Archive of articles classified as' "Menntun"

Back home

JAM Digital og heimasíðugerðin endalausa

13/06/2010

Vorið 2007 útskrifaðist ég með diploma í multimedia design & communication við Københavns Tekniske Skole (nú Københavns Erhvervsakademi). Útskriftarverkefnið vann ég ásamt tveimur öðrum samstúdentum mínum sem að ég hafði unnið með önnina áður og eftir þó nokkra leit varð niðurstaðan sú að vinna með Avenue Hotel í Kaupmannahöfn að því að endurhanna heimsíðu hótelsins. Við fengum 11, eða næst hæstu einkun fyrir verkefnið (þá var ennþá gefið samkvæmt gamla einkunnarkerfinu víðs vegar í Danmörku, þar sem að 13 var hæsta mögulega einkun) og vorum að vonum hæst ánægðir með árangurinn.

Hótelið vildi hins vegar halda áfram samstarfi við okkur, þannig að úr varð að ég setti á fót fyrirtæki í kringum freelance vinnu af þessu tagi, Fyrirtækið fékk nafnið JAM Digital og fæddist opinberlega þann 19 september 2007. JAM nafnið var fengið með því að taka fyrsta stafinn í nöfnum okkar þriggja, Jón, Alessandro og Mihai.

Fyrirtækið er ennþá starfandi í dag, en með öðrum formerkjum þó. Alessandro og Mihai fluttu erlendis og í staðinn ég fékk nokkra vaska Íslendinga með mér í lið við reksturinn, ásamt því að hafa stórt og gott network af fólki sem að við getum fengið í einstaka verkefni með okkur þegar að við þurfum auka mannskap.

Stærsta vandamálið við fyrirtækjareksturinn hefur þó ekki verið verkefnastaðan. Öðru nær. Nei, stærsta vandamálið hefur verið að koma upp almennilegri heimasíðu fyrir fyrritækið. Lénið sjálft var skráð og keypt sumarið 2007, nokkrum vikum áður en fyrirtækið var formlega stofnað. Það var þó ekki fyrr en í maí 2010, þremur árum á eftir áætlun, sem að það er komin upp alvöru heimasíða og kerfi til þess að skipuleggja verkefni og bókhald í kringum fyrirtækið.

Case in point: svona leit heimasíðan út í september 2007.

JAM Digital heimsíðan í september 2007

Eins og sjá má, var metnaðurinn fyrir því að hafa sterka veru á internetinu alveg gríðarlega mikill. Ég meina, það er ekki eins og að við værum að gera grín að heimasíðum annarra fyrirtækja og tala um hversu mikið betur við gætum auðvitað gert þetta… (svo að ég komi því á framfæri þá hefur viðhorfið hjá okkur breyst mikið síðan þá).

Heimasíðan hélst með nokkurn veginn svipuðu útliti næstu 3 árin. Það var þó ekki vegna metnaðarleysis eða leti (ok kannski smá leti) heldur aðallega vegna þess að við gátum ómögulega komið okkur saman um hvernig að síðan ætti að líta út og hvað ætti að vera á henni. Málið er nefninlega að þegar kemur að hönnun, útliti eða virkni heimasíðu (og reyndar flest allri margmiðlunar vinnu) þá hafa allir og ég meina ALLIR í kringum þig skoðun á því hvernig hún á að líta út, hvað á að vera á henni og hvernig notendur eiga að finna þær upplýsingar sem að eru á henni. Rökstuðningurinn sem að þú kemur með fyrir vinnunni þinni og ákvarðanatökunni í kringum hana, verður einhverra hluta vegna að aukaatriði gagnvart “tilfinningu” annarra fyrir því sem að þú skapar.

Það, og að við höfum haft meira en nóg að gera við að búa til heimasíður fyrir aðra. Eins þversagnarkennt og það nú annars hljómar.

Í öllu falli endurspeglar síðan sem að við erum með uppi í dag það sem að við stöndum fyrir og hverjir styrkleikar okkar og hæfileikar eru. Heimasíða JAM Digital lítur svona út í dag:

JAM Digital | Home 

Það er Carlos Alomar sem að á heiðurinn að útlitshönnunni á bakvið nýju síðuna, Kristín Guðmundsdóttir hannaði öll icons og ég sá um alla kóðunina og notendaviðmótið. Síðan tók um hálft ár í vinnslu, þ.e. þangað til fyrsta hugmyndin leit dagsins ljós og þangað til hún fór live í lok maí sl.

Ferlið þessi þrjú ár frá því að ég stofnaði fyrirtækið hefur verið alveg ofboðslega lærdómsríkt, þó kannski sérstaklega sl. hálft ár, eða frá því að nýja hönnunin leit dagsins ljós og þangað til að hún varð að veruleika á vefnum. Þetta er í fyrsta skipti sem að ég reyni fyrir mér í fyrirtækjarekstri og ýmsir veggir sem að ég hef þurft að reka mig á og lexíur sem að hafa fylgt í kjölfarið. T.a.m. að háir draumar um velgengni á því sviði sem að þú starfar við eiga ósköp lítið skylt við raunveruleikann sem að fylgir því að reka fyrirtæki og lifa af dagdaglega. Ég játa fúslega að það virðist kannski ofboðslega rómantískt að vera þinn egin yfirmaður og lifa á núðlum einstaka mánuði á ári á meðan að þú ert að tryggja þér verkefnastöðu og byggja upp reksturinn, en þegar að þetta er orðið regla frekar en undantekningar þá verðuru að taka því sem vísbendingu um að þú þurfir að endurskoða vinnuaðferðirnar hjá þér og það viðskiptamódel sem að þú hefur tileinkað þér. Ég lít svo að það sé ekkert “ef” eða “kannski” partur af jöfnunni í því sambandi. Annaðhvort virka aðferðirnar hjá þér eða ekki. Ef að þær virka ekki þá verður einfaldlega að prófa aðrar nálganir þangað til að þú finnur þá sem að virkar best fyrir þig og þann rekstur og/eða verkefni sem að þú ert að reyna að skipuleggja (þú getur að sjálfsögðu farið í “blame games” og reynt að fría þig ábyrgð á því sem að þú segir og gerir og það sem að þú kýst að standa fyrir, en þá ertu líka að fresta því að takast á við raunverulega vandamálið. En það er jú valkostur líka).

Í dag er fyrirtækjareksturinn á bakvið JAM Digital aukavinna hjá öllum sem að honum koma með einum eða öðrum hætti; einskonar virtual organization sem að samanstendur af freelancers. Þetta er vissulega krefjandi áhugamál að hafa sem aukavinnu, og tekur oftar en ekki frá okkur ómanneskjulega mikið af bæði tíma og orku (að ég tali nú ekki um þann tímafjölda sem að við höfum lagt í að koma sjálfu fyrirtækinu á fót).

En á meðan að við njótum þess öll að vinna að þessu, og höfum öll ástríðu fyrir því sem að við gerum, þá er það 150% þess virði að halda þessu áfram

Mér finnst eftirfarandi tilvitnun alltaf eiga jafn vel við og vera lýsandi fyrir ferlið sem að á sér stað þegar að kemur að freelance vinnu og/eða fyrirtækjarekstri: “I don’t suffer from insanity. I enjoy every minute of it”. – Höf. ókunnur.

JAM Digital | Portfolio 

Slóðin á heimasíðu JAM Digital er: www.jamdigital.dk

1 Comment

Lífsgildi hinna ómenntuðu

28/12/2009

Steve Jobs og Bill Gates fjalla um lífsgildin og forgangsröðun. Báðir droppuðu úr skóla og báðir hafa breytt nútíma samskiptum og vinnuaðferðum eins og við þekkjum þau.

Báðir fyrirlestrarnir eru aðgengilegir á www.ted.com

No Comments

Ræða Barack Obama til Bandarískra skólabarna

8/09/2009

Fjölmiðlar vestanhafs hafa fjallað mikið um ræðu Barack Obama til Bandarískra skólabarna sem að hann hélt í dag.

Obama tilkynnti fyrir nokkrum vikum að hann myndi flytja ávarp til bandarískra skólabarna og voru skólayfirvöld hvött til þess að sýna ræðuna beint í skólum. Mikil umræða skapaðist í kjölfarið um hvort að réttlætanlegt væri að menntastofnanir tækju beinan þátt í innanríkis pólitík á þennan hátt, en talsmenn hvíta hússins bentu á móti á að ræðan væri ekki um stefnumál forsetans í menntamálum, heldur frekar ávarp og hugleiðingar sem að ættu erindi til skólabarna um gjörvöll Bandaríkin.

Sandra Abrevaya:

“This isn’t a policy speech,” said Sandra Abrevaya, a spokeswoman for the Department of Education. “It’s designed to encourage kids to stay in school. The choice on whether to show the speech to students is entirely in the hands of each school. This is absolutely voluntary.”

Til þess að bregðast við gagnrýni og gefa skólayfirvöldum betri yfirsýn yfir ræðu forsetans, birti hvíta húsið transcript af ræðunni á heimasíðu sinni. Ákvörðunin kemur í sjálfu sér ekki á óvart þar sem að heimasíða hvíta hússins býður upp bein samskipti án aðkomu fjölmiðla.

Neðst í þessari færslu er svo að finna ræðu forsetans í heild sinni, þökk sé Scribd.com

Ég, ásamt fleirum,  hjó þó sérstaklega eftir því að ræðunni ber Obama mikið lof á stofnedur Twitter, Facebook og Google og segir þá frumkvöðla sem að börn ættu að taka sér til fyrirmyndar:

“The story of America isn’t about people who quit when things got tough…It’s the story of students who sat where you sit 250 years ago, and went on to wage a revolution and found this nation. Students who sat where you sit 75 years ago who overcame a Depression and won a world war; who fought for civil rights and put a man on the moon. Students who sat where you sit 20 years ago who founded Google, Twitter and Facebook and changed the way we communicate with each other.”

En á meðan að Sergey Brin, Larry Page, Mark Zuckerberg, Biz Stone og Ev Williams eru hylltir sem frumkvöðlar nýrrar kynslóðar, er að finna ansi beitta sneið á Microsoft vs. Apple í nótum við ræðuna:

“Students are encouraged to invent the “next iPhone” and not to “spend every waking hour in front of the TV or with that Xbox”

Ouch.

Hér er svo ræða forsetans:

President Obama’s Address to American Schoolchildren, 8 September 2009

No Comments
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes