10 forrit fyrir farsímann þinn

6/09/2009

Fyrir rúmlega 11 árum eignaðist ég minn fyrsta farsíma; sá var af gerðinni Ericsson A1018 ef að ég man rétt (þetta var áður en að Sony og Ericsson sameinuðu farsíma framleiðslu línurnar hjá sér árið 2001). Meðal helstu eiginleika hans var loftnet sem að þú gast skrúfað af og á eftir hentugleikum auk 10 hringitóna sem að komu með símanum (þar sem að stefið úr Stjána Bláa gnæfði yfir hina í vinsældum).

ericsson_a1018 Þetta var jú fyrir tíma myndavélasíma, Facebook, Twitter, WAP, MMS, tölvupósts í farsímum og GPS.

Síminn minnti einna helst á talstöð og þyngdin var eftir því. Ég  fékk auk þess ófáar háðsglósurnar á þessum árum og var margoft spurður hvers vegna í ósköpunum ég þyrfti á svona apparati að halda; Hver ætti svo sem að vilja ná í mann hvenær sem væri og hvað í ósköpunum svona farsíma apparat hefði framyfir gömlu góðu heimasímanna. Needless to say þá er ég ekki spurður að þessu í dag.

Á þessum 11 árum sem að síðan eru liðin, hefur mikið vatn runnið til sjávar í framleiðslu, hönnun og notkunarmöguleikum. Sem betur fer kannski. Farsímar í dag eru ekki aðeins fyrirferðarminni, öruggari og þægilegri í notkun heldur hafa þeir þróast í margmiðlunartæki (e. multimedia device) sem að gera þér kleift að halda utan um öll þín daglegu samskipti, upplýsingar og afþreygingarefni¹. Og þróunin stoppar ekki þar. 3G, qwerty lyklaborð, snertiskjáir, myndvarpar og gps staðsetningartæki eru aðeins örfá dæmi um tækninýjungar sem að eru að slíta barnskónum eða handan við sjóndeildar hringinn.

Sjálfur hef ég átt ógrynnin öll af farsímum í gegnum tíðina; svo marga reyndar að ég hef ekki tölu á þeim lengur. Sá nýjasti í röðinni er Sony Ericsson w995 sem að leysir þar með af Nokia E66 símann minn.

w995

Ég ákvað af þessu tilefni að taka saman lista yfir 10 forrit og vefþjónustur fyrir farsíma sem að eru vel þess virði að skoða nánar. Nánari upplýsingar er að finna á síðunum sjálfum.

  1. ZYB. ZYB er vefþjónusta og farsíma forrit sem að gerir þér klefit að vista alla tengiliði úr símaskránni þinni á netinu og þar með að hafa aðgang að upplýsingunum hvar og hvenær sem er. Þú getur líka séð allar nýjustu Facebook stöðu uppfærslurnar og hvar aðrir ZYB notendur eru staðsettir á korti.
  2. Tiny Twitter. Fyrir ykkur sem að notið Twitter mikið er hér komið lítið forrit sem að keyrir á flestum tegundum farsíma og gerir ykkur kleift að uppfæra Twitter stöðuna hjá ykkur fljótt og örugglega.
  3. YouTube Mobile Application. Forrit til þess að sækja og horfa á myndbönd frá YouTube myndbands hýsingar síðunni.
  4. Google Mail. Forrit til þess auðvelda aðgengi að Google tölvupóst þjónustunni. Býður upp á samtals yfirsýn til þess að lesa tölvupósta betur á minni skjám, spam filterar sjá einungis mikilvæg skilaboð on the go, yfirsýn yfir vistaða tölvupósta (drafts) og viðhengi.
  5. Goosync.com. Forrit til þess að synca Google Calendar við farsímann þinn. Auðveldar til muna daglega skipulagningu ef að þú notar Google Calendar til þess að halda utan um fundi, mannamót, verkefnavinnu o.s.fr.
  6. Zannel.com. Síða sem að býður notendum upp á að uploada ljósmyndum, myndböndum og tónlist og senda á Twitter, Facebook, MySpace, Flickr eða á WordPress og Blogger blogg þjónusturnar.
  7. Facebook Mobile. Forrit sem að auðveldar þér til muna að uppfæra Facebook stöðu uppfærslur í gegnum farsímann. Forritið býður m.a. upp á að svara skilaboðum, öðrum stöðu uppfærslum og skrifa á veggi hjá fólki á vinalistanum þínum. Að auki geturðu tekið ljósmyndir á símann þinn og uploadað á Facebook síðuna þína.
  8. Free Conference Calls. Þetta forrit gerir nákvæmlega það sem að nafnið gefur til kynna; það gefur notendum möguleika á að hringja ókeypis ráðstefnu símtöl í gegnum Facebook síðuna. Þessi símtöl er hægt að hringja hvar svo sem að þú hefur aðgang að internetinu í gegnum farsímann þinn. Auðvelfar til muna verkefnavinnu í hópnum hjá þér t.a.m. í fjarnámi eða ef að þú ert að leitast eftir ódýrari leiðum til þess að skipuleggja fjarfundi.
  9. LiteFeeds.com. Forrit fyrir farsímann þinn sem að syncar og les RSS feedin þín við sambærilegar netþjónustusíður.
  10. Mobiseer.com. Síða sem að heldur yfirlit yfir vefsíður sem að keyra vel á farsímum, merktu þær fyrir seinni tíma notkun og byggðu upp þína eigin vefsíðu með öllum uppáhalds linkunum þínum fyrir auðveldara aðgengi. Með bestu bookmark þjónustum fyrir farsíma sem að finnast á markaðinum í dag.

¹· Með afþreygingarefni á ég við ljósmyndir, kvikmyndir, tónlist og flest allt það efni sem að hægt er að vista á stafrænu formi.

No comments yet.

Write a comment:

Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes