Skyndi “múgæsing”

4/09/2009

Ég veit ekki alveg hvernig ég á að útskýra hugtakið “flashmob”. Samkvæmt Wikipedia alfræðiritinu er um að ræða hóp af fólki sem að kemur saman með litlum sem engum fyrirvara á fjölförnum stað til þess að fremja gjörning / viðburð af einhverju tagi í mjög skamman tíma og hverfur jafn snögglega og hann kom. Hugtakið er yfirleitt notað um hópa sem að eru skipulagðir eftir “óhefðbundnari” samskiptaleiðum, líkt á sms skilaboðum, félagslegum tengslanetum eða viral tölvupóstum, en ekki um viðburði sem að eru skipulagðir af almannatenglum, fyrirtækjum eða sem PR stönt. Ég hugsa að “skyndimúgur” eða “skyndihópur” væri ágætis þýðing á hugtakinu (þar eð mob vísar í þessu tilviki til múgs eða múgæsingar).

Með tilkomu miðla eins og YouTube, Facebook og Twitter hefur að auki reynst mun auðveldara að koma efninu á framfæri og að sama skapi að skipuleggja slíka viðburði.

Persónulega þá dýrka ég hugmyndina. Það að brjóta upp hið félagslega norm í margmenni á þennan hátt ber ekki aðeins vott um öðruvísi nálgun á félagslega hegðun, heldur  sannar að það er hægt að framkvæma gjörninga af þessu tagi með lítilli fyrirhöfn og á tiltölulega skömmum tíma. Plús þetta er frábær leið til þess að kynnast nýju fólki og lífgar upp hversdagsleikann ef ekkert annað.

Ég hef einu sinni tekið þátt í “skyndimúg” af þessu tagi, en það var “Copenhagen Freeze” á aðal járnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn þann fyrsta apríl 2008. Þess má geta að sá viðburður var eingöngu skipulagður í gegnum Facebook og hópurinn hittist ca. 15 min. áður til þess að synca úrin svo að allir myndu nú “frjósa” á sama tíma.

Ef vel er að gáð má sjá glitta í mig ca. á min. 3:36 (ef að þið eruð að velta því fyrir ykkur hvað verið er að segja í hátalakerfinu þá er einfaldlega verið að tilkynna að það sé stór hópur af fólki frosið í tíma en að viðskiptavinir þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur).

Nokkrum vikum síðar var leikurinn endurtekinn á Strikinu í Kaupmannahöfn. Ég komst því miður ekki  með í það skiptið.

Freeze conceptið hefur þó verið útfært á mun betri hátt. T.a.m. á Grand Central Station í New York:

og í París:

Hugmyndin um “skyndimúg” (og ég óska hér með eftir betra orði yfir hugtakið flash mob) hefur líka verið tekin skrefinu lengra og heilu dansrútínurnar, kóríugrafaðar, skipulagðar og framkvæmdar á nokkrum min. og síðan hverfur hópurinn jafn snögglega og hann kom saman. Ég sting upp á að þetta verði hér með kallað “dansmúgur” á ástkæra ylhýra.

Nýlega voru t.a.m. 40 ár síðan að hljómsveitin The Who spiluðu lög úr söngleiknum Tommy á Woodstock tónlistarhátíðinni 1969. Af því tilefni tók þessi “dansmúgur” lagið “Pinball Wizard” á torgi í San Fransisco:

Þann 8. júlí sl. kom saman “dansmúgur” í Stokkhólmi til þess að heiðra minningu Michael Jackson. Leikurinn var svo endurtekinn seinna um kvöldið:

Ég veit ekki með ykkur en mér finnst tilhugsunin um stóran hóp af fólki sem að snögglega brýst út í dansi við dúndrandi rokk/dans tónlist alveg einstaklega heillandi. Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert á Íslandi en það væri awesome að sjá þetta gert t.d. á lækjartorgi eða á Austurvelli. Það myndi svo auka enn frekar á áhrifamáttinn ef að þetta væri t.d. gert á sama tíma og ríkisstjórnin og/eða alþingismenn væru að koma út af fundi.

There are 3 comments in this article:

  1. 4/09/2009Árni say:
  2. 4/09/2009Lissy say:
  3. 4/09/2009Jon Hnefill say:

Write a comment:

Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes