Netið
Mozilla hafa nýlokið við útgáfu 3.5 af Firefox vafranum og verður hún aðgengileg til niðurhals á morgun, þann 30. júní.
Hvet sem flesta til þess að sækja nýjustu útgáfuna af vafranum, sem að Mozilla segja bæði þá öruggustu og hraðvirkustu síðan að verkefnið fór af stað fyrir meira en hálfum áratug. Firefox verður hægt að sækja hérna frá og með klukkan 15:50 þann 30. júní.
Ég er hættur að telja þau skipti sem að ég hef reynt að halda úti bloggsíðu. Það byrjaði fyrst árið 2005 (og þá meira í tengslum við námið frekar en hitt), fljótlega eftir það færði ég mig yfir á blogcentral í smá tíma, því næst yfir á blogspot, svo stoppaði ég stutt við á Bloggþjónustu Morgunblaðsins og loks fór ég aftur á blogspot en nennti því svo ekki lengur og hef verið “heimilislaus” í netheimum síðan 2007.
Á þessu ári uppgvötaði ég hins vegar undirlén, marghátta gagnagrunnstengingar, Windows Live Writer, Wordpress 2.7.1 og plugins. Á mannamáli myndi það þýða einfaldari aðferð til að uppfæra bæði bloggið og heimasíðuna og halda utan um alla “vinnu utan vinnu” verkefna. Kaldhæðnin í seinustu setningu er sú að ég er að leita að vinnu þessa dagana og sé mér farborða sem freelancer í millitíðinni.
Verandi trúr faginu, þá er heimasíðan ennþá í vinnslu og, af fenginni reynslu, kemst hún í loftið “fljótlega.” Það er jafnframt vinsælasta dagsetning margmiðlunarhönnuða við skil á verkefnum næst á eftir “seinna” og “von bráðar.”
Ég náði allavega að setja upp þessa síðu. Njótið á meðan að það varir.
