Þegar að þjóðernið varð mér til trafala
10/10/2009Fyrir aðeins meira en ári síðan var ég að vinna fyrir danska fjármálastofnun sem vef forritari. Vinnan var bæði vel launuð og mórallinn á vinnustaðnum var með allra besta móti. Það breyttist hins vegar eftir að stjórnvöld á Íslandi ákváðu að þjóðnýta Glitni að meirihlutanum til í lok september 2008. Eftir það fann ég að yfirmenn mínir voru meira og minna á tánum og viku eftir að neyðarlögin voru sett var ég boðaður á fund þar sem að mér var tjáð að bankinn gæti ekki lengur haft mig í vinnu. Ástæðan var sögð hagræðing en ég tók hana svona mátulega trúanlega; aðallega vegna þess að viðkomandi banki var einn af fáum í Danmörku sem að stóð þokkalega traustum fótum í kjölfar efnahagskreppunnar og gerir enn.
Ég frétti það svo nokkrum vikum seinna frá fyrrum samstarfsfélögum mínum, að yfirmenn mínir hefðu óttast að orðspor bankans byði hnekki ef að það spyrðist út að það væri Íslendingur sem að sæi um allt notendaviðmót heimasíðunnar ásamt internetbankanum þeirra. En þar sem að ég gat ekki fengið þetta staðfest nema með óformlegu samtali, gat ég (og get enn) lítið gert til þess að leita réttar míns. Uppsögnin var sögð í hagræðingarskyni og ekkert sem að ég get gert til þess að hrekja þá fullyrðingu. Þar stendur einfaldlega orð á móti orði.
Ég fann hins vegar fljótlega eftir þetta að bankinn sem að um ræðir var ekki eina fyrirtækið í Danmörku sem að hafði efasemdir um ágæti Íslendinga. Hvert sem að ég fór í leit að vinnu, lokuðust dyrnar fljótt og örugglega þegar að þjóðerni mitt kom til tals. Ég brá því á það eina ráð sem að ég sá í stöðunni: að minnast hvergi í atvinnu umsókninni minni á hvaðan ég væri og ég hætti t.a.m. að nota sér íslenska stafi þegar að ég skrifaði nafnið mitt. – og viti menn. Um leið og það stóð hvergi stafkrókur um Ísland, létu atvinnu viðtölin ekki á sér standa og nokkrum vikum seinna var ég kominn með vinnu.
Enn þann dag í dag hef ég þann háttinn á að minnast ekki á hvaðan ég er nema að ég sé spurður að því að fyrra bragði og ég geri ennþá sem minnst úr þjóðerninu. Sem að er slæmt. Einu sinni hafði ég nefninlega á tilfinningunni að ég gæti verið stoltur af því að vera Íslendingur. Í dag upplifi ég það meira sem byrði og er búinn að gera meira og minna í þetta ár sem að liðið er frá bankahruninu. Það sem að er þó kannski sínu verst er að, þökk sé vissum stjórnmálamönnum heima á Íslandi, þá stefnir allt í að það verði svo nokkur ár í viðbót.
There are 15 comments in this article: