Biðtíminn á enda! (or is it?)
24/02/2009Ég er hættur að telja þau skipti sem að ég hef reynt að halda úti bloggsíðu. Það byrjaði fyrst árið 2005 (og þá meira í tengslum við námið frekar en hitt), fljótlega eftir það færði ég mig yfir á blogcentral í smá tíma, því næst yfir á blogspot, svo stoppaði ég stutt við á Bloggþjónustu Morgunblaðsins og loks fór ég aftur á blogspot en nennti því svo ekki lengur og hef verið “heimilislaus” í netheimum síðan 2007.
Á þessu ári uppgvötaði ég hins vegar undirlén, marghátta gagnagrunnstengingar, Windows Live Writer, WordPress 2.7.1 og plugins. Á mannamáli myndi það þýða einfaldari aðferð til að uppfæra bæði bloggið og heimasíðuna og halda utan um alla “vinnu utan vinnu” verkefna. Kaldhæðnin í seinustu setningu er sú að ég er að leita að vinnu þessa dagana og sé mér farborða sem freelancer í millitíðinni.
Verandi trúr faginu, þá er heimasíðan ennþá í vinnslu og, af fenginni reynslu, kemst hún í loftið “fljótlega.” Það er jafnframt vinsælasta dagsetning margmiðlunarhönnuða við skil á verkefnum næst á eftir “seinna” og “von bráðar.”
Ég náði allavega að setja upp þessa síðu. Njótið á meðan að það varir.
No comments yet.