Skýrslan frá Wikileaks
1/08/2009RUV sannar enn og aftur hvers vegna þetta er besta fréttastofan á öllu Íslandi: Miklar hreyfingar rétt fyrir hrun.
Að sama skapi eru þessi viðbrögð lögfræðingateymis nýja Kaupþings og skilanefndar gamla Kaupþings ákaflega vanhugsuð for lack of better words. Það getur vel verið að þau séu “bara” að vinna vinnuna sína, en viðbrögðin einkennast engu að síður af fljótfærni og virðast benda til þess að það búi eitthvað meira að baki en að vernda viðskiptavini bankans.
En þar sem að ég held ekki úti fréttamiðli og lénið mitt er ekki vistað á Íslandi þá er mér bæði ljúft og skylt að setja inn linka á umrædda skýrslu frá www.wikileaks.org.
Linkur á umfjöllun Wikileaks um Kaupþing.
Linkur á .pdf skjalið frá fundi Kaupþings þann 25. september 2008
Hótun lögfræðiteymis gamla og nýja Kaupþings.
Ég er ekki klíjugjarn maður að eðlisfari og ég hef frekar tekið þann pól í hæðina að bíða eftir að embætti sérstaks saksóknara, undir dyggri ráðgjöf Evu Joly, ásamt efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og rannsóknarnefnd Alþingis ljúki sinni vinnu áður en ég mynda mér skoðanir á orsökum aðdraganda bankahrunsins. Ég er einn af þeim sem að vill hafa sem flestar upplýsingar fyrir framan mig áður en að ég tek endanlega afstöðu.
Ég kúgaðist samt þegar að ég las umrædda skýrslu frá þessum tiltekna Kaupþingsfundi nokkrum dögum áður en að allt íslenska bankakerfið fór á hliðina. Það krefst sterkra tauga að lesa það sem að þarna fór fram en ég vona að sem flestir geri það.
Hvet sem flesta til þess að linka inn á umrædda umfjöllun, sem og .pdf skjalið inn á bloggsíðum, Facebook, Twitter og/eða öllum þeim vef miðlum sem að ykkur mögulega dettur í hug. Því fleiri sem að gera þetta, þeim mun erfiðara verður fyrir lögfræðteymi Kaupþings og skilanefndar gamla Kaupþings að stöðva útbreiðslu og umfjöllun um málið.
Tryggjum að þetta gleymist aldrei og verði aldrei grafið ofan í skúffu eða nefndarvinnu.
There is 1 comment in this article: