Facebook Fan Check vírusinn

8/09/2009

Sértu aktívur Facebook notandi hefurðu líklegast séð skilaboð sem að hljóma eitthvað á þessa leið:

“WARNING!!* FOR THOSE WHO HAVE ‘FAN CHECK’ IT HAS A VIRUS PLEASE DELETE THE APP IT TAKES 24-48 HOURS TO INFECT EVERYONE ON YOUR FRIENDS LIST PLEASE PASS THIS ON! Go to settings at the top of your profile, scroll to applications and look for ………………………FAN CHECK…remove it by clicking on the ‘X" on the right of the link”

Fan Check er Facebook viðbót sem að gefur sig út fyrir að geta sýnt þér hverjir skoða facebook síðuna þína oftast en virðist í raun og veru vera einn af fjölmörgum vírusum sem að herja á tengslanet síðuna vinsælu. Fyrstu fréttir af vírusnum fóru í umferð fyrir aðeins meira en sólahring síðan og notendur hvattir til þess að ekki aðeins eyða út viðbótinni heldur líka fjarlægja sig frá öllum mynd merkingum sem að kunna að hafa komið með viðbótinni.

Vírusnum hefur verið gerð ágæt skil á bloggum eins og þessu hérna, en ekkert af stóru vírusvarnar fyrirtækjunum hefur hins vegar staðfest að um raunverulegan vírus sé að ræða. Þvert á móti virðast allar staðfestar viðvaranir um vírusinn koma frá bloggsíðum eða frá spömmurunum sjálfum og ef að vel er að gáð, má sjá að Fan Check Virus er orðið með vinsælli leitarniðurstöðum á Google.

Einn af fremstu sérfræðingum Sophos benti hins vegar á það á bloggi sínu að þegar að þú leitar eftir Fan Check vírusnum á Google, þá komi upp listi af síðum sem að innihalda malware og sýkja tölvuna hjá þér. Það lítur því allt út fyrir að einungis sé um að ræða tveggja átta gabb:

Annars vegar viðbót sem að gefur sig út fyrir að geta séð hverjir á vinalistanum þínum skoða síðina þína oftast, sem að er tæknilega ómögulegt að framkvæma sökum persónu skilmála Facebook og allar viðbætur sem að segja annað ljúga, og hins vegar síður sem að gefa sig út fyrir að bjóða lausn á vandamálinu þegar að þær í raun sýkja tölvuna þína.

Í öllu falli ættuð þið að hafa eftirfarandi í huga: Haldið ykkur frá Fan Check viðbótinni og öllum öðrum viðbótum sem að gefa sig út fyrir að geta trakkað heimsóknir á Facebook síðuna ykkar og ekki undir neinum kringumstæðum leita eftir “Fan Check Virus” á leitarvélunum þar sem að viðkomandi síður eru í flestum tilvikum gabb / svindl síður.

No comments yet.

Write a comment:

Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes