Meira af íslensku krónunni
10/09/2009Ég póstaði fyrir einhverjum mánuðum mynd af gengi íslensku krónunnar. Færslan er dagsett 10.06.2009 en myndin sjálf er tekin nokkrum mánuðum fyrr, eða þann 21 apríl á þessu ári.
Í gær vildi svo til að ég átti aftur erindi upp á Kastrup flugvöll svo að ég ákvað að smella af einni mynd í viðbót af gengiskráningartöflu Nordea.
Það eru liðinir meira en 11 mánuðir síðan að íslenska bankakerfið fór á hliðina og samt virðist ekki finnast ein einasta fjármálastofnun sem að treystir sér til þess að eiga viðskipti með íslensku krónuna eða skrá gengið á henni. Þrátt fyrir það finnast ennþá stjórnmálamenn og spekúlantar á Íslandi sem að halda því blákalt fram að þetta sé hinn eini sanni framtíðar gjaldmiðill Íslendinga og að þær þjóðir sem að nú hafa Evru séu í raun alveg jafn illa ef ekki verr staddar en Ísland.
Þá spyr ég á mót:
Hefur allt bankakerfið farið á hliðina á Evrusvæðinu ? Nei.
Þarf gjaldeyrishöft til þess að halda Evrunni gangandi ? Nei.
Hefur Evran verið án gengisskráningar í næstum því heilt ár ? Nei.
There are 2 comments in this article: