Ísland
Svona in case að þið væruð að velta því fyrir ykkur hvernig íslensku krónunni vegnaði á alþjóðavettvangi…
Myndin er tekin þann 18. nóvember sl.
Fékk eftirfarandi tölvupóst fyrr í dag:
“Reykjavík, 23. nóvember 2009
Ágæti lesandi.
Bréf þetta er sent til allra þeirra sem hafa skráð sig á heimasíðu Þjóðarhags. Vinnuhópur áhugamanna innan Þjóðarhags hefur haldið nokkra fundi til að skilgreina markmið okkar.
Markmið Þjóðarhags:
1. Að veita Arion banka (áður Kaupþingi) aðhald svo Hagar fari í gegnsætt söluferli þar sem jafnræðis sé gætt.
2. Að bjóða fram annan valkost við sölu á Högum frá ríkisbankanum.
3. Að koma Högum í dreifða eignaraðild. Stefnt er að því að hluthafar verði taldir í þúsundum og að enginn einn aðili geti eignast ráðandi hlut í félaginu.
4. Að brjóta upp markaðsráðandi stöðu Haga með því að selja einingar frá félaginu og efla samkeppni.Styrkurinn liggur í fjöldanum
Einstaklingar innan vinnuhóps Þjóðarhags hafa hingað til ekki viljað koma fram undir nafni af ýmsum ástæðum. Ýmsir hafa reynt að gera þetta tortryggilegt. Þjóðarhagur snýst ekki um persónur heldur markmið sem þúsundir landsmanna eru sammála um. Við erum að vinna gegn öflugu fjármála- og fjölmiðlaveldi og munum ekki gefa fyrri eigendum Haga kost á að ráðast að einstökum persónum í fjölmiðlum.
Þegar Arion banki setur Haga í réttlátt og gegnsætt söluferli mun koma í ljós að Þjóðarhagur vinnur að dreifðri eignaraðild. Þangað til verður Brynjar Níelsson talsmaður Þjóðarhags.
Helsti styrkur okkar er sá mikli fjöldi sem hefur skráð sig á heimasíðuna. Við biðjum þig að hjálpa okkur að afla enn fleiri stuðningsmanna með því að hvetja vini og vandamenn til að skrá sig hjá www.thjodarhagur.isHagar ekki til sölu?
Arion banki upplýsti í gær að Hagar væru ekki til sölu. Þó hefur verið upplýst að Arion hafi meirihluta í stjórn 1998 ehf. og að fjárhagsleg endurskipulagning standi fyrir dyrum með nýjum eigendum. Þetta virðist mótsögn, en stjórnendur bankans vilja ekkert tjá sig. Í fréttatilkynningu bankans í dag segir að ríkisbankinn skoði nú tilboð, m.a. frá nýjum fjárfestum, og beri saman við aðra kosti.
Hvers vegna bankinn skoðar tilboð, m.a. frá nýjum aðilum, en vill ekki ræða við Þjóðarhag er mikil ráðgáta sem engin svör fást við. Það er vandséð hvernig Arion ríkisbankinn ætlar að gæta þess jafnræðis sem stjórnsýslulög kveða á um.
Væntanlega hafir nýir erlendir fjárfestar mestan áhuga á markaðsráðandi stöðu Haga, þeirri sömu og Þjóðarhagur vinnur gegn.
Þjóðarhagur er ekki af baki dottinn, heldur vinnur áfram að markmiðum sínum og mun brátt kynna næstu skref. “
Ég er einn þeirra þúsunda sem að skráðu sig hjá Þjóðarhag. Ekki vegna þess að ég sé einhver sérstakur áhugamaður um verslanarekstur eða fjárfestingar. Nei. Ég er hins vegar einlægur áhugamaður um opna og gegnsæja stjórnsýslu og þar á meðal um bætt viðskipta- og rekstrarumhverfi fjármálastofnanna.
Þess vegna finnst mér skjóta einstaklega skökku við að Arion Banki geti á einum degi hafnað tilboði Þjóðarhags hópsins og að sama skapi eru skýringar bankans í þeim efnum ákaflega ótrúverðugar í ljósi þess að nokkrum dögum seinna ætlar þessi sami banki að taka sér meira en mánuð í að fara tilboð fyrrverandi (núverandi ?) stjórnenda Haga.
Ef að bankinn þarf raunverulega þennan tíma í að fara yfir tilboð um hvernig nýju fjármagni verði komið inn í fyrirtækið og rekstur þess tryggður, hvers vegna var þá hægt að hafna öðru tilboði um fjármagn á nokkura klst fundi tveim dögum áður ?
Að sama skapi þætti mér forvitnilegt að vita hvers vegna stjórnendur Haga hafa fengið þennan umþóttunartíma í að tryggja fjármagn þegar að önnur fyrirtæki, sum hver með mun betri lausafjársstöðu, hafa ekki notið sömu meðferðar hjá bankanum. Að auki eru bankarnir enn sem komið er allir í ríkiseigu og þá hefði ég jafnframt gert ráð fyrir að sömu verklagsreglur ættu að ganga jafnt yfir alla viðskiptavini bankanna. En miðað við þær upplýsingar sem að fram hafa komið, njóta sumir viðskiptavina meiri forrréttinda en aðrir; þ.e. virðast hafa mun rýmri tíma til þess að tryggja áframhaldandi rekstur.
Óskandi væri að bankarnir eða viðkomandi fagráðherrar gæfu skýringar hvað þetta varðar.
Fyrir aðeins meira en ári síðan var ég að vinna fyrir danska fjármálastofnun sem vef forritari. Vinnan var bæði vel launuð og mórallinn á vinnustaðnum var með allra besta móti. Það breyttist hins vegar eftir að stjórnvöld á Íslandi ákváðu að þjóðnýta Glitni að meirihlutanum til í lok september 2008. Eftir það fann ég að yfirmenn mínir voru meira og minna á tánum og viku eftir að neyðarlögin voru sett var ég boðaður á fund þar sem að mér var tjáð að bankinn gæti ekki lengur haft mig í vinnu. Ástæðan var sögð hagræðing en ég tók hana svona mátulega trúanlega; aðallega vegna þess að viðkomandi banki var einn af fáum í Danmörku sem að stóð þokkalega traustum fótum í kjölfar efnahagskreppunnar og gerir enn.
Ég frétti það svo nokkrum vikum seinna frá fyrrum samstarfsfélögum mínum, að yfirmenn mínir hefðu óttast að orðspor bankans byði hnekki ef að það spyrðist út að það væri Íslendingur sem að sæi um allt notendaviðmót heimasíðunnar ásamt internetbankanum þeirra. En þar sem að ég gat ekki fengið þetta staðfest nema með óformlegu samtali, gat ég (og get enn) lítið gert til þess að leita réttar míns. Uppsögnin var sögð í hagræðingarskyni og ekkert sem að ég get gert til þess að hrekja þá fullyrðingu. Þar stendur einfaldlega orð á móti orði.
Ég fann hins vegar fljótlega eftir þetta að bankinn sem að um ræðir var ekki eina fyrirtækið í Danmörku sem að hafði efasemdir um ágæti Íslendinga. Hvert sem að ég fór í leit að vinnu, lokuðust dyrnar fljótt og örugglega þegar að þjóðerni mitt kom til tals. Ég brá því á það eina ráð sem að ég sá í stöðunni: að minnast hvergi í atvinnu umsókninni minni á hvaðan ég væri og ég hætti t.a.m. að nota sér íslenska stafi þegar að ég skrifaði nafnið mitt. – og viti menn. Um leið og það stóð hvergi stafkrókur um Ísland, létu atvinnu viðtölin ekki á sér standa og nokkrum vikum seinna var ég kominn með vinnu.
Enn þann dag í dag hef ég þann háttinn á að minnast ekki á hvaðan ég er nema að ég sé spurður að því að fyrra bragði og ég geri ennþá sem minnst úr þjóðerninu. Sem að er slæmt. Einu sinni hafði ég nefninlega á tilfinningunni að ég gæti verið stoltur af því að vera Íslendingur. Í dag upplifi ég það meira sem byrði og er búinn að gera meira og minna í þetta ár sem að liðið er frá bankahruninu. Það sem að er þó kannski sínu verst er að, þökk sé vissum stjórnmálamönnum heima á Íslandi, þá stefnir allt í að það verði svo nokkur ár í viðbót.
Ég póstaði fyrir einhverjum mánuðum mynd af gengi íslensku krónunnar. Færslan er dagsett 10.06.2009 en myndin sjálf er tekin nokkrum mánuðum fyrr, eða þann 21 apríl á þessu ári.
Í gær vildi svo til að ég átti aftur erindi upp á Kastrup flugvöll svo að ég ákvað að smella af einni mynd í viðbót af gengiskráningartöflu Nordea.
Það eru liðinir meira en 11 mánuðir síðan að íslenska bankakerfið fór á hliðina og samt virðist ekki finnast ein einasta fjármálastofnun sem að treystir sér til þess að eiga viðskipti með íslensku krónuna eða skrá gengið á henni. Þrátt fyrir það finnast ennþá stjórnmálamenn og spekúlantar á Íslandi sem að halda því blákalt fram að þetta sé hinn eini sanni framtíðar gjaldmiðill Íslendinga og að þær þjóðir sem að nú hafa Evru séu í raun alveg jafn illa ef ekki verr staddar en Ísland.
Þá spyr ég á mót:
Hefur allt bankakerfið farið á hliðina á Evrusvæðinu ? Nei.
Þarf gjaldeyrishöft til þess að halda Evrunni gangandi ? Nei.
Hefur Evran verið án gengisskráningar í næstum því heilt ár ? Nei.
Hvernig er það; fyrirfinnst sá stjórnmálamaður á Íslandi sem að kann að nota Outlook, tölvupósta eða Google leitarvélina ?
Þetta er hætt að vera fyndið…
En þar sem að mér þykir samt þrátt fyrir allt pínu vænt um íslenska stjórnmálamenn þá langar mig að benda þeim á að horfa á þetta hérna:
og hérna kemur seinni hlutinn:
og smá viðbót hérna:
Ég get ekki lagt nógu mikla áherlsu á þetta:
Fyrir þá sem að eiga í vandræðum með að nota Google:
og svo að lokum Google fyrir lengra komna:
Vona að stjórnmálamenn á Íslandi nýti sér þetta til þess að koma í veg fyrir að vankunnátta þeirra á nútíma tækni hætti að rata í fjölmiðla. Ég meina, það má alltaf vona… Right ?
RUV sannar enn og aftur hvers vegna þetta er besta fréttastofan á öllu Íslandi: Miklar hreyfingar rétt fyrir hrun.
Að sama skapi eru þessi viðbrögð lögfræðingateymis nýja Kaupþings og skilanefndar gamla Kaupþings ákaflega vanhugsuð for lack of better words. Það getur vel verið að þau séu “bara” að vinna vinnuna sína, en viðbrögðin einkennast engu að síður af fljótfærni og virðast benda til þess að það búi eitthvað meira að baki en að vernda viðskiptavini bankans.
En þar sem að ég held ekki úti fréttamiðli og lénið mitt er ekki vistað á Íslandi þá er mér bæði ljúft og skylt að setja inn linka á umrædda skýrslu frá www.wikileaks.org.
Linkur á umfjöllun Wikileaks um Kaupþing.
Linkur á .pdf skjalið frá fundi Kaupþings þann 25. september 2008
Hótun lögfræðiteymis gamla og nýja Kaupþings.
Ég er ekki klíjugjarn maður að eðlisfari og ég hef frekar tekið þann pól í hæðina að bíða eftir að embætti sérstaks saksóknara, undir dyggri ráðgjöf Evu Joly, ásamt efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og rannsóknarnefnd Alþingis ljúki sinni vinnu áður en ég mynda mér skoðanir á orsökum aðdraganda bankahrunsins. Ég er einn af þeim sem að vill hafa sem flestar upplýsingar fyrir framan mig áður en að ég tek endanlega afstöðu.
Ég kúgaðist samt þegar að ég las umrædda skýrslu frá þessum tiltekna Kaupþingsfundi nokkrum dögum áður en að allt íslenska bankakerfið fór á hliðina. Það krefst sterkra tauga að lesa það sem að þarna fór fram en ég vona að sem flestir geri það.
Hvet sem flesta til þess að linka inn á umrædda umfjöllun, sem og .pdf skjalið inn á bloggsíðum, Facebook, Twitter og/eða öllum þeim vef miðlum sem að ykkur mögulega dettur í hug. Því fleiri sem að gera þetta, þeim mun erfiðara verður fyrir lögfræðteymi Kaupþings og skilanefndar gamla Kaupþings að stöðva útbreiðslu og umfjöllun um málið.
Tryggjum að þetta gleymist aldrei og verði aldrei grafið ofan í skúffu eða nefndarvinnu.
Ein vinkona mín heima á Íslandi vinnur í fatahreinsun og í vinnunni getur hún valið um að hlusta á tvær útvarpsstöðvar; FM957 eða Bylgjuna. Í kjölfarið fæddist þessi listi.
- Þú ert komin(n) með rosalegt fetish fyrir Ásgeiri Kolbeins en veist ekki almennilega af hverju.
- Þér finnst Zúber alveg meika sens.
- Þú fílar Scooter ekkert sérstaklega en þér finnst lögin hans nú ekkert ÞAÐ slæm.
- Þú kannt alla textana við lög Rihönnu og finnst Pink koma með mikilvæg skilaboð til ungmenna.
- Þig langar allt í einu rosalega mikið í Subaru Imprezu en veist ekki alveg af hverju.
- En bara ef að hún er með spoiler kitti og filmum í rúðunum.
- Þú skilur ekki af hverju fólk var/er að tala svona hrikalega illa um Mercedes Club.
- Þér finnst tan allt í einu mikilvægara en matur.
- Þú átt orðið betra safn af geltúbum en Hagkaup.
- Þú ert farin(n) að hringja í beina útsendingu á FM957 daglega vegna þess að þig langar óstjórnlega mikið í Sumarstjörnur 2009.
- Að ég tali nú ekki um Skítamórall – Greatest Hits Remixed.
- Þú fórst á Súðavík til þess eins að borga 3500 krónur inn á ball með Nylon og þér fannst GEÐVEIKT gaman.
- Þér finnst Doddi litli vera besti textahöfundur á Íslandi í dag.
- Þú ert alvarlega að pæla í að fara á Þjóðhátíð í Eyjum í ár til þess eins að hlusta á tónlistina.
- Þú varst á Eldborg.
- Þér finnst allt í einu geðveikt gaman að versla í 17.
- Það að rúnta niður Laugarveginn er hápunktur vikunnar hjá þér.
- Þú skilur ekki hvað fólk er að æsa sig þó að hangir á grunnskóla- og framhaldsskóla böllunum. Þú ert jú “bara” að verða 25…
- Þú ákveður að bjóða makanum fínt út að borða – á Hlöllabátum.
- Þér finnst í fúlustu alvöru að Selfoss ætti að vera höfuðstaður Íslands.
- Þú ert með alla starfsmenn FM957 sem vini á Facebook.
- Þú reynir að fá fólk til þess að kalla þig “Trópí”.
- Græjurnar í bílnum þínum hafa meira verðgildi en sjálfur bíllinn.
- Það hefur aldrei náðst ljósmynd af þér þar sem að þú ert ekki með sólgleraugu.
- Ekki einu sinni í fjölskylduboðum.
- og ekki heldur í kynlífsmyndbandinu sem að þú gerðir.
- Þér finnst Lady Gaga “misskilinn frumkvöðull”.
- og þér finnst geðveikt ósanngjarnt að fólk sé að líkja henni saman við Britney Spears eða Christinu Aguileru.
- Þér finnst geðveikt asnalegt að fá ekki að skíra barnið þitt Apple Prince Romanio Paris Peace.
- og þér finnst mannanafna nefnd sýna þér rosalega fordóma með því að banna þér að nota Lady, Hilton, Beckham eða Jordan til vara.
- Þú ert með tribal tattoo og/eða gaddavír utan um upphandlegginn.
- og þú ert með lokk í naflanum.
- Þér finnst Flo rida vera “djúpur”.
- Þú gengur um með Swatch úr og finnst það heavy kúl.
- Þér finnst Hreiðar Már úr Kaupþing vera skásti útrásargæjinn – en bara vegna þess að hann notar sömu líkamsrækt og þú.
Bætið við að eigin list í kommenta kerfinu ;)
Ég hef verið Evrópusinni í bráðum 3 ár núna. Aðallega vegna þess að ég er sannfærður um að íslenska krónan er búin að vera sem framtíðar gjaldmiðill. Ekki aðeins þarf höft til þess að halda henni gangandi, heldur hefur verðgildi hennar hrunið um meira en 80%. Því fyrr sem að við getum kvatt krónuna og viðurkennt að sá partur í sögu Íslands er búinn, því betra. Ég er þess utan 200% sammála punktum Andrésar Jónssonar sem að hann útlistar hérna.
Ég viðurkenni fúslega að ég var pínu uggandi um hvernig Alþingi myndi afgreiða þetta á tímabili. Tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu skil ég ekki vegna þess að með henni væru lýðræðislega kjörnir fulltrúar þjóðarinnar að kosta til peningum til þess að spyrja hvort að þeir mættu nú örugglega tala við fulltrúa Evrópusambandsins. Þess utan hefur engin af 27 aðildarþjóðum ESB farið þessa leið í inntökuferlinu hingað til (ekki það að það hefði samt ekki komið mér á óvart hefði slík tillaga verið samþykkt). Fullyrðingar um að Ísland glati sjálfstæði sínu standast ekki, þar eð þau fela jafnframt í sér að þau 27 lönd sem að eru aðilar að ESB fyrir séu ekki sjálfstæð. Hef ekki orðið var það to be honest að aðrar Evrópuþjóðir séu ósjálfstæðar, en játa þó að tæknilega séð geta 500 milljónir manns alveg hafa misskilið fullveldis- og sjálfstæðis hugtökin þó svo að mér finnist það ákaflega hæpið ef að ég á vera hreinskilinn.
Alþingi samþykkti hins vegar að fara aðildarviðræður og að bera samninginn undir dóm kjósenda til samþykktar eða synjunnar. I like that. Íslenska þjóðin er nefninlega alveg þokkalega upplýst og ef að henni hugnast samningurinn þá segir hún já við honum. Ef henni hugnast samningurinn ekki þá segir hún nei. Ekki flóknara en svo. Það sem að ég óttast kannski mest er að vissir stjórnmálamenn muni samt sem áður kjósa gegn samningnum á Alþingi þrátt fyrir að þjóðin hafi gefið annað til kynna. Ég óttast hins vegar ekki að þingið muni samþykkja samninginn ef að þjóðin hafnar honum.
Ég hlakka allavega til þess að fá að kjósa!
Hér fyrir neðan eru svo linkar á nokkrar erlendar fréttaveitur um aðildarumsókn Íslands:
Ég á af og til leið um Kastrup flugvöll hérna í Kaupmannahöfn. Hvort sem að það er að taka á móti vinum og ættingjum eða skreppa á Starbucks. Eðli málsins samkvæmt er að finna þarna ýmsa þjónustu við ferðamenn; veitingastaði, upplýsingaþjónustu, bílaleigur, farangursgeymslur og svo mætti lengi telja. Við hliðina á komusalnum í terminal 3 er svo útibú frá Nordea Bank þar sem að m.a. er hægt að sjá gengisskráningu mismunandi gjaldmiðla hverju sinni.
Nema íslensku krónunnar. Gengið á henni hefur ekki verið skráð síðan í október á síðasta ári…
Í vikunni fyrir 28 ára afmælið mitt í apríl sl. átti ég erindi í íslenska sendiráðið í Kaupmannahöfn. Myndin hérna að neðan ætti að útskýra nokkurn veginn hvert að erindið var.
Ég skal fúslega viðurkenna að valið var ekki auðvelt en þessi frétt hérna og þessi frétt hafa sannfært mig endanlega um að valið var rétt.
Katrín Jakobsdóttir er og verður hæfasti einstaklingurinn til þess að sinna málefnum íslenskra námsmanna.
