Til og frá vinnu (partur I)
31/01/2010Síðan að ég byrjaði að vinna sem viðmótshönnuður hjá atvinnumiðluninni hérna úti hef ég vanið mig á ákveðna ferða rútínu til þess að komast í vinnuna, sem að er í stuttu máli: heiman frá mér – Bella Center station – Kongens Nytorv station – skrifstofa atvinnumiðlunarinnar í miðbæ Kaupmannahafnar. Allt í allt er þetta u.þ.b. klst. ferðalag til og frá vinnu á hverjum degi – sem að verður að teljast nokkuð gott miðað við að þetta er Kaupmannahöfn og ekki óalgegnt að fólk eyði allt að 3 til 4 tímum á dag að komast til og frá vinnu og/eða skóla (skólinn sem að kennir masternámið sem að ég stefni á í haust er t.d. í 35 min göngufjarlægð þaðan sem að ég bý).
En á þessum tveim mánuðum sem að ég hef unnið þarna hef ég orðið var við ansi skondnar hliðar á lífinu og tilverunni á ferðum mínum til og frá vinnu, og ef að tækifæri gefst munda ég símann á loft og smelli af eins og einni mynd.
| Mómælendur fyrir utan Bella Center á síðustu dögum loftlagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna (COP15) sem að haldin var í Kaupmannahöfn dagana 7 – 18. desember sl. Ég sakna þess stundum að fá ekki kaffi frá Greenpeace á morgnana og ræða umhverfisverndarsjónarmið við starfsfólkið. |
|
Það hefur bókstaflega kyngt niður snjó hérna í Danmörku sl. daga og vikur og janúar mánuður hefur ekki mælst kaldari í Danmörku í 23 ár. Bæjarstarfsmaðurinn á myndinni er með snjóruðningstæki á einni af tjörnunum undir metro stöðvunum í Ørestad, en þær hafa allar botnfrosið í vetrarhörkunum. |