Númeri og tölustaf betur
4/04/2009Ég og farsímar eigum ansi langt og stormasamt 11 ára samband að baki. Þrátt fyrir öll okkar rifrildi um noktunarmöguleika, batterý líftíma, hugbúnað og útlit, höfum við þó alltaf náð að sættast áður en langt um líður.
Ég er búinn að eiga þennan Nokia E65 í tæplega ár og hef verið að nota hann með hléum. Þangað til í gær. Þá dó hugbúnaðurinn í honum.
Ég er hins vegar orðinn vanur E seríunni frá Nokia og get ekki hugsað mér farsíma sem að ég get ekki syncað við Exchange server, Gmail, calendar og tasks svo að ég uppfærði – yfir í Nokia E66-1.
Hraðvirkari, stílhreinni og öruggari stóri bróðir E65 sem að uppfyllir allar mínar sync þarfir í einu tæki. Já og svo get meira að segja hringt úr honum líka…
There is 1 comment in this article: