Exodus verið 11, þar sem að vandamál með óstabíla nettengingu hefði verið troðið einhversstaðar inn á milli fljúgandi froska og uppskerubrests.
Það getur verið ákaflega óþægilegt (svo vægt sé til orða tekið) þegar að nettengingin dettur niður. Sumir (les: Facebook fíklar) missa af öllum félagslegum samskiptum sem og tenglsum við raunveruleikann, einhverjir falla á skilafrest með verkefni og enn aðrir hjúfra sig í fósturstellinguna á eldhúsgólfinu á barmi taugaáfalls.
Svo eru þeir líka sem að bara fá sér göngutúr eða lesa góða bók þangað til að tengingin kemst aftur í lag.
Ég og meðleigjendur mínir þrifum t.d. íbúðina okkar hátt og lágt seinast þegar að nettengingin datt út. – og við erum ekki að tala um að þurrka bara af og ryksuga. Nei. Við dauðhreinsuðum íbúðina hátt og lágt, kalkhreinsuðum baðherbergið og uppþvottavélina og bónuðum hvern einasta glugga. – Sem að er að sjálfsögðu alls ekkert sad.
Til þess að komast að því nákvæmlega hversu mikil fíknin er, skaltu bera saman viðbrögðin hér að neðan og síðan vega og meta hversu aumkunarverð(ur) þú raunverulega ert:
Fyrsta stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Athugar allar leiðslur og hvort að þú getir stolist inn á netið hjá nágrannanum. Síðan ferðu og gerir eitthvað annað.
Á meðan að þú bíður: Lest góða bók, horfir á kvikmynd eða ferð í göngutúr. Er þetta trick question ?
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn og heldur síðan áfram að gera hvað svo sem að þú tókst þér fyrir hendur.
Annars stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Reynir að stela tengingunni hjá nágrannanum. Gengur með ferðatölvuna um íbúðina ef nauðsyn krefur til þess að finna bestu móttöku skilyrðin.
Á meðan að þú bíður: Horfir á kvikmynd með ferðatölvuna við hliðina á þér allan tímann svo að þú getir séð þegar að tengingin kemst aftur í lag.
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn. Tékkar reglulega á 30 min. fresti ef að ske kynni að vandamálið leysist af sjálfu sér.
Þriðja stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Reynir að stela tengingunni hjá nárgrannanum. Gerir síðan nokkrar tilraunir til þess að giska á aðgangsorðin á læstu tengingunum. Gengur með ferðatölvuna um íbúðina til þess að finna bestu móttöku skilyrðin.
Á meðan að þú bíður: Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur. Ferð síðan að horfa á kvikmynd en manst allt í einu að þí horfir bara á kvikmyndir sem að þú strímar af netinu. Reynir að tengjast aftur.
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn. Gengur síðan frá ferðatölvunni ofan í tösku og ferð á kaffihús sem að bíður upp á ókeypis tengingu.
Fjórða stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Sjokk og vantrú. Athugar síðan allar netkerfis stillingar hjá þér, tekur í sundur routerinn og módemið og gerir kerfisbundnar prófanir á nærliggjandi segulsviði og útvarpsbylgjum. Reynir að stela nettengingu nágrannanna og starir að lokum vel og lengi á módemið þitt með tárin í augunum.
Á meðan að þú bíður: Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur. Ferð síðan að horfa á kvikmynd en manst allt í einu að þí horfir bara á kvikmyndir sem að þú strímar af netinu. Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur.
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn og pakkar því næst borðtölvunni og ferðatölvunni ofan í tösku og bókar herbergi á hóteli sem að bíður upp á fullnægjandi internet tengingu.
Fimmta stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Ferð upp á þak og beinir heimagerða wifi loftnetinu þínu í átt að bókasafninu í hverfinu. Ef að það vikar ekki, reynirðu að tengja farsímann við tölvuna. Ef að það vikar ekki reynirðu að hakka nettenginuna hjá nágrannanum. Húkkar að lokum upp gamla 56k dial up módemið þitt við tölvuna og loggar þig inn á netþjónustu sem að þú borgar af í hverjum mánuði fyrir ef að ske kynni að eitthvað þessu líkt myndi gerast.
Á meðan að þú bíður: Skrifar langa og tilfinningaríka bloggfærslu um hvernig netþjónustu aðilinn þinn er að kosta þig bæði tíma og peninga sökum vanhæfni sinnar til þess að bregðast fljótt og örugglega við fyrirspurnum þínum. Þú sendir afrit af færslunni til allra bæjar- /borgarstjórnafulltrúa ásamt kjörnum fulltrúum á Alþingi Íslendinga í þínu kjördæmi.
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir undir eins í netþjónustu aðilann þinn og segir upp þjónustu samningnum. Ef að það eru ekki aðrir þjónustuaðilar sem að bjóða upp á ADSL eða ljósleiðara á þessu svæði, flyturðu í annað póstnúmer / bæjarfélag.
Fjölmiðlar vestanhafs hafa fjallað mikið um ræðu Barack Obama til Bandarískra skólabarna sem að hann hélt í dag.
Obama tilkynnti fyrir nokkrum vikum að hann myndi flytja ávarp til bandarískra skólabarna og voru skólayfirvöld hvött til þess að sýna ræðuna beint í skólum. Mikil umræða skapaðist í kjölfarið um hvort að réttlætanlegt væri að menntastofnanir tækju beinan þátt í innanríkis pólitík á þennan hátt, en talsmenn hvíta hússins bentu á móti á að ræðan væri ekki um stefnumál forsetans í menntamálum, heldur frekar ávarp og hugleiðingar sem að ættu erindi til skólabarna um gjörvöll Bandaríkin.
Sandra Abrevaya:
“This isn’t a policy speech,” said Sandra Abrevaya, a spokeswoman for the Department of Education. “It’s designed to encourage kids to stay in school. The choice on whether to show the speech to students is entirely in the hands of each school. This is absolutely voluntary.”
Til þess að bregðast við gagnrýni og gefa skólayfirvöldum betri yfirsýn yfir ræðu forsetans, birti hvíta húsið transcript af ræðunni á heimasíðu sinni. Ákvörðunin kemur í sjálfu sér ekki á óvart þar sem að heimasíða hvíta hússins býður upp bein samskipti án aðkomu fjölmiðla.
Neðst í þessari færslu er svo að finna ræðu forsetans í heild sinni, þökk sé Scribd.com
Ég, ásamt fleirum, hjó þó sérstaklega eftir því að ræðunni ber Obama mikið lof á stofnedur Twitter, Facebook og Google og segir þá frumkvöðla sem að börn ættu að taka sér til fyrirmyndar:
“The story of America isn’t about people who quit when things got tough…It’s the story of students who sat where you sit 250 years ago, and went on to wage a revolution and found this nation. Students who sat where you sit 75 years ago who overcame a Depression and won a world war; who fought for civil rights and put a man on the moon. Students who sat where you sit 20 years ago who founded Google, Twitter and Facebook and changed the way we communicate with each other.”
En á meðan að Sergey Brin, Larry Page, Mark Zuckerberg, Biz Stone og Ev Williams eru hylltir sem frumkvöðlar nýrrar kynslóðar, er að finna ansi beitta sneið á Microsoft vs. Apple í nótum við ræðuna:
“Students are encouraged to invent the “next iPhone” and not to “spend every waking hour in front of the TV or with that Xbox”
Ouch.
Hér er svo ræða forsetans:
President Obama’s Address to American Schoolchildren, 8 September 2009
Fyrir rúmlega 11 árum eignaðist ég minn fyrsta farsíma; sá var af gerðinni Ericsson A1018 ef að ég man rétt (þetta var áður en að Sony og Ericsson sameinuðu farsíma framleiðslu línurnar hjá sér árið 2001). Meðal helstu eiginleika hans var loftnet sem að þú gast skrúfað af og á eftir hentugleikum auk 10 hringitóna sem að komu með símanum (þar sem að stefið úr Stjána Bláa gnæfði yfir hina í vinsældum).
Á þessum 11 árum sem að síðan eru liðin, hefur mikið vatn runnið til sjávar í framleiðslu, hönnun og notkunarmöguleikum. Sem betur fer kannski. Farsímar í dag eru ekki aðeins fyrirferðarminni, öruggari og þægilegri í notkun heldur hafa þeir þróast í margmiðlunartæki (e. multimedia device) sem að gera þér kleift að halda utan um öll þín daglegu samskipti, upplýsingar og afþreygingarefni¹. Og þróunin stoppar ekki þar. 3G, qwerty lyklaborð, snertiskjáir, myndvarpar og gps staðsetningartæki eru aðeins örfá dæmi um tækninýjungar sem að eru að slíta barnskónum eða handan við sjóndeildar hringinn.
Sjálfur hef ég átt ógrynnin öll af farsímum í gegnum tíðina; svo marga reyndar að ég hef ekki tölu á þeim lengur. Sá nýjasti í röðinni er Sony Ericsson w995 sem að leysir þar með af Nokia E66 símann minn.
Ég ákvað af þessu tilefni að taka saman lista yfir 10 forrit og vefþjónustur fyrir farsíma sem að eru vel þess virði að skoða nánar. Nánari upplýsingar er að finna á síðunum sjálfum.
- ZYB. ZYB er vefþjónusta og farsíma forrit sem að gerir þér klefit að vista alla tengiliði úr símaskránni þinni á netinu og þar með að hafa aðgang að upplýsingunum hvar og hvenær sem er. Þú getur líka séð allar nýjustu Facebook stöðu uppfærslurnar og hvar aðrir ZYB notendur eru staðsettir á korti.
- Tiny Twitter. Fyrir ykkur sem að notið Twitter mikið er hér komið lítið forrit sem að keyrir á flestum tegundum farsíma og gerir ykkur kleift að uppfæra Twitter stöðuna hjá ykkur fljótt og örugglega.
- YouTube Mobile Application. Forrit til þess að sækja og horfa á myndbönd frá YouTube myndbands hýsingar síðunni.
- Google Mail. Forrit til þess auðvelda aðgengi að Google tölvupóst þjónustunni. Býður upp á samtals yfirsýn til þess að lesa tölvupósta betur á minni skjám, spam filterar sjá einungis mikilvæg skilaboð on the go, yfirsýn yfir vistaða tölvupósta (drafts) og viðhengi.
- Goosync.com. Forrit til þess að synca Google Calendar við farsímann þinn. Auðveldar til muna daglega skipulagningu ef að þú notar Google Calendar til þess að halda utan um fundi, mannamót, verkefnavinnu o.s.fr.
- Zannel.com. Síða sem að býður notendum upp á að uploada ljósmyndum, myndböndum og tónlist og senda á Twitter, Facebook, MySpace, Flickr eða á Wordpress og Blogger blogg þjónusturnar.
- Facebook Mobile. Forrit sem að auðveldar þér til muna að uppfæra Facebook stöðu uppfærslur í gegnum farsímann. Forritið býður m.a. upp á að svara skilaboðum, öðrum stöðu uppfærslum og skrifa á veggi hjá fólki á vinalistanum þínum. Að auki geturðu tekið ljósmyndir á símann þinn og uploadað á Facebook síðuna þína.
- Free Conference Calls. Þetta forrit gerir nákvæmlega það sem að nafnið gefur til kynna; það gefur notendum möguleika á að hringja ókeypis ráðstefnu símtöl í gegnum Facebook síðuna. Þessi símtöl er hægt að hringja hvar svo sem að þú hefur aðgang að internetinu í gegnum farsímann þinn. Auðvelfar til muna verkefnavinnu í hópnum hjá þér t.a.m. í fjarnámi eða ef að þú ert að leitast eftir ódýrari leiðum til þess að skipuleggja fjarfundi.
- LiteFeeds.com. Forrit fyrir farsímann þinn sem að syncar og les RSS feedin þín við sambærilegar netþjónustusíður.
- Mobiseer.com. Síða sem að heldur yfirlit yfir vefsíður sem að keyra vel á farsímum, merktu þær fyrir seinni tíma notkun og byggðu upp þína eigin vefsíðu með öllum uppáhalds linkunum þínum fyrir auðveldara aðgengi. Með bestu bookmark þjónustum fyrir farsíma sem að finnast á markaðinum í dag.
¹· Með afþreygingarefni á ég við ljósmyndir, kvikmyndir, tónlist og flest allt það efni sem að hægt er að vista á stafrænu formi.
Tilkoma tengslaneta eins og Facebook og Twitter hefur ekki aðeins gjörbreytt umgjörðinni í kringum það hvernig að við eigum samskipti okkar á milli og deilum efni; Þau hafa einnig breytt því hvernig tölvuþrjótar vinna og aðhafast. Eitt besta dæmið um þessa þróun eru vírusar, svindl síður og önnur óværa sem að berst á milli fólks í gegnum Facebook, Twitter og MSN spjall forritið.
Vírusarnir geta verið allt frá linkum inn á vefsíður sem að koma fyrir ýmiskonar óværu í tölvunni hjá þér, vefsíður sem að kópera útlit og stíl þekktustu tenglsanetanna til þess að komast yfir notendanöfn og aðgangsorð og/eða vefsíður sem að bjóða þjónustu fyrir viðkomandi tengslanet og/eða spjallforrit undir fölsku yfirskini. Óværan dreifir sér oftast með því að senda út spam skilaboð á alla á vinalistanum þínum í formi falksra skilaboða sem að oftast vísa inn á vefsíður þar sem að óværan er hýst. Markmiðið er yfirleitt að valda eins miklum skaða og/eða usla og frekast er unnt, jafnframt því að komast yfir sem mest magn persónu upplýsinga. Til eru aðrar og vægari útgáfur sem að hafa það að markmiði að auglýsa “nytjavörur” af öllum stærðum og gerðum svo sem megrunarpillur, stinningarlyf, klámsíður og svo þar fram eftir götunum. Oftast er um að ræða löglegar vörur, en eru siðferðislega á afar gráu svæði.
Dæmi um slíka vírusa og óværu er t.d. StalkDaily ormurinn sem að fór eins og eldur í sinu á Twitter fyrir um 3 mánuðum ásamt Juste svindl síðunni (sem að líka breiddist út á fleiri tengslanet) og mickeyy orminum sem að ásótti Twitter notendur oftar en einu sinni, Goldbase.be vírusinn bitnaði harkalega á Facebook notendum og það gerðu líka Areps.at, FBAction.net, FBStarter.com, Ligromind, Junfunrun og Bulitre ásamt ógrynni af svindl síðum, varasömum boðslyklum og Twitter trends svindlum. MSN vírusar eru af svipuðum meiði en slíkir vírusar geta þó verið enn skæðari en þeir sem að herja á tengslanetin. Á meðan að hægt er að verjast tengslanets óværu með að því að hunsa skilaboðin og herða öryggisstillingarnar í vöfrunum, geta MSN breytt úr sér í gegnum vinalistann hjá þér, án þess að viðkomandi verði einu sinni var við það. Dæmi um slíkt geta verið vírusar sem að senda út sýktar skrár í gegnum MSN og breiða sér þannig út framhjá internet stillingum og öryggis síum. Þau dæmi sem að ég hef nefnt hérna eru þó bara toppurinn á mun mun stærri ísjaka og það eru ekki einvörðungu Facebook og Twitter tengslanetin eða MSN / Windows Live Messenger spjallforritið sem að verða fyrir slíkum árásum.
En hvað er hægt að gera til þess að sporna við þessum vírusum ? og hversu mikil ógn stafar raunverulega af óværum sem að herja á tengslanetin og spjallforritin ? Fyrir það fyrsta, þá ættirðu að breyta aðgangsorðinu þínu á Facebook, Twitter eða MSN (eftir því hvert þessara neta / forrita hefur verið að senda út á vinalistann þinn), því næst skaltu skanna tölvuna eftir vírusum og trójuhestum og hreinsa út það sem að finnst. Sértu í vafa um hvernig eigi að gera það, þá fáðu einhvern þér til aðstoðar eða farðu með tölvuna til fagaðila sem að getur veitt þér aðstoð við að hreinsa hana. Mundu að gera afrit af öllum skjölum og stillingum sem að þú vilt geyma. Loks skaltu fara yfir öll notendanöfn og aðgangsorð sem að þú ert með fyrir tölvupóstþjónustur eins og Gmail, Hotmail og Yahoo og internet heimabankann þinn. Ef að þú hefur verið að nota sama notendanafn og aðgangsorð á einhverjum þessara staða mæli ég með að þú breytir því eins fljótt og þú getur. Það eru nefninlega ágætis líkur á að óværan hafi komið sér þægilega fyrir í kerfisstillingunum á tölvunni þinni og dundi sér í mestu makindum við að skrá niður allar þær persónuupplýsingar, notendanöfn og aðgangsorð sem að þú kannt að geyma, og sendi upplýsingarnar samviskusamlega til eigenda sinna.
Það eru til ókeypis vírusvarnir og open source vírusvarnir, en þú hefur enga tryggingu fyrir því að þær nái að grípa alla þá óværu sem að berst í tölvuna þína og í gegnum netið. Þú getur aukið á öryggið með því að setja upp spyware removal forrit sem að ver tölvuna enn frekar, ásamt því að nýta online vírus forrit til þess að skanna tölvuna þína með reglulegu millibili.
Ógnin er vissulega til staðar og því fleiri tengslanet sem að skjóta upp kollinum, því meira af upplýsingum er hægt að komast yfir. það sem af er þessu ári hafa slíkar árásir aukist um 36% miðað við sama tíma í fyrra, og ef að tölur yfir fjölda árása eru bornar saman á milli ára má sjá aukningu um lítil 240% samkvæmt nýjustu tölum. Í þessum tölum er þó ekki talað um allan þann fjölda árása sem að fjármálastofnanir og opinberar stofnanir verða fyrir á ári hverju; stofnanir sem að geyma óheyrilegt magn viðkvæmra persónu upplýsinga nota bene. Árásir á greiðsluþjónustur á netinu tróna samt á toppnum yfir aukin fjölda árása með 285% aukingu í fjölda árása á milli ára. Samkvæmt sömu mælingum eiga 46% allra árása eiga sér stað á Bandaríkin, 4,7% á Kanada, 4,5% á Rússland og 4% á Frakkland. Sérstaka athygli vekur að fast á hæla Frakklands kemur Danmörk með um 4% allra árása. Hin Norðurlöndin mælast innan fráviksmarka. Ég fann ekki tölur um fjölda árása á Ísland við vinnslu þessarar greinar.
En hver skyldi vera einfaldasta, áhrifamesta og ódýrasta leiðin til þess að koma í veg fyrir að þú verðir fyrir Facebook, Twitter og MSN óværum ?
Svar: Ekki smella á linka inn á síður sem að þú kannast ekki við og treystir ekki.
Mozilla hafa nýlokið við útgáfu 3.5 af Firefox vafranum og verður hún aðgengileg til niðurhals á morgun, þann 30. júní.
Hvet sem flesta til þess að sækja nýjustu útgáfuna af vafranum, sem að Mozilla segja bæði þá öruggustu og hraðvirkustu síðan að verkefnið fór af stað fyrir meira en hálfum áratug. Firefox verður hægt að sækja hérna frá og með klukkan 15:50 þann 30. júní.
The Lonely Islands er hópur af grínistum sem að samanstendur af Akiva Schaffer, Jorma Taccone og Andy Samberg.
Þeir koma allir frá Berkley í Kaliforníu og byrjuðu ferilinn í skemmtanabransanum með stuttum grín þáttum sem að þróuðust út í grín tónlistarmyndbönd og einn sjónvarpsþátt í fullri lengd. Seinna meir fluttust þeir til New York og vöktu athygli Lorne Michaels frá Saturday Night Live sem að bauð þeim að koma fram í þáttunum.
Þegar að þangað var komið skrifuðu þeir “Lazy Sunday” sem að þykir með betri tónlistar grín myndböndum sem að gerð hafa verið. Lagið varð að undir eins að internet senation og varð til þess að hópurinn fékk fastan sess hjá SNL með grín tónlistar myndböndin sem að hafa verið auðkenni þeirra sl. ár. Lög eins og “Lazy Sunday”, “Dick in a box”, “Jizz in my pants, “Like a boss”, “I’m on a boat” og núna seinast “Mother lover” hafa fest þá endanlega í sessi sem einhverju fremstu grínista Bandaríkjanna um þessar mundir.
Nýjasta framlag þeirra félaga er lagið “Mother lover” sem að er samið í tilefni mæðradagsins í ár. Glöggir lesendur ættu að taka eftir að sá sem að syngur með þeim í myndbandinu er sá hinn sami og syngur með þeim í “Dick in a box” og hann var einnig kynnir á MTV Europe Music Awards þegar að hátíðin var haldin í Kaupmannahöfn árið 2006.
Myndböndin sem að hópurinn hefur sent frá sér eru hér fyrir neðan:
Lazy Sunday:
Dick in a box:
Jizz in my pants:
Like a boss:
I’m on a boat:
Mother lover:
Uppfært: Það er greinilegt að NBC leggja sig mikið fram um að reyna fjarlægja allt efni frá SNL sem að þeir hafa ekki gefið samþykki fyrir að birtist á netinu. Þeir birtu YouTube Cease and Desist vegna “Lazy Sunday” myndbandsins fyrir einhverjum árum síðan en skiptu svo um skoðun 5 mánuðum seinna. Þrátt fyrir djarfar yfirlýsingar um að netið sé ekki óvinur þeirra og samstarfssamning um birtingu efnis á YouTube, þá hefur myndbandið við lagið “Mother lover” verið fjarlægt af öllum helstu hýsingar síðunum.

