Engin uppfærsla fyrir orðljóta Twitter notendur

11/03/2009

Apple hefur ákveðið að leyfa ekki uppfærslu fyrir Tweetie forritið á iPhone símunum og iPod Touch.  Ástæðan ? Jú, samkvæmt Twitter trends greiningu var orðið “Fuck” of mikið notað á meðal Twitter notenda.

Fyrir þá sem að það ekki vita þá er Twitter vefsíða sem að gerir notendum sínum kleift að senda stuttar stöðu uppfærslur, svipaðar þeim sem að er að finna á Facebook.  Helsti munurinn er kannski sá að síðan er byggð í kringum stöðu uppfærslurnar (líka kallað ör blogg eða micro blogging) og býður upp á tengingu þjónustunnar við blogg síður, önnur tengslanet og hugbúnað fyrir tölvur og farsíma.

Tweetie Twitter trends byggir á svipuðum grunni og Google trends, þ.e. að greina hvaða orðanotkun og orðsamsetning er vinsælust á meðal notenda þjónustuannar.

Þó svo að um hafi verið að ræða einangrað tilvik þar sem að orðið “Fuck” var á það meðal þeirra mest notaðu á meðal Twitter notenda (orðið er varla til staðar lengur skv mælingum) , þá virðast Apple hafa séð ástæðu til þess að bregðast við og það af hörku: Uppfærsla 1.3 af Tweetie forritunu verður ekki fáanleg í iTunes búðinni sökum þessa óheflaðs orðbragðs Twitter notenda.

Fyrir utan að vera ritskoðun af verstu sort, þá lýsir þessi ákvörðun Apple ákaflega einkennilegri tengingu við það sem að við hin myndum flokka sem raunveruleika. Mér er t.d. fyrirmunað að sjá hvernig að framleiðendur hugbúnaðar – sem að gerir notednum kleift að tengjast við vefsíðu nota bene – geti talist ábyrgir fyrir orðbragði notenda vefsíðunnar.  Það er svona eins og að halda því fram að Microsoft beri á einhvern ábyrgð á falli bankanna á Íslandi þar sem að einhverjir stjórnendur bankans gætu hafa notað Outlook tölvupóstforritið til þess að senda tölvupósta sín á milli.

Twitter Human Weather Hræðsla Apple við blótsyrði er þó ekki einskorðuð við Tweetie forritið.  Þannig tóku framleiðendur veður hugbúnaðarins Twitter Human Weather eftir því að Apple lokuðu á hugbúnaðinn þeirra í gegnum iTunes búðina eftir að ein athugasemdin við hugbúnaðinn innihélt blótsyrði.  Framleiðendurnir urðu að útbúa síu á viss blótsyrði til þess að fá Apple náðarsamlegast til þess að leyfa sölu á forritinu aftur.

M.ö.o. þú mátt blóta þegar að þú talar í iPhone.  Þú mátt bara ekki skrifa blótsyrðin í gegnum hugbúnað annara eða í ummælum um hugbúnað annara í iTunes búðinni.

Google trends veitir markaðfræðingum, félagsfræðingum, vísindamönnum, vefhönnuðum og kerfisfræðingum ómetanlegt safn gagna og tölfræði um hegðun þeirra sem að notast við þjónustu leitarvéla risans. Twitter trends greinir hvaða orð og orðasambönd eru vinsælust á meðal Twitter notenda hverju sinni.  Hérna er svo áhugaverð samanburðar pæling: Hvað ætlu séu margir sem að nota Google dagsdaglega miðað við hversu margir nota Twitter dagsdaglega ? og á sömu nótum: Hversu mikill fjöldi Twitter notenda eiga iPhone eða iPod Touch og hversu hátt hlutfall þeirra skyldu síðan nota orðið Fuck í daglegum Twitter samskiptum ? Þessi tiltekni hópur Twitter notenda er ekki nógu stór markhópur til þess að geta einn og sér haft áhrif á ímynd eða afkomu Apple, sem að aftur gerir viðbrögð fyrirtækisins við blótsyrðunum ennþá furðulegri.

Google Trends Ég get þó ekki annað en tekið undir orð Dong Ngo hjá CNET: Ef að Apple hafa lokað fyrir uppfærslu á forriti vegna blótsyrða, sem virðist vera raunin ef að eitthvað er að marka þennan Tweetie forritara, hvers vegna þá bara að loka fyrir þessa einu uppfærslu.  Það er ekki eins og að þú getir bara Twitterað blótsyrðin með nýjustu útgáfunni.

No comments yet.

Write a comment:

Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes