Einlæg Emilíana Torrini
29/05/2009Fór á fantagóða tónleika með Emilíönu Torrini í tónleikasal Danmarks Radio sl. sunnudagskvöld. Þar sem að ég hef ekki hlustað á hana að neinu ráði og ekki séð hana á tónleikum áður þá vissi ég ekki alveg við hverju ég ætti að búast.
Ég er hins vegar ekki í neinum vafa lengur. Eftir að hafa hlýtt á hana spila ætla ég að leyfa mér að fullyrða að það sé leitun að tónlistarmanni sem að býr yfir jafn mikilli útgeislun, einlægni og krafti í sviðsframkomu. Dagskráin var þétt og lagavalið hreint stórkostlegt (hefði þó viljað heyra meira af eldri efni með henni en það er góðfúslega fyrirgefið). Útskýringarnar sem að hún kom með á tilurð laganna hennar gáfu þeim líka ögn meiri dýpt og gerðu þau persónulegri. Ég fíla nefninlega tónlistarmenn sem að ná að tengjast við áhorfendur á aðeins persónulegri hátt en að standa og árita plötur eftir tónleika (í Medialogy náminu var þetta kallað musical interaction, þ.e. að skapa stemmingu og andrúmsloft með söng og hljóðfæraleik).
Mitt fyrsta verk daginn eftir var að verða mér út um plötuna “Me and Armani” sem að hefur verið nánast á repeat síðan.
Lagið Jungle Drum af plötunni “Me and Armani”
Þess má til gamans geta að þetta lag var notað í opnunarþættinum í 5 þáttaröðinni af Grey’s Anatomy og kemur til með að hljóma í fyrsta þætti í næstu þáttaröð af “So You Think You Can Dance”.
No comments yet.