Ísland og Evrópusambandið

16/07/2009

Ég hef verið Evrópusinni í bráðum 3 ár núna. Aðallega vegna þess að ég er sannfærður um að íslenska krónan er búin að vera sem framtíðar gjaldmiðill. Ekki aðeins þarf höft til þess að halda henni gangandi, heldur hefur verðgildi hennar hrunið um meira en 80%. Því fyrr sem að við getum kvatt krónuna og viðurkennt að sá partur í sögu Íslands er búinn, því betra. Ég er þess utan 200% sammála punktum Andrésar Jónssonar sem að hann útlistar hérna.

Ég viðurkenni fúslega að ég var pínu uggandi um hvernig Alþingi myndi afgreiða þetta á tímabili. Tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu skil ég ekki vegna þess að með henni væru lýðræðislega kjörnir fulltrúar þjóðarinnar að kosta til peningum til þess að spyrja hvort að þeir mættu nú örugglega tala við fulltrúa Evrópusambandsins. Þess utan hefur engin af 27 aðildarþjóðum ESB farið þessa leið í inntökuferlinu hingað til (ekki það að það hefði samt ekki komið mér á óvart hefði slík tillaga verið samþykkt). Fullyrðingar um að Ísland glati sjálfstæði sínu standast ekki, þar eð þau fela jafnframt í sér að þau 27 lönd sem að eru aðilar að ESB fyrir séu ekki sjálfstæð. Hef ekki orðið var það to be honest að aðrar Evrópuþjóðir séu ósjálfstæðar, en játa þó að tæknilega séð geta 500 milljónir manns alveg hafa misskilið fullveldis- og sjálfstæðis hugtökin þó svo að mér finnist það ákaflega hæpið ef að ég á vera hreinskilinn.

Alþingi samþykkti hins vegar að fara aðildarviðræður og að bera samninginn undir dóm kjósenda til samþykktar eða synjunnar. I like that. Íslenska þjóðin er nefninlega alveg þokkalega upplýst og ef að henni hugnast samningurinn þá segir hún já við honum. Ef henni hugnast samningurinn ekki þá segir hún nei. Ekki flóknara en svo. Það sem að ég óttast kannski mest er að vissir stjórnmálamenn muni samt sem áður kjósa gegn samningnum á Alþingi þrátt fyrir að þjóðin hafi gefið annað til kynna. Ég óttast hins vegar ekki að þingið muni samþykkja samninginn ef að þjóðin hafnar honum.

Ég hlakka allavega til þess að fá að kjósa!

Hér fyrir neðan eru svo linkar á nokkrar erlendar fréttaveitur um aðildarumsókn Íslands:

Berlingske

La Stampa

BBC

The Vancouver Sun

Radio Nederland Wereldomroep

BusinessWeek

Aljazeera

Daily Press

Deutche Welle

The Washington Examiner

Aftenposten

Danmarks Radio

Yfirlýsing frá SNP – The Scottish National Party

eu-flag

No comments yet.

Write a comment:

Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes