Húmor

31st January
2010
written by Jon Hnefill

Síðan að ég byrjaði að vinna sem viðmótshönnuður hjá atvinnumiðluninni hérna úti hef ég vanið mig á ákveðna ferða rútínu til þess að komast í vinnuna, sem að er í stuttu máli: heiman frá mér – Bella Center station – Kongens Nytorv station – skrifstofa atvinnumiðlunarinnar í miðbæ Kaupmannahafnar. Allt í allt er þetta u.þ.b. klst. ferðalag til og frá vinnu á hverjum degi – sem að verður að teljast nokkuð gott miðað við að þetta er Kaupmannahöfn og ekki óalgegnt að fólk eyði allt að 3 til 4 tímum á dag að komast til og frá vinnu og/eða skóla (sem dæmi má t.d. nefna að skólinn sem að kennir masternámið sem að ég stefni á í haust er í 35 min göngufjarlægð þaðan sem að ég bý).

En á þessum tveim mánuðum sem að ég hef unnið þarna hef ég orðið var við ansi skondnar hliðar á lífinu og tilverunni á ferðum mínum til og frá vinnu, og ef að tækifæri gefst munda ég símann á loft og smelli af eins og einni mynd.

Mótmælendur fyrir utan Bella Center á COP15 2009 

Mómælendur fyrir utan Bella Center á síðustu dögum loftlagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna (COP15) sem að haldin var í Kaupmannahöfn dagana 7 – 18. desember sl. Ég sakna þess stundum að fá ekki kaffi frá Greenpeace á morgnana og ræða umhverfisverndarsjónarmið við starfsfólkið.

Bæjarstarfsmaður með snjóruðningstæki 

Það hefur bókstaflega kyngt niður snjó hérna í Danmörku sl. daga og vikur og janúar mánuður hefur ekki mælst kaldari í Danmörku í 23 ár. Bæjarstarfsmaðurinn á myndinni er með snjóruðningstæki á einni af tjörnunum undir metro stöðvunum í Ørestad, en þær hafa allar botnfrosið í vetrarhörkunum.

28th November
2009
written by Jon Hnefill

Sony Ericsson w995 001

Svona in case að þið væruð að velta því fyrir ykkur hvernig íslensku krónunni vegnaði á alþjóðavettvangi…

Myndin er tekin þann 18. nóvember sl.

9th October
2009
written by Jon Hnefill

Ef að Egyptar til forna hefðu haft aðgang að ADSL tengingu hefðu plágurnar í Exodus verið 11, þar sem að vandamál með óstabíla nettengingu hefði verið troðið einhversstaðar inn á milli fljúgandi froska og uppskerubrests.

Það getur verið ákaflega óþægilegt (svo vægt sé til orða tekið) þegar að nettengingin dettur niður. Sumir (les: Facebook fíklar) missa af öllum félagslegum samskiptum sem og tenglsum við raunveruleikann, einhverjir falla á skilafrest með verkefni og enn aðrir hjúfra sig í fósturstellinguna á eldhúsgólfinu á barmi taugaáfalls.

Svo eru þeir líka sem að bara fá sér göngutúr eða lesa góða bók þangað til að tengingin kemst aftur í lag.

Ég og meðleigjendur mínir þrifum t.d. íbúðina okkar hátt og lágt seinast þegar að nettengingin datt út. – og við erum ekki að tala um að þurrka bara af og ryksuga. Nei. Við dauðhreinsuðum íbúðina hátt og lágt, kalkhreinsuðum baðherbergið og uppþvottavélina og bónuðum hvern einasta glugga. – Sem að er að sjálfsögðu alls ekkert sad.

Til þess að komast að því nákvæmlega hversu mikil fíknin er, skaltu bera saman viðbrögðin hér að neðan og síðan vega og meta hversu aumkunarverð(ur) þú raunverulega ert:

Fyrsta stigs netfíkn:

Fyrstu viðbrögð: Athugar allar leiðslur og hvort að þú getir stolist inn á netið hjá nágrannanum. Síðan ferðu og gerir eitthvað annað.

Á meðan að þú bíður: Lest góða bók, horfir á kvikmynd eða ferð í göngutúr. Er þetta trick question ?

Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn og heldur síðan áfram að gera hvað svo sem að þú tókst þér fyrir hendur.

Annars stigs netfíkn:

Fyrstu viðbrögð: Reynir að stela tengingunni hjá nágrannanum. Gengur með ferðatölvuna um íbúðina ef nauðsyn krefur til þess að finna bestu móttöku skilyrðin.

Á meðan að þú bíður: Horfir á kvikmynd með ferðatölvuna við hliðina á þér allan tímann svo að þú getir séð þegar að tengingin kemst aftur í lag.

Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn. Tékkar reglulega á 30 min. fresti ef að ske kynni að vandamálið leysist af sjálfu sér.

Þriðja stigs netfíkn:

Fyrstu viðbrögð: Reynir að stela tengingunni hjá nárgrannanum. Gerir síðan nokkrar tilraunir til þess að giska á aðgangsorðin á læstu tengingunum. Gengur með ferðatölvuna um íbúðina til þess að finna bestu móttöku skilyrðin.

Á meðan að þú bíður: Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur. Ferð síðan að horfa á kvikmynd en manst allt í einu að þí horfir bara á kvikmyndir sem að þú strímar af netinu. Reynir að tengjast aftur.

Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn. Gengur síðan frá ferðatölvunni ofan í tösku og ferð á kaffihús sem að bíður upp á ókeypis tengingu.

Fjórða stigs netfíkn:

Fyrstu viðbrögð: Sjokk og vantrú. Athugar síðan allar netkerfis stillingar hjá þér, tekur í sundur routerinn og módemið og gerir kerfisbundnar prófanir á nærliggjandi segulsviði og útvarpsbylgjum. Reynir að stela nettengingu nágrannanna og starir að lokum vel og lengi á módemið þitt með tárin í augunum.

Á meðan að þú bíður: Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur. Ferð síðan að horfa á kvikmynd en manst allt í einu að þí horfir bara á kvikmyndir sem að þú strímar af netinu. Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur.

Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn og pakkar því næst borðtölvunni og ferðatölvunni ofan í tösku og bókar herbergi á hóteli sem að bíður upp á fullnægjandi internet tengingu.

Fimmta stigs netfíkn:

Fyrstu viðbrögð: Ferð upp á þak og beinir heimagerða wifi loftnetinu þínu í átt að bókasafninu í hverfinu. Ef að það vikar ekki, reynirðu að tengja farsímann við tölvuna. Ef að það vikar ekki reynirðu að hakka nettenginuna hjá nágrannanum. Húkkar að lokum upp gamla 56k dial up módemið þitt við tölvuna og loggar þig inn á netþjónustu sem að þú borgar af í hverjum mánuði fyrir ef að ske kynni að eitthvað þessu líkt myndi gerast.

Á meðan að þú bíður: Skrifar langa og tilfinningaríka bloggfærslu um hvernig netþjónustu aðilinn þinn er að kosta þig bæði  tíma og peninga sökum vanhæfni sinnar til þess að bregðast fljótt og örugglega við fyrirspurnum þínum. Þú sendir afrit af færslunni til allra bæjar- /borgarstjórnafulltrúa ásamt kjörnum fulltrúum á Alþingi Íslendinga í þínu kjördæmi.

Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir undir eins í netþjónustu aðilann þinn og segir upp þjónustu samningnum. Ef að það eru ekki aðrir þjónustuaðilar sem að bjóða upp á ADSL eða ljósleiðara á þessu svæði, flyturðu í annað póstnúmer / bæjarfélag.

14th August
2009
written by Jon Hnefill

Hvernig er það; fyrirfinnst sá stjórnmálamaður á Íslandi sem að kann að nota Outlook, tölvupósta eða Google leitarvélina ?

Þetta er hætt að vera fyndið…

En þar sem að mér þykir samt þrátt fyrir allt pínu vænt um íslenska stjórnmálamenn þá langar mig að benda þeim á að horfa á þetta hérna:

og hérna kemur seinni hlutinn:

og smá viðbót hérna:

Ég get ekki lagt nógu mikla áherlsu á þetta:

Fyrir þá sem að eiga í vandræðum með að nota Google:

og svo að lokum Google fyrir lengra komna:

Vona að stjórnmálamenn á Íslandi nýti sér þetta til þess að koma í veg fyrir að vankunnátta þeirra á nútíma tækni hætti að rata í fjölmiðla. Ég meina, það má alltaf vona… Right ?

22nd July
2009
written by Jon Hnefill

Ein vinkona mín heima á Íslandi vinnur í fatahreinsun og í vinnunni getur hún valið um að hlusta á tvær útvarpsstöðvar; FM957 eða Bylgjuna. Í kjölfarið fæddist þessi listi.

  1. Þú ert komin(n) með rosalegt fetish fyrir Ásgeiri Kolbeins en veist ekki almennilega af hverju.
  2. Þér finnst Zúber alveg meika sens.
  3. Þú fílar Scooter ekkert sérstaklega en þér finnst lögin hans nú ekkert ÞAÐ slæm.
  4. Þú kannt alla textana við lög Rihönnu og finnst Pink koma með mikilvæg skilaboð til ungmenna.
  5. Þig langar allt í einu rosalega mikið í Subaru Imprezu en veist ekki alveg af hverju.
  6. En bara ef að hún er með spoiler kitti og filmum í rúðunum.
  7. Þú skilur ekki af hverju fólk var/er að tala svona hrikalega illa um Mercedes Club.
  8. Þér finnst tan allt í einu mikilvægara en matur.
  9. Þú átt orðið betra safn af geltúbum en Hagkaup.
  10. Þú ert farin(n) að hringja í beina útsendingu á FM957 daglega vegna þess að þig langar óstjórnlega mikið í Sumarstjörnur 2009.
  11. Að ég tali nú ekki um Skítamórall – Greatest Hits Remixed.
  12. Þú fórst á Súðavík til þess eins að borga 3500 krónur inn á ball með Nylon og þér fannst GEÐVEIKT gaman.
  13. Þér finnst Doddi litli vera besti textahöfundur á Íslandi í dag.
  14. Þú ert alvarlega að pæla í að fara á Þjóðhátíð í Eyjum í ár til þess eins að hlusta á tónlistina.
  15. Þú varst á Eldborg.
  16. Þér finnst allt í einu geðveikt gaman að versla í 17.
  17. Það að rúnta niður Laugarveginn er hápunktur vikunnar hjá þér.
  18. Þú skilur ekki hvað fólk er að æsa sig þó að hangir á grunnskóla- og framhaldsskóla böllunum. Þú ert jú “bara” að verða 25…
  19. Þú ákveður að bjóða makanum fínt út að borða – á Hlöllabátum.
  20. Þér finnst í fúlustu alvöru að Selfoss ætti að vera höfuðstaður Íslands.
  21. Þú ert með alla starfsmenn FM957 sem vini á Facebook.
  22. Þú reynir að fá fólk til þess að kalla þig “Trópí”.
  23. Græjurnar í bílnum þínum hafa meira verðgildi en sjálfur bíllinn.
  24. Það hefur aldrei náðst ljósmynd af þér þar sem að þú ert ekki með sólgleraugu.
  25. Ekki einu sinni í fjölskylduboðum.
  26. og ekki heldur í kynlífsmyndbandinu sem að þú gerðir.
  27. Þér finnst Lady Gaga “misskilinn frumkvöðull”.
  28. og þér finnst geðveikt ósanngjarnt að fólk sé að líkja henni saman við Britney Spears eða Christinu Aguileru.
  29. Þér finnst geðveikt asnalegt að fá ekki að skíra barnið þitt Apple Prince Romanio Paris Peace.
  30. og þér finnst mannanafna nefnd sýna þér rosalega fordóma með því að banna þér að nota Lady, Hilton, Beckham eða Jordan til vara.
  31. Þú ert með tribal tattoo og/eða gaddavír utan um upphandlegginn.
  32. og þú ert með lokk í naflanum.
  33. Þér finnst Flo rida vera “djúpur”.
  34. Þú gengur um með Swatch úr og finnst það heavy kúl.
  35. Þér finnst Hreiðar Már úr Kaupþing vera skásti útrásargæjinn – en bara vegna þess að hann notar sömu líkamsrækt og þú.

Bætið við að eigin list í kommenta kerfinu ;)

10th June
2009
written by Jon Hnefill

Ég á af og til leið um Kastrup flugvöll hérna í Kaupmannahöfn. Hvort sem að það er að taka á móti vinum og ættingjum eða skreppa á Starbucks.  Eðli málsins samkvæmt er að finna þarna ýmsa þjónustu við ferðamenn; veitingastaði, upplýsingaþjónustu, bílaleigur, farangursgeymslur og svo mætti lengi telja. Við hliðina á komusalnum í terminal 3 er svo útibú frá Nordea Bank þar sem að m.a. er hægt að sjá gengisskráningu mismunandi gjaldmiðla hverju sinni.

DSCF0114

Nema íslensku krónunnar. Gengið á henni hefur ekki verið skráð síðan í október á síðasta ári…

29th May
2009
written by Jon Hnefill

The Lonely Islands er hópur af grínistum sem að samanstendur af Akiva Schaffer, Jorma Taccone og Andy Samberg.

Þeir koma allir frá Berkley í Kaliforníu og byrjuðu ferilinn í skemmtanabransanum með stuttum grín þáttum sem að þróuðust út í grín tónlistarmyndbönd og einn sjónvarpsþátt í fullri lengd. Seinna meir fluttust þeir til New York og vöktu athygli Lorne Michaels frá Saturday Night Live sem að bauð þeim að koma fram í þáttunum.

Þegar að þangað var komið skrifuðu þeir “Lazy Sunday” sem að þykir með betri tónlistar grín myndböndum sem að gerð hafa verið. Lagið varð að undir eins að internet senation og varð til þess að hópurinn fékk fastan sess hjá SNL með grín tónlistar myndböndin sem að hafa verið auðkenni þeirra sl. ár. Lög eins og “Lazy Sunday”, “Dick in a box”, “Jizz in my pants, “Like a boss”, “I’m on a boat” og núna seinast “Mother lover” hafa fest þá endanlega í sessi sem einhverju fremstu grínista Bandaríkjanna um þessar mundir.

Nýjasta framlag þeirra félaga er lagið “Mother lover” sem að er samið í tilefni mæðradagsins í ár. Glöggir lesendur ættu að taka eftir að sá sem að syngur með þeim í myndbandinu er sá hinn sami og syngur með þeim í “Dick in a box” og hann var einnig kynnir á MTV Europe Music Awards þegar að hátíðin var haldin í Kaupmannahöfn árið 2006.

Myndböndin sem að hópurinn hefur sent frá sér eru hér fyrir neðan:

Lazy Sunday:

 

Dick in a box:

Jizz in my pants:

Like a boss:

 

 I’m on a boat:

 

Mother lover:

Uppfært: Það er greinilegt að NBC leggja sig mikið fram um að reyna fjarlægja allt efni frá SNL sem að þeir hafa ekki gefið samþykki fyrir að birtist á netinu. Þeir birtu YouTube Cease and Desist vegna “Lazy Sunday” myndbandsins fyrir einhverjum árum síðan en skiptu svo um skoðun 5 mánuðum seinna. Þrátt fyrir djarfar yfirlýsingar um að netið sé ekki óvinur þeirra og samstarfssamning um birtingu efnis á YouTube, þá hefur myndbandið við lagið “Mother lover” verið fjarlægt af öllum helstu hýsingar síðunum.

16th April
2009
written by Jon Hnefill

Ég tók eftir því um daginn að vinnufélagar mínir hvísluðu sín á milli og brostu svo hálf undarlega í áttina til mín.  Svo fattaði ég af hverju.  Ég var að reykja menthol sígarettur og með bleikan kveikjara. Sem að sjálfsögðu er alls ekkert gay…

9th April
2009
written by Jon Hnefill

Fyrir nokkrum árum þurfti að ég verða mér út um vegabréf vegna ferðalags til Manchester.  Eins og gengur og gerist var ég frekar seinn að sækja um og fékk þær upplýsingar að ég ætti tvo valkosti í stöðunni: Að bíða í viku til 10 daga og borga eitthvað í kringum 5000 ISK fyrir vegabréfið eða fá það daginn eftir og borga 9000 ISK fyrir. Enn þann dag í dag er ég ekki viss um hvort að ég hafi borgað starfsmanninum mútur fyrir flýtiafgreiðslu eða ekki. Nokkrum árum seinna átti ég von á endurgreiðslu frá skattinum en fékk þau svör að hún kæmi ekki fyrr en eftir áramót vegna anna. Eftir að hafa hringt stanslaust í ca. viku fékk ég samband einn af stjórnendum stofnunarinnar sem að bað mig um að senda sér tölvupóst og gekk frá endurgreiðslunni daginn eftir. Ef að ég eignast einhverntímann strák þá skýri ég hann Pétur, í höfuðið á ríkisstarfsmanninum sem að bjargaði mér skólaárið 2007 – 2008.

En þessar sögur og fleiri af samskiptum mínum (og annara) við íslenskar stofnanir urðu kveikjan að þessum lista. Breytið og betrumbætið eftir þörfum.

1. Heimtaðu alla pappíra í þríriti, undirritaða í viðurvist fimm votta og að það fylgi hárlokkur frá þeim sem að afgreiddi pappírana með. Segðu að það sé til þess að ganga úr skugga um DNA auðkenni stimpilsins á pappírunum.

2. Líttu geðveikt flóttalega í kringum þig þegar að þú bíður í röð og settu alla pappíra sem að þú ert með mjög laumulega inn undir kápuna / jakkann. Hvíslaðu að manneskjunni í afgreiðslunni hvert erindið hjá þér er.

3. Skrifaðu allar tölur í skattaskýrslunni þinni í binary.

4. Biddu um eyðublað A 38.  Sjá hérna til nánari útskýringar.

5. Skrifaðu allar beiðnir í Haiku formi.

6. Biddu um eitthvert nafn að handahófi og legðu mikla áherslu á að þú talir ekki við nokkra aðra manneskju þarna vegna þess að viðkomandi sé eina manneskjan sem að “raunverulega” skilji þig.

7. Heimtaðu 20% aukningu á öllum lánum. Segðu að það sé til þess að styrkja Sjálfstæðisflokkinn fjárhagslega fyrst að Guðlaugi tókst svona illa til.

8. Neitaðu að gefa upp hvert erindið hjá þér er nema að allt starfsfólkið gerist vinir þínir á Facebook.

9. Biddu um lán fyrir eftirfarandi viðskiptahugmyndir: laxeldi, loðdýrarækt, tískuvöruverslun, fjárfestingafélag og vogunarsjóð. Taktu tímann á því hversu fljótt þér verður hent út.

10. Notaðu gamla búta úr ræðum Davíðs Oddssonar í öllum umsóknum og eyðublöðum. Segðu að allir textar séu yfirfarnir af  Hannesi Hólmstein og sakaðu viðkomandi um að stunda pólitískar hreinsanir ef að þú færð neitun.

Tags:
11th March
2009
written by Jon Hnefill

Apple hefur ákveðið að leyfa ekki uppfærslu fyrir Tweetie forritið á iPhone símunum og iPod Touch.  Ástæðan ? Jú, samkvæmt Twitter trends greiningu var orðið “Fuck” of mikið notað á meðal Twitter notenda.

Fyrir þá sem að það ekki vita þá er Twitter vefsíða sem að gerir notendum sínum kleift að senda stuttar stöðu uppfærslur, svipaðar þeim sem að er að finna á Facebook.  Helsti munurinn er kannski sá að síðan er byggð í kringum stöðu uppfærslurnar (líka kallað ör blogg eða micro blogging) og býður upp á tengingu þjónustunnar við blogg síður, önnur tengslanet og hugbúnað fyrir tölvur og farsíma.

Tweetie Twitter trends byggir á svipuðum grunni og Google trends, þ.e. að greina hvaða orðanotkun og orðsamsetning er vinsælust á meðal notenda þjónustuannar.

Þó svo að um hafi verið að ræða einangrað tilvik þar sem að orðið “Fuck” var á það meðal þeirra mest notaðu á meðal Twitter notenda (orðið er varla til staðar lengur skv mælingum) , þá virðast Apple hafa séð ástæðu til þess að bregðast við og það af hörku: Uppfærsla 1.3 af Tweetie forritunu verður ekki fáanleg í iTunes búðinni sökum þessa óheflaðs orðbragðs Twitter notenda.

Fyrir utan að vera ritskoðun af verstu sort, þá lýsir þessi ákvörðun Apple ákaflega einkennilegri tengingu við það sem að við hin myndum flokka sem raunveruleika. Mér er t.d. fyrirmunað að sjá hvernig að framleiðendur hugbúnaðar – sem að gerir notednum kleift að tengjast við vefsíðu nota bene – geti talist ábyrgir fyrir orðbragði notenda vefsíðunnar.  Það er svona eins og að halda því fram að Microsoft beri á einhvern ábyrgð á falli bankanna á Íslandi þar sem að einhverjir stjórnendur bankans gætu hafa notað Outlook tölvupóstforritið til þess að senda tölvupósta sín á milli.

Twitter Human Weather Hræðsla Apple við blótsyrði er þó ekki einskorðuð við Tweetie forritið.  Þannig tóku framleiðendur veður hugbúnaðarins Twitter Human Weather eftir því að Apple lokuðu á hugbúnaðinn þeirra í gegnum iTunes búðina eftir að ein athugasemdin við hugbúnaðinn innihélt blótsyrði.  Framleiðendurnir urðu að útbúa síu á viss blótsyrði til þess að fá Apple náðarsamlegast til þess að leyfa sölu á forritinu aftur.

M.ö.o. þú mátt blóta þegar að þú talar í iPhone.  Þú mátt bara ekki skrifa blótsyrðin í gegnum hugbúnað annara eða í ummælum um hugbúnað annara í iTunes búðinni.

Google trends veitir markaðfræðingum, félagsfræðingum, vísindamönnum, vefhönnuðum og kerfisfræðingum ómetanlegt safn gagna og tölfræði um hegðun þeirra sem að notast við þjónustu leitarvéla risans. Twitter trends greinir hvaða orð og orðasambönd eru vinsælust á meðal Twitter notenda hverju sinni.  Hérna er svo áhugaverð samanburðar pæling: Hvað ætlu séu margir sem að nota Google dagsdaglega miðað við hversu margir nota Twitter dagsdaglega ? og á sömu nótum: Hversu mikill fjöldi Twitter notenda eiga iPhone eða iPod Touch og hversu hátt hlutfall þeirra skyldu síðan nota orðið Fuck í daglegum Twitter samskiptum ? Þessi tiltekni hópur Twitter notenda er ekki nógu stór markhópur til þess að geta einn og sér haft áhrif á ímynd eða afkomu Apple, sem að aftur gerir viðbrögð fyrirtækisins við blótsyrðunum ennþá furðulegri.

Google Trends Ég get þó ekki annað en tekið undir orð Dong Ngo hjá CNET: Ef að Apple hafa lokað fyrir uppfærslu á forriti vegna blótsyrða, sem virðist vera raunin ef að eitthvað er að marka þennan Tweetie forritara, hvers vegna þá bara að loka fyrir þessa einu uppfærslu.  Það er ekki eins og að þú getir bara Twitterað blótsyrðin með nýjustu útgáfunni.
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes
  • You are currently browsing the archives for the Húmor category.