Hversu sterk er netfíknin ?
9/10/2009Ef að Egyptar til forna hefðu haft aðgang að ADSL tengingu hefðu plágurnar í Exodus verið 11, þar sem að vandamál með óstabíla nettengingu hefði verið troðið einhversstaðar inn á milli fljúgandi froska og uppskerubrests.
Það getur verið ákaflega óþægilegt (svo vægt sé til orða tekið) þegar að nettengingin dettur niður. Sumir (les: Facebook fíklar) missa af öllum félagslegum samskiptum sem og tenglsum við raunveruleikann, einhverjir falla á skilafrest með verkefni og enn aðrir hjúfra sig í fósturstellinguna á eldhúsgólfinu á barmi taugaáfalls.
Svo eru þeir líka sem að bara fá sér göngutúr eða lesa góða bók þangað til að tengingin kemst aftur í lag.
Ég og meðleigjendur mínir þrifum t.d. íbúðina okkar hátt og lágt seinast þegar að nettengingin datt út. – og við erum ekki að tala um að þurrka bara af og ryksuga. Nei. Við dauðhreinsuðum íbúðina hátt og lágt, kalkhreinsuðum baðherbergið og uppþvottavélina og bónuðum hvern einasta glugga. – Sem að er að sjálfsögðu alls ekkert sad.
Til þess að komast að því nákvæmlega hversu mikil fíknin er, skaltu bera saman viðbrögðin hér að neðan og síðan vega og meta hversu aumkunarverð(ur) þú raunverulega ert:
Fyrsta stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Athugar allar leiðslur og hvort að þú getir stolist inn á netið hjá nágrannanum. Síðan ferðu og gerir eitthvað annað.
Á meðan að þú bíður: Lest góða bók, horfir á kvikmynd eða ferð í göngutúr. Er þetta trick question ?
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn og heldur síðan áfram að gera hvað svo sem að þú tókst þér fyrir hendur.
Annars stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Reynir að stela tengingunni hjá nágrannanum. Gengur með ferðatölvuna um íbúðina ef nauðsyn krefur til þess að finna bestu móttöku skilyrðin.
Á meðan að þú bíður: Horfir á kvikmynd með ferðatölvuna við hliðina á þér allan tímann svo að þú getir séð þegar að tengingin kemst aftur í lag.
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn. Tékkar reglulega á 30 min. fresti ef að ske kynni að vandamálið leysist af sjálfu sér.
Þriðja stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Reynir að stela tengingunni hjá nárgrannanum. Gerir síðan nokkrar tilraunir til þess að giska á aðgangsorðin á læstu tengingunum. Gengur með ferðatölvuna um íbúðina til þess að finna bestu móttöku skilyrðin.
Á meðan að þú bíður: Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur. Ferð síðan að horfa á kvikmynd en manst allt í einu að þí horfir bara á kvikmyndir sem að þú strímar af netinu. Reynir að tengjast aftur.
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn. Gengur síðan frá ferðatölvunni ofan í tösku og ferð á kaffihús sem að bíður upp á ókeypis tengingu.
Fjórða stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Sjokk og vantrú. Athugar síðan allar netkerfis stillingar hjá þér, tekur í sundur routerinn og módemið og gerir kerfisbundnar prófanir á nærliggjandi segulsviði og útvarpsbylgjum. Reynir að stela nettengingu nágrannanna og starir að lokum vel og lengi á módemið þitt með tárin í augunum.
Á meðan að þú bíður: Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur. Ferð síðan að horfa á kvikmynd en manst allt í einu að þí horfir bara á kvikmyndir sem að þú strímar af netinu. Reynir að tengjast aftur og aftur og aftur.
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir í netþjónustu aðilann þinn og pakkar því næst borðtölvunni og ferðatölvunni ofan í tösku og bókar herbergi á hóteli sem að bíður upp á fullnægjandi internet tengingu.
Fimmta stigs netfíkn:
Fyrstu viðbrögð: Ferð upp á þak og beinir heimagerða wifi loftnetinu þínu í átt að bókasafninu í hverfinu. Ef að það vikar ekki, reynirðu að tengja farsímann við tölvuna. Ef að það vikar ekki reynirðu að hakka nettenginuna hjá nágrannanum. Húkkar að lokum upp gamla 56k dial up módemið þitt við tölvuna og loggar þig inn á netþjónustu sem að þú borgar af í hverjum mánuði fyrir ef að ske kynni að eitthvað þessu líkt myndi gerast.
Á meðan að þú bíður: Skrifar langa og tilfinningaríka bloggfærslu um hvernig netþjónustu aðilinn þinn er að kosta þig bæði tíma og peninga sökum vanhæfni sinnar til þess að bregðast fljótt og örugglega við fyrirspurnum þínum. Þú sendir afrit af færslunni til allra bæjar- /borgarstjórnafulltrúa ásamt kjörnum fulltrúum á Alþingi Íslendinga í þínu kjördæmi.
Ef að tengingin er ekki komin klst. síðar: Hringir undir eins í netþjónustu aðilann þinn og segir upp þjónustu samningnum. Ef að það eru ekki aðrir þjónustuaðilar sem að bjóða upp á ADSL eða ljósleiðara á þessu svæði, flyturðu í annað póstnúmer / bæjarfélag.
There are 2 comments in this article: