Archive of published articles on January, 2010

Back home

Til og frá vinnu (partur I)

31/01/2010

Síðan að ég byrjaði að vinna sem viðmótshönnuður hjá atvinnumiðluninni hérna úti hef ég vanið mig á ákveðna ferða rútínu til þess að komast í vinnuna, sem að er í stuttu máli: heiman frá mér – Bella Center station – Kongens Nytorv station – skrifstofa atvinnumiðlunarinnar í miðbæ Kaupmannahafnar. Allt í allt er þetta u.þ.b. klst. ferðalag til og frá vinnu á hverjum degi – sem að verður að teljast nokkuð gott miðað við að þetta er Kaupmannahöfn og ekki óalgegnt að fólk eyði allt að 3 til 4 tímum á dag að komast til og frá vinnu og/eða skóla (skólinn sem að kennir masternámið sem að ég stefni á í haust er t.d. í 35 min göngufjarlægð þaðan sem að ég bý).

En á þessum tveim mánuðum sem að ég hef unnið þarna hef ég orðið var við ansi skondnar hliðar á lífinu og tilverunni á ferðum mínum til og frá vinnu, og ef að tækifæri gefst munda ég símann á loft og smelli af eins og einni mynd.

Mótmælendur fyrir utan Bella Center á COP15 2009 

Mómælendur fyrir utan Bella Center á síðustu dögum loftlagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna (COP15) sem að haldin var í Kaupmannahöfn dagana 7 – 18. desember sl. Ég sakna þess stundum að fá ekki kaffi frá Greenpeace á morgnana og ræða umhverfisverndarsjónarmið við starfsfólkið.

Bæjarstarfsmaður með snjóruðningstæki 

Það hefur bókstaflega kyngt niður snjó hérna í Danmörku sl. daga og vikur og janúar mánuður hefur ekki mælst kaldari í Danmörku í 23 ár. Bæjarstarfsmaðurinn á myndinni er með snjóruðningstæki á einni af tjörnunum undir metro stöðvunum í Ørestad, en þær hafa allar botnfrosið í vetrarhörkunum.

No Comments

Lífið í Köben

19/01/2010

Ættingjar og vinir hafa verið að kvarta undan því að ég sé ekki nógu duglegur við segja fréttir af sjálfum mér hérna svo að ég ætla að reyna að bæta aðeins úr því.

Ég var að vinna mestan part síðasta árs sem forritari fyrir lítið hugbúnaðar fyrirtæki, þar sem að ég bjó til kerfi til þess að hjálpa öðrum að fylla inboxið ykkar af rusli. Enn þann dag í dag hef ég ekki minnsta vott af samviskubiti yfir því. En ég hætti þar í lok september, eftir 7 mánaða vinnu, þar sem að yfirmenn mínir sviku ítrekað loforð um launahækkanir.

Tveim mánuðum seinna, eða í lok nóvember var ég headhunted til þess að fara að vinna sem viðmótshönnuður hjá annari stærstu atvinnumiðlun Danmerkur. Ég gjörsamlega elska nýju vinnuna og það skemmir heldur ekki fyrir að útborguð laun þar eru hærri en heildarlaunin sem að ég hafði hjá hugbúnaðarfyrirtækinu.

Í frítíma mínum rek ég eigið fyrirtæki ásamt tveim félögum mínum hérna úti þar sem að við bjóðum upp á alhliða vef þjónustu fyrir einstaklinga og lítil- og meðalstór fyrirtæki. Á síðasta ári settum við 4 síður í loftið og stærsta verkefnið okkar til þessa er að fara í loftið í lok þessarar viku ef að líkum lætur. Á næstu vikum mun svo ný útgáfa af okkar eigin síðu líta dagsins ljós. Sem dæmi um síður sem að við kláruðum má nefna: http://www.cafe-blasen.dk (Rokk bar í Kaupmannahöfn. Ný útgáfa af síðunni væntanleg í byrjun febrúar), http://stopvolden.wordpress.com (pólitískt blogg), http://www.zoekofod.dk (danskur gluggaskreytingar hönnuður) og http://www.hotelchristianiv.dk (lítið fjölskyldu hótel nálægt Rósenborgar kastala í Kaupmannahöfn).

Það er ekkert brúðkaup í farvatninu. Sorry.

Danir kippa sér ekki upp við fréttum af Icesave og koma almennt af fjöllum þegar að ég bendi þeim á að danska ríkið sé meðal lánveitenda í endurreisnaráætlun Íslands, og ég á að koma því á framfæri að það sé lágmark að flugförin til Íslands séu ódýrari fyrir vikið. Good gesture, frændsemi og allt það.

Ég komst inn í tvo háskóla hérna sl. haust, CBS og ITU, en þar sem að ég var bundinn ráðningarsamningi hjá gamla vinnuveitandanum mínum varð ekkert úr því. Ég er þó að gæla við að byrja í mastersnámi í haust í interaction design og multimedia við ITU. Það sem að gerir þennan kost ennþá fýsilegri, er að bæði er ég kominn með vinnu sem að mér líkar stórkostlega vel við og námið er hugsað fyrir fólk á vinnumarkaðinum, þ.e. nám meðfram vinnu.

Ég og meðleigjendur mínir (tveir íslenskir félagar mínir sem að jafnframt eru í fyrirtækja rekstrinum með mér) fluttum í nýja og stærri (og ódýrari!) íbúð í maí sl. Við fluttum s.s alveg heila 200m frá gömlu íbúðinni okkar, eða hinum megin við garðinn. Ég held að það megi færa ágætis rök fyrir því að við kunnum ágætlega við okkur í yuppie suburbia Kaupmannahafnar, öðru nafni Ørestad.

Þar sem að ég komst ekki til Íslands um hátíðarnar (eða öllu heldur tímdi ekki / hafði ekki efni á að kaupa flugmiða á 4700 DKK) er stefnan sett á að koma til Íslands um páskana í staðinn. Ef að allt fer samkvæmt áætlun verð ég á Íslandi frá 26. mars og verð til 6. apríl.

En ég læt þetta gott heita í bili og lofa hér með að vera duglegari við að skrifa.

2 Comments
Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes